Mánudagur, 15. desember 2008
Enginn skrifar edrú um Jón Ásgeir - á DV
Þegar Reynir rægir blaðamanninn og sakar hann um að vera ekki starfi sínu vaxinn svarar Jón Bjarki með því að birta upptökuna. Reynir er afhjúpaður ekki aðeins sem auvirðilegur lygari heldur líka mannorðsþjófur af verstu sort sem gerir tilraun til að níða skóinn af ungum blaðamanni sem hefur meiri siðferðisþrek en samanlögð ritstjórn DV.
Í viðtali í Kastljósi í kvöld var Jón Bjarki spurður um ásakanir Reynis að hann hafi ekki skrifað nærmynd af Jóni Ásgeiri Jóhannessyni svaraði Jón Bjarki því til að umræðan um þau skrif hafi verið eftir nokkra bjóra niðrí bæ. Og það er auðvitað; ritstjórar DV þurfa að drekka í sig kjark til að nefna Jón Ásgeir á nafn.
Ef DV heldur áfram að koma út hlýtur ritstjórnin að sjá sóma sinn í að skrifa þennan inngang að hverri frétt: Eigendur DV hafa samþykkt birtingu.
![]() |
Upptaka af útskýringum ritstjóra DV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |