Föstudagur, 30. október 2009
Fyrir afskriftir á skuldum Baugsfeðga...
...þarf að
- rétta af halla ríkissjóðs en feðgarnir eiga þar hlut að máli.
- tryggja samkeppni á matvörumarkaði, þar sem feðgarnir ráða einu og öllu.
- knýja feðgana til að borga skattaskuldir sínar.
- fá tilbaka heilbrigða viðskiptahætti en þar eru feðgarnir meinsemd.
- leggja af Baugsútgáfuna sem er lygamaskína feðganna.
- gera Ísland heiðarlegra en með Baugsfeðga virka í atvinnulífinu er það ekki hægt.
![]() |
Kaupþing eignast móðurfélag Haga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Föstudagur, 30. október 2009
Stjörnulögmenn skemma mannorð
Venjulegt fólk sem að ósekju er handtekið þarf ekki á þjónustu stjörnulögmanna að halda. Stjörnulögmenn eru fyrir þá sem hafa eitthvað að fela. Þeir sem kaupa almannatengslaþjónustu hjá lögmönnum eru iðulega haldnir ranghugmyndum um að til sé fjölmiðlaréttlæti sem standi ofar öðru réttlæti.
Almannatenglaþjónusta lögmanna staðfestir skemmt mannorð.
![]() |
Lögreglan neitaði að handtaka konuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 30. október 2009
Tvær forsíður, tveir heimar
Tvær aðalfréttir á forsíðu Morgunblaðsins í dag voru annars vegar um fjárlagafrumvarpið og hins vegar um greiðslujöfnun heimilanna. Fréttablaðið var með forsíðuppslátt um að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn teldi afrek hversu hratt tækist að endurreisa bankana. Í gær var aðalfréttin með þessari fyrirsögn: Jóhanna segir allt á uppleið.
Munurinn á Morgunblaðinu og Fréttablaðinu er sá að fyrrnefnda útgáfan stundar blaðamennsku en hin auglýsingamennsku.
Blaðamennska gerir ráð fyrir gagnrýnu viðhorfi, auglýsingamennska að barið sé í brestina í þágu þess sem borgar reikninginn.
Hver borgar reikninginn fyrir Fréttablaðið?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 30. október 2009
Aumingjavæðing þjóðar
Stefna ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur er að aumingjavæða þjóðina. Markmiðið er að gera frjálsa einstaklinga að bónbjargarfólki. Hönnun aumingjavæðingarinnar er í höndum Samfylkingar annars vegar og hins vegar spillta kúlulánaliðsins sem vill fela fávísa græðgishegðun sína með því að gera sjálfbjarga menn að ómögum.
Ríkisstjórnin ætlar því sem næst að þvinga almenning til að breyta gerðum samningum um afborganir af húsnæðislánum og setur skilvísa undir sama hatt og óreiðufólk.
Vitað er að innan við fimmtungur þjóðarinnar átti við fjármálavanda að etja. Þegar frá eru talin viðrini sem eru með allt niðrum sig í góðæri sem hallæri eru kannski um tíundi hluti þjóðarinnar sem þarf sérstök úrræði.
Í stað þess að mæta þörfum tíunda hluta þjóðarinnar um sérstök úrræði er þjóðin öll aumingjavædd, gerð að vesalingum með einu pennastriki Samfylkingarinnar.
Tilgangurinn er að koma kúlulánaliðinu í skjól almennings. Eins og kom í ljós við meðferð Alþingis á þessu samfylkingarfrumvarpi var reynt að smygla inn í það sérákvæðum um skattameðferð á afskrifum kúlulánaliðsins. Ráðherra Vinstri grænna stöðvaði þann anga ófagnaðarins en hefði auðvitað átt að bremsa allt frumvarpið.
Afgangar útrásarinnar sitja enn að völdum.
![]() |
Allir fá greiðslujöfnun nema þeir biðji um annað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)