Þriðjudagur, 14. október 2008
Einkavæðing í boði SA og Samfylkingar
Samtök atvinnulífsins og Samfylkingin sammælast um þá kröfu að stjórnvöld fái Alþjóða gjaldeyrissjóðinn til að markaðsvæða Ísland. Velferðarkerfið skal einkavætt og heilbrigðiskerfið líka.
Forysta Samfylkingarinnar, sem einu sinni var vinstriflokkur, hefur á síðustu misserum æ ofan í æ boðað markaðslausnir sem bjargráð. Í miðju bankahruninu, sem er bein afleiðing af einkavæðingu liðinna ára, myndi venjulegur flokkur með rætur í verkalýðshreyfingu og jafnaðarstefnu staldra við og endurmeta stöðu sína.
En nei, Samfylkingin forherðist. Flokkurinn tekur undir nýfrjálshyggjutrúboðið sem er búið að leggja dauða hönd sína á hagkerfi heimsbyggðarinnar með afleiðingum sem allir sjá - nema forysta Samfylkingarinnar.
Verkefni næstu vikna, mánaða og missera er að vinda ofan af græðgisvæðingu síðustu ára. Við þurfum ekki á aukinni markaðsvæðingu að halda.
Samfylkingin þarf ásamt útrásarvíkingunum á endurhæfingu að halda.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 14. október 2008
Baugsblöff
Viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs gerir skammarlega lágt tilboð í eigur Baugs. Það er líka látið berast til fjölmiðla, svo að almenningur geti hneykslast. Svo dúkkar upp aðili sem enginn veit hver er, gjarnan með bandarískt heimilisfang, og gerir tilboð sem er nokkru hærra.
Plottið gengur út á það að skilanefndir bankanna selji óþekkta aðilanum Baugseigur á útsöluverði. Þegar búið er að skrifa undir kemur í ljós að óþekkta stærðin er frontur Greens og Jóns Ásgeirs. Sniðugt.
![]() |
Green vildi kaupa skuldir Baugs með 95% afslætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)