Katrín Júl., Bjarni Ben. og móralska máttleysið

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra féll fyrir tilhugsun um störf á Suðurnesjum og sá í gegnum fingur sér að þeir sem ætluðu að græða voru annars vegar tryggur flokksbróðir og hins vegar alræmdur útrásarauðmaður. Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ætlar að ,,sækja inn á miðjuna," samkvæmt Moggaviðtali í dag, einmitt þangað sem Katrín Júlíusdóttir er stödd.

,,Miðjan" í munni íslenskra stjórnmálamanna hefur ekkert með vinstri og hægri að gera. Hugtakið er afsökun fyrir mórölsku máttleysi sem tröllríður húsum íslenskra stjórnmála.

Þjóðin þarf skýrmælta stjórnmálamenn sem taka ótvíræða afstöðu í meginmálum. Er það til of mikils mælst?


Linkan felldi Sjálfstæðisflokkinn

Sjálfstæðisflokkurinn féll vegna þess að baráttuþrekið þvarr með því að undanhaldsstjórnmál voru sett í öndvegi þar sem áður ríkti stefnufesta. Greining Bjarna Benediktssonar á vanda flokksins er moðkennd og gælir við sama hugsunarhátt undanhalds og einkenndi valdatíð Geirs H. Haarde.

Linkan náði hámarki þegar Sjálfstæðisflokkurinn féllst á kröfu Samfylkingar haustið 2008 að efna til landsfundar um afstöðuna til Evrópusambandsins. Flokkur sem lætur grillupólitíkusum annarra flokka segja sér fyrir verkum er ekki á vetur setjandi.

Bjarni Benediktsson verður að vera ótvíræðari í meginmálum ef hann ætlar ekki að fara sömu leið og síðasti formaður. Til dæmis átti hann í viðtalinu að krefjast þess að ríkisstjórnin drægi tilbaka umsóknina um aðild Íslands að Evrópusambandinu. 

Formaður Sjálfstæðisflokksins greinir stöðu ríkisstjórnarinnar í ESB-málinu rétt. En í stað þess að standa í lappirnar og krefjast fyrir hönd þjóðarinnar að umsóknin verði dregin tilbaka kemur Bjarni með linkuloðmullu um að umsóknin sé farin og að það verði þjóðaratkvæðagreiðsla. Lélegt.


mbl.is Valdþreyta alllöngu fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómgreind Kastljóss bilar

Hraðsoðin frétt í Kastljósi í gærkvöldi sagði að Ögmundur Jónasson þingmaður hefði verið drukkinn við atkvæðagreiðslu á Alþingi. Fréttin var ályktun fréttamanns á svari Ögmundar við fyrirspurn frá Kastljósi um viðtal, en þar baðst þingmaðurinn undan viðtali vegna þess að hann hafði innbyrt áfengi. Kastljósmaðurinn sem fékk afsvar frá Ögmundi gekk úr skugga um að hann hafi greitt atkvæði eftir að hafa hafnað viðtali.

Hér hefur orðið bilun í dómgreind ritstjórnar Kastljóss. Afsvar Ögmundur á viðtalsbeiðni réttlætir ekki frétt um að hann hafi verið drukkinn á þingi. Ef þingmaður kýs að hafna viðtali af því að hann hefur fengið sér vínglas er langsótt, svo vægt sé til orða tekið, að ásaka hann um að vera drukkinn við þingstörf.

Ritstjórn Kastljóss hrapaði að ályktun sem ekki stenst. Ritstjórnin ætti að gera það eina rétta í stöðunni; að biðja Ögmund afsökunar á því að hafa hlaupið á sig.


Bloggfærslur 19. desember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband