Auðmannasamfylking Fréttablaðsins vill ESB

Með samspili forsíðufréttar og leiðara kyndir Fréttablaðið í dag undir óöryggi í samfélaginu og elur á taugaveiklun. Ritstjóri blaðsins stillir ríkisstjórninni upp við vegg og krefst stjórnvaldsákvarðana sem myndu valda pólitísku fárviðri.

Forsíðufréttin, „Stendur á svörum hjá ráðamönnum," er bergmál af upphrópunum í samfélaginu þar sem látið er líta svo út að ráðherrar vilji ekki svara þegar þeir vita ekki svörin. Ríkisstjórnin veit ekki hvenær eða hvort Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur til afgreiðslu umsókn Íslands. Það er hrein skemmdarverkastarfsemi að láta að því liggja ríkisstjórnin geri sér að leik að sitja á upplýsingum.

Þorsteinn Pálsson ritstjóri skrifar leiðara um æsingarástand sem forsíðufréttin pískar upp. Kjarninn í leiðaranum er þessu:

Eins og málin horfa við sýnist ríkisstjórnin tvístíga milli tveggja kosta. Annar er sá að láta ólguna taka yfir á næstu vikum. Hinn er sá að kalla án tafar eftir þríhliða samstarfi ríkisvaldsins, Alþýðusambandsins og Samtaka atvinnulífsins.

Um hvað á slíkt samstarf að snúast? Það er skýrt: Fyrst og fremst að ákveða evru sem framtíðargjaldmiðil fólksins í landinu. Samhliða þarf að taka ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu. Jafnframt þarf að ná samstöðu þessara þjóðfélagsafla um bráðaaðgerðir til að halda atvinnufyrirtækjum gangandi og koma í veg fyrir fjöldagjaldþrot heimila.

Ef vilji ríkisstjórnarinnar stendur til samstöðu sýnist ekkert standa í vegi fyrir því að svo verði. En þetta er eina leiðin. Aðrir kostir eru ekki í augsýn. Það sem meira er: Samstaða af þessu tagi verður ekki að veruleika nema ríkisstjórnin sjálf taki frumkvæðið. Til þess hefur hún í mesta lagi nokkra daga.

Móðursýkislegt ákall um að aðeins nokkrir dagar séu til stefnu vekur grunsemdir um annað tveggja að ritstjórinn sé sjálfur að fara á taugum eða útgerð Fréttablaðsins, sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, sé að sigla í strand.

Tillaga Þorsteins um að sækja um aðild að Evrópusambandinu er til þess fallin að sundra þjóðinni. Það er eftirtektarvert að helstu talsmenn aðildar gera sér far um að hræða þjóðina til fylgilags við Evrópusambandið. Með blekkingum um að landið sé nánast að leggjast í auðn á að þvinga okkur í skrifborðsskúffu Brusselvaldsins. Hvað gengur Auðmannasamfylkingunni til?


Bloggfærslur 12. nóvember 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband