Laugardagur, 14. febrúar 2009
Úr auðræði í fjölræði
Samkeppniseftirlitið bannaði samruna útgáfufélaga Fréttablaðsins og Morgunblaðsins. Eignarhaldsfélög verða ýmist keyrð í gjaldþrot eða leyst upp. Stjórnvöld, skilanefndir, ríkisbankar og eftirlitsstofnanir eru smátt og smátt að leggja drög að nýju atvinnulífi eftir hrun auðræðisins í haust.
Ríkisstjórnin ætti að gera fjölræði að opinberri stefnu sinni. Fjölræði felur í sér smáar einingar. Við höfum sé hvernig rekstrarrök fyrir stórum einingum voru misnotuð til að búa í haginn fyrir fákeppni með alkunnum afleiðingumDægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)