Sunnudagur, 20. desember 2009
Epísk evrupæling
Er Evrópusamkennd Grikkja næg til að þeir lúti höfði þegar Þýskalandskanslari segir þeim að herða sultarólina, lækka kaup og skera niður þjónustu, með þeim rökum að myntsamstarfið krefjist þess? Á þessa leið spyr Ambrose Evans-Pritchard í Telegraph í kvöld í epískri pælingu um mynt, anarkisma og framtíð Evrópu.
Kjarninn í Brósapælingu er að sameignlegur gjaldmiðill verður að hafa sameiginlega fjársýslu að baki, annars tætast upp jaðrar gjaldmiðilssvæðisins því að verðgildi myntarinnar tekur mið af þungamiðjunni. Þýskaland er þungamiðja evrunnar og jaðarsvæðin, einkum í Suður-Evrópu hafa tapað samkeppnishæfni gagnvart þungamiðjunni sleitulaust í þau tíu ár sem evran hefur verið við lýði.
Hér er Brósapæling, ekki ganga til sængur án þess að lesa 'ana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Sunnudagur, 20. desember 2009
Stjórnin hampar auðmönnum, skattleggur láglaunafólk
Ríkisstjórnin verður uppvís í vikunni að hygla útrásarauðmönnum vegna gagnvers og notar helgina til að svíkja gerða samninga við samtök launafólks. Augljóst er að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er umhugað um flest annað en réttsýna og málefnalega stjórnarhætti.
Pétur Blöndal og Alþýðusambandið eru sammála um að skattar hækki yfir línuna, einnig á þá lægst launuðu. Ríkisstjórnin reynir að telja okkur trú um annað.
Lokaorð forseta ASÍ í meðfylgjandi frétt eru sérstaklega athyglisverð.
Ég skora á þingmenn meirihlutans að koma í veg fyrir þetta, almennt launafólk treysti ykkur til að standa vörð um þá tekjulægstu og bregðist þið því trausti mun það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir trúverðugleika ykkar til langs tíma. Sérstaklega þegar það er haft í huga að það var í tíð vinstri stjórnar sem verðtrygging persónuafsláttar var afnumin árið 1989
![]() |
Stjórnin standi við samninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 20. desember 2009
Grein Williams um frábæra hæfileika Jóns Ásgeirs
"...að íslenska þjóðin geti notið hinna frábæru hæfileika sem Jón Ásgeir býr yfir."
Jón Ásgeir þurfti bæði fyrr og síðar á aðkeyptu lofi að halda. RÚV segir frá því að reikningurinn fyrir þessi greinarskrif sé tveir milljarðar og þrotabú Glitnis á að borga.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 20. desember 2009
Grískir stjórnarhættir
Ríkisstjórn Grikklands frá 1963
63-65 George Papandreou
65-67 Öngþveiti
67-74 Herinn rænir völdum; einræði
74-80 Konstantinos Karamanlis
80-81 George Rallis
81-89 Andreas Papandreou (sonur)
89-90 Öngþveiti, 3 misheppnaðar kosningar
90-93 Konstantinos Mitsotakis
93-96 Andreas Papandreou (sonur)...deyr
96-04 Konstantinos Simitis
04-09 Konstantinos Karamanlis (frændi)
Frá okt 09 George Papandreou (barnabarn)
(Tekið frá A Fistful of Euros)
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)