Þriðjudagur, 29. desember 2009
Fella Icesave til að bjarga Vg
Óbreyttir þingmenn Vinstri grænna bjarga sennilega flokknum frá klofningi með því að fella Icesave-frumvarp ríkisstjórnarinnar. Átakalínan liggur milli hugsjónamanna sem vilja varðveita orðspor Vg um að taka prinsippafstöðu í stórmálum og valdatæknimönnum sem telja fyrir mestu að flokkurinn eigi aðild að ríkisstjórn.
Ögmundur Jónasson fer fyrir hugsjónafólkinu en Steingrímur J. og Árni Þór Sigurðsson liðþjálfi hans fyrir valdatæknimönnum.
Stjórnmálaflokkur sem ætlar að lifa af núverandi ríkisstjórn verður að líta til lengri tímabils en næstu missera.
Róttækur vinstriflokkur, byggður á hugmyndum um þjóðfrelsi og réttlæti, getur ekki lagst flatur fyrir óbilgjörnum kröfum gamalla nýlenduvelda og teflt efnahagslegri framtíð þjóðarinnar í tvísýnu.
Ef þingmenn Vinstri grænna samþykkja Icesave-frumvarpið á morgun er tilvistargrunnur flokksins eyðilagður.
![]() |
Átök innan Vinstri grænna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 29. desember 2009
Vegvísir til framtíðar
Borgarskipulagsumræða á Vesturlöndum gerir heimaræktun hátt undir höfði. Fólksfækkun víða í Evrópu leyfir að borgarland sé tekið undir kálgarða. Heimaræktun er hagkvæmari, mengar minna og stuðlar að fjölbreytni.
Reykvískir sauðfjárbændur eru í senn arfleifð liðins tíma og boðberar nýsköpunar. Hollur er heimafenginn baggi er speki i dag eins og fyrrum.
Borgaryfirvöld eru ágætlega með á nótunum og úthlutuðu síðast liðið vor grænmetisgörðum til þeirra er vildu hafa.
![]() |
Reykvískar kindur í ástarbríma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. desember 2009
Bankar í eigu huldumanna til óþurftar
Í útrásinni hættu bankar að þjóna almenningi og atvinnulíf. Bankar sátu yfir hlut annarra, notuðu afl sitt og innherjastöðu til að deila og drottna. Skæðustu útrásarauðmenn gerðu sér enda far um að eignast banka.
Föllnu bankarnir voru endurreistir eftir hrun og gerðir að ríkisbönkum. Tveir þeirra, Arion og Íslandsbanki, hafa að stórum hluta verið færðir undir eignarhald huldumanna.
Ef ekki liggur hið snarasta fyrir hvað bankarnir ætlast fyrir og hverjir eigendur þeirra eru hlýtur að vera ástæða til að efna til herútboðs meðal almennings að hætta viðskiptum við huldubankana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Þriðjudagur, 29. desember 2009
Hryðjuverk afhjúpa mótsögn í lífstíl
Öfgamenn í Yemen skipuleggja misheppnað hryðjuverk í aðflugi Airbusvélar að Detroit í Bandaríkjunum. Í kjölfarið ganga alþjóðlegar flugsamgöngur úr skorðum. Hátimbraður vestrænn lífstíll riðar til falls vegna þess arabískir miðaldamenn afhjúpa mótsögn Vesturlandabúans sem hvorttveggja vill öryggi og neyslufrelsi. Annað tveggja mun gefa eftir og það verður neyslan og frelsið.
Hryðjuverk, efnahagskreppa og ímynduð eða raunveruleg náttúrvá leiðir til breytinga á dæmigerðum vestrænum lífsháttum næstu misserin og árin.
Þotuflug skreppur saman og gönguskórnir verða meira nýttir á heimaslóðum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)