Mánudagur, 9. nóvember 2009
Ísland, Þýskaland og ESB
Sameining Þýskalands og flutningur höfuðborgarinnar frá Bonn til Berlínar markar tímamót í eftirstríðsárasögu Evrópu. Eftir seinna stríð var álfunni skipt í austur og vestur. Bandaríkin héldu lífi í vesturhlutanum með Marshall aðstoð og hervernd en Sovétríkin réðu lögum og lofum fyrir austan.
Þýska sameiningin og tilfærslan austur á bóginn felur í sér að landpólitík Þjóðverja beinist að gömlum áhrifasvæðum á þar sem núna er Pólland, Eystrasaltslönd, Úkraína, Hvíta-Rússland og sjálft Rússland.
Þýskaland er þungavikt í Evrópusambandinu. Til að auka á austurhneigð Sambandsins eru flest nýlöndin á þeim slóðum; Rúmenía, Búlgaría, Króatía.
Norðurslóðir verða áfram nokkurt áhugamál Evrópusambandsins, einkum vegna auðlinda. Auðvelt er að sjá fyrir sér aðstæður þar sem álitamál í norðri væru til úrlausnar á sama tíma og samskipti í austurvegi væru til umfjöllunar. Í norðri og austri er helsti viðsemjandi Evrópusambandsins sá hinn sami; Rússland.
Í hrossakaupum við Rússland, þar sem annars vegar væru auðlindahagsmunir í norðri og hins vegar togstreita í austri, yrðu íslenskir hagsmunir eins og krækiber í helvíti - ef við létum Evrópusambandið um okkar málefni.
Eitt og sér getur fullvalda Ísland tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi um norðurslóðir þar sem Bandaríkin, Evrópusambandið, Rússland, Kanada og Noregur eiga aðkomu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 9. nóvember 2009
Skattar, fullveldi og réttlæti
Ríkisstjórnin er á dauðastigu hærri skatta, tapaðs fullveldis og réttlætis sem sópað er undir teppið. Utanaðkomandi gætu haldið að ríkisstjórnin reyndi sitt ítrasta til að sýnast óskynsöm, óbilgjörn og ótuktarleg. Og tekst það nokkuð vel.
![]() |
47% skattur á launatekjur? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 9. nóvember 2009
Launalöggan ASÍ
Alþýðusambandið var einu sinni baráttusamtök launafólks fyrir bættum kjörum. Á síðari árum hagar ASÍ sér oft sem stjórnvald án umboðs. Skrifstofulið ASÍ mótar stefnu í málaflokkum sem ekki endilega koma þeim við og berja á stjórnvöldum að lækka vexti eða ganga í Evrópusambandið, svo að tvö dæmi sé tekin af handahófi.
Eyjan segir frá bloggi Ragnars Þórs Ingólfssonar sem teflir fram upplýsingum að Alþýðusambandið sé orðin að launalöggu sem berji niður umsamdar launahækkanir.
Möguleg skýring á launalækkunarstefnu ASÍ er að kontóristarnir vilji fyrir hvern mun fækka gjaldþrotum fyrirtækja vegna þess að það muni auka afskriftir lífeyrssjóðanna. ASÍ-elítan mannar lífeyrissjóðina og aukar afskriftir gætu orðið til þess að óþægilegar spurningar vaki um starfshætti elítunnar á útrásartímabilinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 9. nóvember 2009
Pirraður Steingrímur J.
Formaður Vg var áberandi pirraður í Sjónvarpsfréttum fyrr í kvöld þegar hann var spurður hvort þingmenn Vinstri grænna fylktu sér um Icesave-frumvarpið, sem nú kemur fyrir þingið í annað sinn í sérstöku boði Breta og Hollendinga og ríkisstjórnarinnar.
Steingrímur J. var spurður hvort hann hefði alla þingmenn flokksins um borð í málinu og hann kvaðst þreyttur að ræða málið á þessum forsendum.
Auðvitað vill formaðurinn leggja til forsendurnar sjálfur, sem hann og gerði í viðtalinu. Forsendurnar eru þær helst að þetta sé úrvalsgóður samningur sem í einn stað er veðsetning framtíðarkynslóða Íslandsbarna og í annað stað tryggir að Steingrímur J. þarf ekki að segja af sér fyrir stærsta samningaklúður Íslands frá 1262.
Steingrímur J. er leggur framtíð þjóðarinnar að veði fyrir persónulegan frama. Það er dálítið pirrandi að vera minntur á það.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)