RÚV í pólitísku hagfræðiflippi

Hagfræði, sérstaklega íslenska útgáfan, er akademískt rusl. Ekki nóg með að velflestir íslenskir hagfræðingar væru undirlægjur útrásarinnar heldur voru þeir fræðingar sem voru í vinnu hjá háskólum uppteknir við að klæða bankabullið í fræðibúning en gleymdu öllu því sem heitir gagnrýni og heilbrigð skynsemi. Íslenskir hagfræðingar eru rúnir trausti og ættu áður en þeir æmta að útskýra hvar þeir voru  þegar útrásin stóð yfir.

Og þá gerist að Sjónvarpsfréttir RÚV draga upp á dekk hagfræðing sem álitsgjafa um mál sem hann hefur sannanlega enga fræðilega þekkingu á, sum sé alþjóðasamskiptum. Í kvöld var fyrsta frétt í Sjónvarpsfréttum bullsaga frá Gylfa Zoëga hagfræðingi um svartar framtíðarhorfur Íslands. Rökin voru m.a. þau að ótilgreindir samningamenn Íslands væru of harðir í horn að taka fyrir útlendinga.

Hvað gengur fréttastofu Sjónvarps til með að flytja hálfkveðnar vísur í fréttaformi? Og hvað veit hagfræðingur um diplómatíu? 

Furðufréttir af þessu tagi eru ekki til þess fallnar að upplýsa eitt eða neitt heldur skapa óróa og óvissu. Hverra erinda gengur fréttastofa Sjónvarps?


mbl.is Gylfi Zoëga: Svartar horfur á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. febrúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband