Laugardagur, 10. janúar 2009
Það sem sjálfstæðismenn fatta ekki
Pólitísk forsaga bankahrunsins er frjálshyggja Sjálfstæðisflokksins sem aftur var íslensk innleiðing á Thatcherisma og Reaganfræðum. Þegar Davíð Oddsson, þáverandi formaður, áttaði sig á græðgisuppvakningunni var of seint í rassinn gripið. Davíð reyndi að koma böndum á peningaofbeldið. Hann gerði það táknrænt þegar hann tók út af reikningi Kaupþings þegar honum ofbauð sjálftekt forstjóra og stjórnarformanns. Hann reyndi að setja lög á fjölmiðlaöfgar auðmannanna en var gerður afturreka.
Auðjöfrar sóttu sér pólitískt bakland í Samfylkingunni þegar formaður Sjálfstæðisflokksins vildi ekki spila með. Sjálfstæðisflokkurinn var skilinn eftir í kjölsogi nýauðvaldsins. Davíð kvaddi og Geir tók við keflinu og setti sér það markmið að halda sjó.
Bankahrunið afhjúpaði öfgar frjálshyggjunnar. Eftir situr Sjálfstæðisflokkurinn og veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Og hvað gerist þá? Jú, um að gera að drepa brýnum málum á dreif, tölum um Evrópu í nokkrar vikur. Evrópunefnd er sett á laggirnar og bókað að aðalefni landsfundar skuli vera umræða um inngöngu í Evrópusambandið. Útrásarglýjan víkur fyrir blekkingu frá Brussel.
Áramótaútgáfa Andríkis segir allt sem segja þarf um skynsemi Evrópuumræðunnar þegar hún tilefnir rökstyðjara ársins þingmann Sjálfstæðisflokksins:
Rökstyðjari ársins: Ragnheiður Ríkarðsdóttir lýsti því yfir að hún vildi ganga í Evrópusambandið. Jafnframt vildi hún að farið verði í aðildarviðræður við Evrópusambandið, að kannaðir verði kostir og gallar þess sambands fyrir íslenska þjóð".
Það sem sjálfstæðismenn fatta ekki er eftirfarandi: Frjálshyggjan er dauð sem pólitísk stefna, bæði á Íslandi og Vesturlöndum. Borgaralegir flokkar, þ.e. þeir sem eru með ráði og rænu, fara í hugmyndahirslur sínar og leita að rykföllnum verðmætum. Borgaralegar dyggðir eins og ráðdeild, ábyrgð, hófsemi, þegnskapur verða viðbrögð við yfirfalli útrásarinnar.
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að rekja sig tilbaka að grunngildunum og spyrja sig í leiðinni hvers vegna svona hrapallega tókst til. Á þeirri vegferð er hætt við að sumir heltist úr lestinni. Mistök á Richter-skala krefjast fórnarlamba. Valið stendur á milli þess að Sjálfstæðisflokkurinn taki til í sínum ranni eða að móðurflokkur íslenskra stjórnmála falli.