Þegjandi samkomulag um ólöglegt erlent vinnuafl

Óskráðir erlendir launamenn dúkkuðu allt í einu upp á sjúkraskrám þegar rútuslys varð í Fljótsdal liðna helgi en voru hvergi annars skráðir. Slysið afhjúpaði þegjandi samkomulag um lögleysuna sem látin er viðgangast á hálendinu.

Þenslan á vinnumarkaði undanfarin ár hefur skapað viðskiptatækifæri fyrir innflytjendur á vinnuafli sem greiða launþegum lægri laun og búa þeim verri aðstæður en tíðkast hjá íslensku launafólki.

Eftir fjölmiðlaumræðu fyrir nokkrum misserum og þrýsting frá verkalýðsfélögum var gerð gangskör í að bæta eftirlit með erlendu vinnuafli í byggð. Hálendið var aftur á móti tekið út fyrir sviga og þar látin viðgangast félagsleg undirboð, ekki síst til að tryggja framgang virkjanaframkvæmda.

Spillingin sem þrífst í skjóli ólögmæts innflutnings á erlendu vinnuafli er á ábyrgð stjórnvalda. Óátalin grefur spillingin undan lífskjörum íslensks launafólks í bráð og lengd.

Þótt fjölþjóðlegir samningar kveði á um frjálsa för launafólks er stjórnvöldum í lófa lagið að stemma stigu við óheftum innflutningi á vinnuafli. Það er viðurkennd stjórnsýsla að notendur borgi fyrir nauðsynlegt eftirlit með viðkomandi starfsemi.

Reynslan hefur sýnt að bráðnauðsynlegt er að stórefla eftirlit með innflutningi á erlendu vinnuafli. Stjórnvöld ættu að þekkja sinn vitjunartíma og búa svo um hnútana að það verði innflytjendum erlends vinnuafls verulega dýrara en það er núna að flytja inn láglaunafólk í samkeppni íslenskt vinnuafl.

Hér er spurt um pólitískan vilja.


Bloggfærslur 29. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband