Heimsmeistarabræður grafa ekki stríðsöxina

Bræðurnir Bobby og Jack Charlton urðu heimsmeistarar í fótbolta árið 1966 þegar enska landsliðið náði síðast í markverðan titil í knattspyrnu. Óvinátta þeirra varpar skugga á endurfundi liðsins sem sigraði Vestur-Þjóðverja 4-2 á Wembley.

Bobby spilaði fyrir Manchester United og en Jack fyrir Leeds. Rígurinn á knattspyrnuvellinum fór þó ekki með samband bræðranna heldur fjölskyldudeilur.

Eiginkona Bobby lenti upp á kant við móður bræðranna. Bobby og eiginkonan Norma slitu á samskipti við móðurina. Þegar móðirin lá banaleguna fékkst Bobby ekki til að sættast og Jack fannst það heldur bág frammistaða hjá yngri bróður.

Fyrir tíu árum lét Jack miður falleg orð falla í fjölmiðlum um Normu og ábyrgð hennar á deilunum. Bobby, sem er aðlaður og heitir sir að fornafni, hefur ekki fyrirgefið Jack að halla orði á eiginkonuna og bræðurnir verið saupsáttir síðan.

Bobby vantar tvo í sjötugt og er um þessar mundir að skrifa bók þar sem fjölskyldudeilurnar eru bornar á borð fyrir almenning. Jack er fjórum árum eldri og sem því nemur þroskaðri. Hann vill ekki tjá sig um efni bókar bróa.

Jack hefur hvergi sagt það upphátt en líklega er hann sammála Roy Keane, þjálfara Sunderland og fyrrum fyrirliða Manchester United, að eiginkonur knattspyrnumanna ráða margar hverjar alltof miklu um lífi þeirra. Það endar í tómu tjóni


Bloggfærslur 27. ágúst 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband