Fimmtudagur, 1. mars 2007
Lykilorðið er hugleysi
Nafnlaust bréf um Baugsmálið og vinnubrögð dómstóla fékk all nokkra umfjöllun um síðustu helgi og fram eftir viku. Óvenjulegt er að nafnlaust bréf með kunnuglegum sjónarmiðum fái viðlíka umræðu. Fjölmiðlar, álitsgjafar og sóknar- og varnaraðilar í Baugsmálinu voru með skoðanir á bréfinu. Skýringin á uppnáminu liggur í stílbragði höfundar.
Höfundur segist huglaus og útskýrir þar með nafnleysið. Stílbragðið vakti athygli á því að fjölmargir aðilar sem búa að vitneskju um Baugsmálið eru hræddir og hafa ýmist þagað um málavöxtu eða breytt frásögn sinni af málsatvikum til að komast ekki í ónáð.
Lifi hugleysið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)