Ísland upplýsir ESB-þjóðir um afstöðu ESB

Á fundi Heimssýnar í hádeginu í dag upplýsti Kolbeinn Árnason lögfræðingur, og til skamms tíma fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins í fastanefnd Íslands hjá Evrópusambandinu, að margsinnis hafi það komið fyrir að Evrópusambandsþjóðir hafi leitað til Íslendinga til spyrja um afstöðu Evrópusambandsins til tiltekinna mála. Og hvernig víkur því við?

Jú, þegar Evrópusambandið sest niður til að ræða fiskveiðimál eru það um 150, hundrað og fimmtíu, formlegir fulltrúar. Á bakvið þá eru oft um 50 óformlegir fulltrúar.

Fyrir samningafundi við aðra aðila, t.d. Íslendinga, þurfa Evrópusambandslöndin að koma sér saman um eigin afstöðu. Og í því ferli verða ýmsir Evrópusambandsfulltrúar utangátta og leita til íslensku fulltrúana um upplýsingar.

Svolítið merkilegt.


Fjölmiðlafjölskyldurnar þrjár

Að slepptu RÚV eru þrjár fjölskyldur ráðandi eigendur í fjölmiðlum landsins. Góðu heilli er það aðeins ein fjölskylda sem notar fjölmiðla sína sem áróðursmiðla, m.a. til að knésetja forsætisráðherra sem ekki vildi þiggja mútur frá sömu fjölskyldu.
mbl.is Tvær fjölskyldur með miðlana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. mars 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband