Fimmtudagur, 10. desember 2009
Ómar á launum hjá Samfylkingu?
Ómar Valdimarsson bloggar í dag og gær færslur er gætu verið ritaðar á skrifstofu Samfylkingarinnar. Í fyrra tilvikinu er Ögmundur Jónasson gerður tortryggilegur og seinni færslan hefur eftir ónefndum heimildamönnum innanlands og utan að óhætt sé að samþykkja Icesave-frumvarpið vegna þess að Evrópusambandið mun borga þetta fyrir okkur.
Ómar Valdimarsson er almannatengill. Alþjóðlegt starfsheiti Ómars er liar for hire, sem útleggst lygari til leigu. Ómar gerði lesendum sínum greiða með því að merkja hvaða blogg er kostað hjá honum og hvað er skrifað fyrir eigin reikning.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Fimmtudagur, 10. desember 2009
Stolið af sparnaði
Verðbólga er 8,6 prósent samkvæmt síðustu mælingu. Landsbankinn býður 3-6 prósent vexti, samkvæmt vaxtatöflu. Þetta þýðir að sparifé rýrnar um tvö til fimm prósent, sé það geymt á sparnaðarreikningi.
Vextir eru of lágir þegar bankar geta ekki boðið sparifjáreigendum raunávöxtun. Eftir áratug útrásar, sem fjármögnuð með óhóflegri skuldsetningu, er ótækt að skuldarar stjórni efnahagspólitíkinni.
![]() |
Landsbankinn lækkar vexti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 10. desember 2009
Verðmiði Icesave er pólítískur
Alþingi samþykkti Icesave-lög í sumar og þau gilda. Bretar og Hollendingar geta hvenær sem er fallist á Icesave-lögin og málið er dautt. Í lögunum eru fyrirvarar sem eðlilegt er að þjóðin setji. Enginn getur sagt að við ætlum ekki að axla ábyrgð, við höfum samþykkt að virkja ríkisábyrgð á Icesave-reikningum. Einfalt og auðvelt er að útskýra fyrir nágrannaþjóðum okkar að þeir fyrirvarar sem við settum séu gerðir í efnahagslegri sjálfsvörn.
Ef ríkisstjórnin væri í takt við þjóð og þing myndi hún einfaldlega hafa sagt Bretum og Hollendingum síðsumars að þetta sé það besta sem Ísland getur boðið.
Ríkisstjórnin er á hinn bóginn meira í mun að þóknast hagsmunum Breta og Hollendinga. Þess vegna kom ríkisstjórnin með nýtt frumvarp sem afnemur fyrirvara í lögunum frá í sumar. Frumvarpið er pólitísk handvömm sem ríkisstjórnin situr uppi með. Úr því sem komið er verður ríkisstjórnin að falla um leið og frumvarpið.
Verðmiði Icesave er pólitískur og alþjóðleg pólitísk mynt er stjórnarkreppa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 10. desember 2009
Icesave fellur og við fáum nýtt upphaf
Icesave-frumvarpið er í óþökk allra nema vinstrivaldakíkunnar, Samfylkingar og tækifærishluta Vg, sem illu heilli situr stjórnarráðið. Frumvarpið þarf að falla til að þjóðin fái viðspyrnu í efnahagsmálum og trú á framtíðina. Rökrétt rás atburða er eftirfarandi.
Icesave-frumvarpið er fellt á Alþingi og ríkisstjórnin segir af sér. Vinstri grænir, mínus Steingrímur J., mynda minnihlutastjórn í skjóli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Minnihlutastjórnin situr út 2010 og kosningar verða haldnar í febrúar/mars 2011.
Við þetta skapast vinnufriður í samfélaginu því að búið er einangra uppsprettu eiturstjórnmála síðustu ára, Samfylkinguna.
![]() |
Meirihluti vill kjósa um Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)