Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Brennuvargur biðst griða
Rökstuðningurinn fyrir tillögunni um fjölmiðlaráð var kauðalegur og svo virtist sem einhver væri að gera grín að Jóni Ásgeiri; látið hann fá texta sem forstjórinn skrifaði upp á en orðin bara himinblámahjal. Á eftir málsgrein um að fréttastjórar hinna þriggja fjölmiðla Baugs eigi að gæta ,,hlutleysis" og ,,réttlætis í fréttaflutningi" kom þessi fyrirvari: ,,Það ber þó að hafa það í huga að hlutverk fréttastofu er að flytja fréttir en ekki breiða út hugmyndir sínar um hlutleysi og réttlæti." Hugmyndin um ,,réttlæti í fréttaflutningi" er ný af nálinni í fjölmiðlaumræðu á Vesturlöndum og svo fullkomlega framandi höfundi textans að hann skýtur hana niður í fyrirvaranum.
Enda fór það svo að ekkert fjölmiðlaráð var skipað. Brennuvargurinn hélt áfram fyrri iðju að brenna upp fagmennsku og trúverðugleika þeirra fjölmiðla sem hann komst yfir.
Núna stendur hann yfir rústunum og biður griða.
![]() |
Tilbúinn til að fara niður fyrir 40% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 6. nóvember 2008
Er Þóra alki?
Í myndmáli fréttarinnar, myndskeiði sem var sýnt með vitðtalinu, eru útigangsmenn sýndir súpa sig. Er Þóra Kristín blaðamaður sem skráður er fyrir fréttinni þyrst?
Leiðrétting: Útigangsmennirnir sem sýndir eru í myndskeiði fréttarinnar eru að fá sér smók. Langar Þóru í rettu?
![]() |
Við hættum frekar við lánið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)