Fimmtudagur, 29. október 2009
Siðasnauð lagatækni Hæstaréttar
Kröfur um strangari lög verða háværar eftir þennan dóm Hæstaréttar. Dómurinn virðist í saminn í anda útrásarsiðferðis sem teygði og togaði lög, reglur og venjur til að þjóna siðasnauðri lagatækni.
Hnefarétturinn verður ekki fegraður með húðflúri lagatækninnar. Dómurinn segir að stjórnir megi snuða hluthafa hlutafélaga með því að hygla ráðandi hluthöfum.
Viðskiptasiðferði er bágt á Íslandi og Hæstiréttur er smitaður.
![]() |
Skelfileg skilaboð frá Hæstarétti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 29. október 2009
ESB-áróður undir dulnefni
Eiríkur Bergmann Einarsson er hvað ötulastur áróðursmanna fyrir Evrópusambandsaðild Íslendinga og tvöfaldur í roðinu samkvæmt bloggaranum Hauki Nikulássyni sem afhjúpaði að Eiríkur Bergmann skrifar undir dulnefninu Jón Gunnar Sigvaldason.
Aðildarsinnar hafa löngum ýkt rökin fyrir inngöngu Íslands í ESB. Þegar þeir skálda líka upp nöfn til að fjölga í hópi aðildarsinna er fokið í flest skjól.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)