DV ,,pönkast"

Reynir Traustason ritstjóri DV náðist á upptök segjast ,,pönkast" í manni og öðrum og jafnframt að hann hlífði þeim sem útgáfan væri fjárhagslega háð. Í því ljósi ætti allt sem kemur frá DV að fara beint í ruslatunnu óminnis.

Baugur í gegnum Hrein Loftsson heldur uppi útgáfunni sem fær hvorki lesendur né auglýsendur enda afurðin slík að mannorðsskemmdir blasa við þeim sem leggja lag sitt við blaðið.

Það er til marks um undarlegt eftirhrunsástand þjóðfélagsins að DV sé haft til annars en sem viðmið fyrir lágkúrulegustu blaðamennsku sem hugsast getur.


Vammir, skammir og endurreisn

Hrunið er þjóðarhneisa vegna þess að það afhjúpaði getuleysi samfélagsins gagnvart græðgisvæddum bankadrengjum með einbeittan brotavilja. Við erum í miðjum klíðum að reyna hvorttveggja í senn að skilja hvernig okkur mistókst jafn herfilega og raun ber vitni og að endurreisa atvinnulíf og tiltrú á getu þjóðarinnar til að búa hér sæmilega.

Í umræðunni eru hlutverkin ekki samkvæmt forskrift. Ætla mætti að þeir eldri myndu temja sér varkárni og yfirvegun, leggja áherslu á það sem til var fyrir hrun og mætti endurreisa en þeir yngri kannski óþolinmóðari og taka fram sleggjuna fremur en tálga gagnrýni með vasahníf. Tvö dæmi um blogg á þessum sólarhring sýna gagnólíka nálgun tveggja kynslóða.

Jónas Kristjánsson blaðamaður og fyrrum ritstjóri les þjóðinni pistilinn og kallar hana aumingja í afneitun fyrir að samþykkja ekki Icesave-frumvarpið og kjósa yfir okkur, á sínum tíma, Davíð Oddsson.

Hans Haraldsson háskólanemi varar við öfgum í umræðunni og gagnrýnir þá sem láta í veðri vaka að spilling sé nánast íslensk uppfinning og að hér hafi allt verið í kaldakoli, jafnvel löngu fyrir hrun.

Við sem þjóð erum eilítið úr jafnvægi þessa stundina og verðum líklega um sinn. Eins gott að fáir skilji íslensku úti í heimi.

 


Bloggfærslur 13. desember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband