Mánudagur, 21. desember 2009
Framtíð Icesave-þingmanna
Þingmenn sem greiða atkvæði með Icesave-frumvarpi ríkisstjórnarinnar eru vitandi vits að vinna þjóðinni tjón. Þeir samþykkja samning sem er óréttlátur og gæti steypt þjóðinni í efnahagslega glötun, fari allt á versta veg.
Þingmennirnir mega vita að þjóðin vill hafna frumvarpinu og er tilbúin til að láta reyna á rétt okkar.
Í atkvæðagreiðslunni um Icesave-frumvarpið reisa þingmenn þjóðarinnar sér annað tveggja, bautastein um þor og dug eða níðstöng kjarkleysis og undirlægjuháttar.
![]() |
Icesave-samningur hvorki skýr né réttláttur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 21. desember 2009
Norskt nei við ESB styrkist
Norðmönnum sem hafna aðild landsins að Evrópusambandinu fjölgar. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun eru 49,2 prósent Norðmanna andvíg aðild en 38,8 prósent eru hlynnt. Frá síðustu mælingu hafa fullveldissinnar í Noregi styrkt sig um nærri þrjú prósentustig.
Samfellt í 57 mánuði hafa mælingar sýnt að Norðmenn eru andvígir aðild. Þjóðaratkvæði hefur í tvígang verið haldið um inngöngu Noregs í Evrópusambandið, 1972 og 1994, og í bæði skiptin fellt.
Íslenskir aðildarsinnar létu í ljós von um að Norðmenn myndu hugsa sér til hreyfings við umsókn Íslands í sumar. Norðmenn hafa þvert á móti styrkst í þeirri trú að þjóðinni sé betur borgið utan Evrópusambandsins. Þar fylgja Norðmenn fordæmi Íslendinga sem hafa aldrei látið sér til hugar koma að sækja um aðild - fyrr en með Samfylkingarsumarstórslysinu 16. júlí.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 21. desember 2009
Viðskiptavildin átti að kveikja aðvörunarljós
Skráð viðskiptavild íslenskra fyrirtækja var komin úr öllu korti löngu fyrir hrun. Hér er færsla skrifuð í mars 2007 um 421 milljarð króna viðskiptavild í fyrirtækjum skráðum í Kauphöllina.
Eftirlitsaðilar sáu í gegnum fingur sér og fjölmiðlar voru á framfæri þeirra auðmanna sem skrúfuðu upp vitleysuna.
Til að kóróna heimskuna voru hér á landi rithöfundar sem sérstaklega mærðu ,,sjálfstæðustu menn Íslands," útrásarmennina sem gerðu fjárhagslegt strandhögg heima og erlendis.
Við verðum lengi enn að glíma við timburmenn hrunsins.
![]() |
Flett ofan af íslensku aðferðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 21. desember 2009
Erlendir plateigendur að bönkum
Ríkisstjórnin seldi þjóðinni blekkingu um að endurreistu íslensku þrotabankarnir væru komnir í erlenda eigu, í það minnsta að hluta til. Almenningur var látinn halda að útlendir bankamenn myndu taka yfir reksturinn og kenna Íslendingum að reka banka enda ekki vanþörf á.
Erlenda eignarhaldið er plat. Eins og Margeir Pétursson bendir á eru það erlendu kröfuhafarnir í þrotabú gömlu bankanna sem eiga þá nýju í gegnum þrotabúin sem fara með eignarhlutinn. Engin fagþekking mun koma frá erlendu eigendunum í nýja bankana. Kröfur eigendanna eru að fá hraða ávöxtun sem þýðir að bankarnir blóðmjólka viðskiptavini sína til að standa undir arðsemiskröfum.
Takmörk er fyrir umburðarlyndi þjóðarinnar gagnvart ríkisstjórn sem þrífst á blekkingum. Víst var verkefni ríkisstjórnarinnar risavaxið en þegar á fyrstu stundu tóku ráðherrar til við að ljúga og blekkja almenning. Enga nauðsyn bar til þess.
Það er komið nóg.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 21. desember 2009
Fínn pappír Steingríms J.
Formaður Vinstri grænna segir að Björgólfur Thor Björgólfsson hafi verið fínn pappír einu sinni og gefur til kynna að hann gæti orðið ágætur liðsfélagi ríkisstjórnarinnar. Til áherðingar segir Steingrímur J. að reglur réttarríkisins eigi að gilda um milljarða meðgjöf ríkisstjórnarinnar til gagnavers Björgólfs Thors.
Það hlýtur að fara um stuðningsmenn Steingríms J. og Vinstri grænna. Ríkisstjórnarþátttaka flokksins hófst með svikum í Evrópumálum og hélt áfram með nauðungarsamningum um Icesave-reikningana. Nú á að toppa fyrir óþokkaverk með því að gefa aðaleiganda Landsbanka og Icesave sérstaka undanþágu frá skattgreiðslum.
Næsti áfangi í helför formanns Vinstri grænna gæti verið að virkja Gullfoss. Hverjir eru memm?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)