Föstudagur, 2. mars 2007
Drykkjavenjur Morgunblaðsins
Að jafnaði eru forystugreinar Morgunblaðsins alsgáðar og í borgaralegum anda. En þegar kemur að umræðu um drykki, áfengum eða ekki, hættir blaðinu til að beita röksemdafærslu sem heldur ekki vatni. Nú síðast um sykraða gosdrykki.
Í Staksteinum á miðvikudag var Ágústi Ólafi Ágústssyni þingmanni Samfylkingarinnar hrósað fyrir að vilja leggja af skatt á sykraða gosdrykki. Rökin sem Ágúst færir fyrir máli sínu eru gamalkunn úr áfengisumræðu í leiðaraskrifum Morgunblaðsins.
Ágúst Ólafur segir að þrátt fyrir að við séum með háa skatta á sykurgosdrykki sé neyslan mikil. Því ættum við að leggja skattana af, enda séu þeir forsjárhyggja. Við eigum að setja fjármuni í fræðslu og treysta fólki að fara eftir skynsamlegum ábendingum um hollustu. Margsinnis hefur Morgunblaðið farið með áþekka rullu um áfengi, blaðið vill selja það í matvörubúðum og treysta fólki.
Ef við prófum röksemdina á öðrum sviðum þjóðfélagsins sést hversu haldlítil hún er. Treystir Ágúst Ólafur sér til þess, nú eða þá Morgunblaðið, að halda eftirfarandi fram?
Á Íslandi eru meiri hraðatakmarkanir í umferðinni en víðast hvar í nágrannalöndum okkar. Þrátt fyrir það er há slysa- og dánartíðni hér á landi vegna hraðaksturs. Við eigum að afnema hámarkshraða í umferðinni, það er gamaldags forsjárhyggja, og treysta fólki til að aka varlega.
Hægt er að setja fíkniefni inn í rökhenduna og fá út að við eigum að leyfa þau; skotvopn og afnema skotvopnaleyfi; læknaleyfi og hætta að gefa þau út því að þrátt fyrir læknaleyfin eru gerð læknamistök. Og svo má áfram telja lög og reglur sem ætti að afnema samkvæmt rökleiðslunni.
Sjálfsagt er að ræða hvort eitt eigi að leyfa en banna annað og endurskoða reglulega gildandi lög og reglur. En það er full langt gengið að setja málefni eins og offitu barna og áfengisneyslu inn í jöfnu sem gefur alltaf sömu niðurstöðuna og kalla það rökstuðning.
Ef Ágúst Ólafur og Staksteinn telja að offita barna sé ekkert tiltökumál og óþarfi að samfélagið reisi skorður við sykurneyslu fer betur á því að segja það upphátt.
Ágúst Ólafur er með í því að gera Samfylkinguna að hægrisinnuðum popúlistaflokki með eftirtektarverðum árangri. En má ekki gera þær kröfur til Morgunblaðsins að vera ekki ónærgætið sjálfu sér þegar það fjallar um drykki, áfenga sem óáfenga?
Föstudagur, 2. mars 2007
Kostar Baugur dómskerfið 12 prósentustig?
Almenningur treystir síður dómskerfinu en áður. Það skyldi þó ekki hafa eitthvað með Baugsmál að gera og hvernig dómstólar hafa tekið á málinu? Lögreglan heldur sinni tiltrú hjá almenningi samkvæmt könnuninni.
![]() |
Háskóli Íslands nýtur mest trausts í Þjóðarpúlsi Gallup |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)