Fimmtudagur, 29. mars 2007
Enron-bókhald, leyfilegt eđa ekki
Hérađsdómur tekur núna, ađ ţinghaldi í Baugsmáli loknu, afstöđu til ţess hvort Enron-bókhald sé leyfilegt á Íslandi, hvort mismuna megi hluthöfum í almanningshlutafélögum međ sjálfsafgreiđslu stćrstu hluthafa á lánum sér til handa og hvort forstjórum leyfist ađ nota sjóđi almenningshlutafélaga til ađ fjármagna einkaneyslu.
Í hnotskurn er ţetta spurning hvort landsmenn séu jafnir fyrir lögum eđa hvort stóreignamenn séu á undanţágu.
![]() |
Kostnađur vegna sérfrćđiţjónustu 55 milljónir |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 29. mars 2007
Lán, viđskipti og ţjófnađur í Baugsmálinu
Málsvörn Baugsmanna fyrir hérađasdómi fól í sér nýstárlega skilgreiningu á jafn hversdagslegu fyrirbrigđi og láni. Gestur Jónsson, ađalverjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar vill gera lán í viđskiptum ađ einhverju allt öđru en venjulegu láni. Lán í viđskiptum vćri í raun ekki lán, ekki einu sinni viđskiptalán heldur bara viđskipti. Til ađ brúa biliđ milli heilbrigđrar skynsemi og Baugsheima talar lögmađurinn um lán í lagalegum skilningi, og er ţađ lexía í fabúleringu.
Í endursögn af málflutningi Gests hljómar röksemdafćrslan svona
Ţá sagđi Gestur ađ gera yrđi skýran greinarmun á kröfum, sem stofnist til í viđskiptum og eiginlegum lánum. Gestur sagđi ađ lán í skilgreiningu laganna vćri ţađ ţegar fjármunir vćru afhendir án nokkurra annarra skilyrđa en ađ ţeir verđi endurgreiddir. Um leiđ og önnur skilyrđi fylgdu, svo sem um ađ viđtakandi eigi ađ nota féđ í tilteknum tilgangi, t.d. til ađ kaupa nýtt hlutafé, vćri ţetta orđiđ ţáttur í viđskiptum og skilgreiningin félli úr gildi. Ţetta ćtti viđ um ţau viđskipti, sem ákćrt vćri fyrir í ţessu máli.
Ef ţađ eru hagsmunir Baugs sem eru hafđir í huga ţegar lániđ er veitt er ţađ klárlega ekki lán. Sama á viđ ţegar lánsmóttakandinn hefur ekki frjálsar hendur um ráđstöfun fjárins," sagđi Gestur og bćtti viđ ađ ţrengri skilgreining á venjulegum viđskiptalánum ćtti ekki viđ.
Ef röksemdafćrslan er mátuđ viđ daglega reynslu fólks koma undarlegir hlutir í ljós. Mađur sem tekur húsnćđislán í banka og kvittar upp á ađ hafa launareikninginn hjá bankanum er í raun ekki ađ taka lán, hann er ađ stunda viđskipti. Taki hann lánsfé án sérstakra skilyrđa heitir gjörđin ekki lengur viđskipti heldur lán. Annar mađur sem tekur bílalán međ skilyrđum um ađ bifreiđin sé kaskótryggđ er ekki ađ taka lán, samkvćmt skilgreiningu Gests, heldur er hann í viđskiptum. Ef sami mađur kýs ađ borga bílinn sinn međ yfirdráttarláni er hann aftur á móti ekki lengur ţáttakandi í viđskiptum, heldur ađ taka lán.
Skilgreining Gests er sniđin fyrir fingralanga kaupsýslumenn sem taka aldrei lán, ţeir stunda bara viđskipti. Ţegar grannt er skođađ er röksemdafćrsla verjanda forstjóra Baugs ţessi:
Ţjófnađur er viđskipti - í lagalegum skilningi.
Dćgurmál | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)