Þriðjudagur, 18. september 2007
FL group eykur gjaldþolið með sjóðum TM
Hannes Smárason forstjóri FL group sagði í fréttum Útvarps að Tryggingamiðstöðin verið rekin sem dótturfélag FL group sem þar með stýrir fjármagnsflæði tryggingafélagsins. Hannes viðurkenndi að hér væri um stefnubreytingu að ræða þar sem FL group er fjárfestingafélag sem lifir á því að kaupa og selja verðbréf. Forstjórinn kom ekki með neina skýringu á því hvers vegna hann ætlar að reka tryggingafélag á meðan hann höndlar með bréf í American Airlines og Commerzbank.
Með því að komast yfir digra sjóði Tryggingamiðstöðvarinnar kaupir FL group sér tíma sem félagið sárvantar í niðursveiflu verðbréfamarkaða síðustu vikna. Hlutabréfamarkaðurinn sýndi í gær velþóknun á yfirtökunni. Bréf FL group lækkuðu ekki nema um 0,4 prósent á meðan bréf annarra fjármálafyrirtækja lækkuðu á bilinu 2-4 prósent.
FL group hefur, bæði innan og utan landsteinana, orð á sér fyrir skammtímahugsun í fjárfestingum sínum. Hluthafar í Finnair hafa lagst gegn því að íslenska fjárfestingafélagið komist í ökumannssætið í stjórn finnska flugfélagsins. Finnarnir vilja sjá félagið dafna til lengri tíma og það kallar á aðrar áherslur en hákarlakapítalisma.
Með yfirtöku á Tryggingamiðstöðinni eykst gjaldþol FL group. Aftur er ólíklegt að starfsfólk og viðskiptavinir tryggingafélagsins horfi fram á bjarta daga. Það er vafa orpið hversu lengi núverandi einkunnarorð verða í heiðri höfð:
Tryggingamiðstöðin er framsækið og metnaðarfullt fyrirtæki sem býður starfsfólki sínu góða vinnuaðstöðu. Hjá TM starfar um 130 manna samhentur hópur sem hefur það markmið að veita góða þjónustu á mannlegum nótum þar sem þörfum hvers og eins er mætt af sanngirni.
Dægurmál | Breytt 19.9.2007 kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)