Björgólfsviðtal: Bankaskessan og dvergurinn

Björgólfur Guðmundsson fyrrum aðaleigandi Landsbanka lýsti sínu sjónarhorni á síðustu daga bankanna í Kastljósviðtali í kvöld. Eftir að Glitnir var kominn í þrot gerðu Landsbankamenn ríkinu tilboð um að sameina Landsbanka, Glitni og Straum þar sem Björgólfur og sonur ráða ríkjum. - Það var bara ekkert talað við okkur, segir gamli maðurinn.

Ríkisvaldið var dvergurinn sem glímdi við bankaskessu og vissi ekki í hvort fótinn hann átti að stíga vegna þess að skessan bar þrjú höfuð sem talaði hvert með sinni tungunni.

Eigendur bankanna höfðu með sér margvíslegt samráð. Þannig lánaði Landsbanki Björgólfsfeðga í fjölmiðlataprekstur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Á móti lánaði Glitnir, banki Jóns Ásgeirs, peninga í taprekstur Björgólfs á Morgunblaðinu og 24 stundum. Í fjármálageiranum var talað um að bankarnir hefðu „kvóta" hver hjá hinum.

Þrátt fyrir samráð talaði bankaskessan ekki einum rómi. Glitnir, Landsbanki og Kaupþing gátu ekki sameinast um viðbragðsáætlun þegar óveðursskýin hrönnuðust upp. Skýringuna er líkast til að finna í orðum Björgólfs í viðtalinu í kvöld: - Kannski var dálítil græðgi í bankastarfseminni, sagði hann. Græðgi eykur ekki samstöðu.

Bankaskessan er dauð, en dvergurinn lifir.


Jón Ásgeir selur Jóni Ásgeiri, var Sterling tekinn á 365 miðla?

Jón Ásgeir var beggja vegna borðsins í viðskiptum með 365 miðla. Forstjórinn þar á bæ, Ari Edvald, gaf til kynna að Landsbankinn hefði lánað Jóni Ásgeiri peninga. Ef það hefið verið látið standa voru skilaboðin þau að Jón Ásgeir Jóhannesson nyti lánstrausts til að véla áfram með fyrirtæki.

Það  væri ótrúlegt að Landsbankinn eða annar íslenskur banki myndi lána Jóni Ásgeiri. Ennþá ótrúlegra er útlendur banki láni honum. Var ekki bara tekinn Sterling á þetta - engir peningar bara pappírar?


mbl.is Lánið ekki frá innlendum bönkum segir Jón Ásgeir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langtímahagsmuni fram yfir skammtíma

Við erum í valþröng en höfum efni á þolinmæði, þótt fjölmiðlar láti eins og himinn og jörð séu að farast. Vafi leikur á lagalegu og þjóðréttarlegu réttmæti krafna Breta og Hollendinga. Ríkisstjórnin á að koma með eins gott tilboð og hún telur gerlegt en bjóða annars að setja málið í gerð.

Ef Bretar og Hollendingar hafna tilboðinu og vilja ekki gerð þá eigum við að taka slaginn. Ef það þýðir að við segjum okkur frá láni Alþjóða gjaldeyrissjóðsins verður svo að vera. Við höfum tíma til að vinna eftir diplómatískum leiðum og koma sjónarmiðum okkar á framfæri. Það finnst lausn á málinu áður en götueldhús verður sett upp á Laugavegi.

Langtímahagsmunum má ekki fórna fyrir glæfralegar skyndilausnir.

 


mbl.is Enginn góður kostur í stöðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 13. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband