Þriðjudagur, 23. desember 2008
Gjaldþrot Baugs yrði góð landkynning
Ásamt fjármálafyrirtækjum er Baugur andlit útrásarinnar. Í Danmörku brenndi Baugur upp orðstír Íslands með fíflalegu dagblaðsævintýri kenndu við Nyhedsavisen og gerði Íslendinga að hrokafullum hálfbjánum með kaupum á þekktum verslunum í höfuðborg Danaveldis. Þær verslanir hafa ekki skilað arði í áravís en Baugur þóttist kunna það - en kann auðvitað ekki annað en að taka snúninga með ódýr lán.
Bretar horfðu upp á Baug kaupa verslunarkeðjur í nafni íslenska viðskiptamódelsins sem átti að sigra heiminn. Aftur var það græðgisgíruð fíflska sem réð för; ódýr lán og nokkrir snúningar. Sóðaskapur Baugs í Bretlandi byrjaði með gjaldþroti MK One og heldur áfram með Whittard. Tíu prósentin í Woolworths eru lítil varða á stuttri en skammarlegri sögu.
Baugur hefur ekki keypt eitt einasta fyrirtæki hér heima eða erlendis og selt það aftur með hagnaði. Nema auðvitað Sterling flugfélagið sem Baugur, Pálmi í Fons og FL-group keyptu og seldu sín á milli með milljarða hagnaði í hvert sinn. Hreinn Loftsson stjórnarmaður í Baugi nefndi það raunveruleg viðskipti" þegar hann keypti sorpútgáfuna DV af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni aðaleiganda Baugs. Þar með viðurkenndi Hreinn óbeint að öll önnur viðskipti Baugs væru sýndarviðskipti.
Skilanefndir bankanna eiga að vinna í þágu þjóðarinnar sem á bankana. Það er í þágu þjóðarinnar að Baugur fari í gjaldþrot.
Gleðileg jól