Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Hreinn breytir framburði sínum um Davíð og sporlausu peningana
Nýjasta útgáfa Hreins Loftssonar stjórnarformanns Baugs um alræmdan fund hans og Davíðs Oddssonar þáverandi forsætisráðherra í London er ólík upphaflegu frásögninni sem Fréttablaðið birti. Í fyrstu útgáfunni vissi Davíð um tilvist Jóns Geralds Sullenberger áður en hann kom fram sem kærandi í Baugsmálinu. Í framburði fyrir rétti og viðtölum við fjölmiðla í gær var áherslan á að forsætisráðherra hefði skapað andrúmsloft óvildar í garð Baugs.
Það er verulegur munur á því hvort forsætisráðherra hafi nánast handstýrt aðgerðum lögreglu gegn Baugi eða látið miður falleg orð falla um fyrirtækið. Breyttur framburður stjórnarformanns Baugs er vísbending um þjakaða samvisku.
Baugsmálið varð að pólitískri sprengju þann 1. mars 2003 þegar Fréttablaðið birti fjögurra dálka forsíðufrétt með fyrirsögninni Óttuðust afskipti forsætisráðherra. Fréttin gekk út á það að Davíð Oddsson hefði staðið á bakvið lögreglurannsókn á Baugi sem hófst árið áður. Rökin fyrir þeirri ásökun voru þau að á fundi sem Hreinn Loftsson átti með Davíð í London veturinn áður hafi forsætisráðherra nefnt nafn Jóns Geralds Sullenberger, en þessi fyrrum viðskiptafélagi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar forstjóra Baugs var upphaflegi kærandinn í málinu.
Davíð kvaðst í fjölmiðlaviðtölum aldrei hafa heyrt nafn Jóns Geralds fyrr en það kom í fréttum. Og núna virðist Hreinn Loftsson ekkert á því heldur, samanber fréttaflutning af framburði hans fyrir rétti í gær. Raunar kom Hreinn sjálfur ekki fram í Fréttablaðinu með ásökun um að Davíð hafi þekkt til Jón Geralds. Eina munnlega heimildin sem var vitað til í Fréttablaðinu um fundinn í London var, merkilegt nokk, Jón Ásgeir. Hér er tilvitnunin:
Jón Ásgeir sagði við Fréttablaðið að hann gæti staðfest það eitt að Hreinn hefði gert stjórn Baugs grein fyrir fundinum með Davíð þar sem Jón Gerald Sullenberger hefði borið á góma.
Enginn annar hefur staðfest þessi orð Jóns Ásgeirs. Tveir stjórnarmenn í Baugi, sem þá var almenningshlutafélag, Guðfinna Bjarnadóttir rektor Hskólans í Reykjavík og Þorgeir Baldursson forstjóri Odda, sögðu sig úr stjórn Baugs í beinu framhaldi af þessum orðum Jóns Ásgeirs og létu hann sitja einan uppi með þau. Hreinn klóraði í bakkann með eiganda sínum og talaði um að hann myndi óljóst eftir því að Davíð hefði nefnt einhvern Jón Gerhard en gafst fljótlega upp á því og vildi eyða málinu. En það er eins með töluð orð og tapaðan meydóm, hvorugt verður aftur tekið.
Í framhaldi af atlögu Fréttablaðsins kom það á daginn að á fundinum í London bauð Hreinn Loftsson forsætisráðherra 300 milljónir króna mútugreiðslu. Davíð lýsir málsatvikum í viðtali við Morgunblaðið 4. mars 2003.
Ég bað Hrein að segja mér þetta tvisvar og hann gerði það. Þegar hann sá minn mikla undrunarsvip, því mér var mjög brugðið, þá sagði hann: Ég sagði nú reyndar við Jón Ásgeir að hann þekkti ekki forsætisráðherrann, það þýddi ekkert að bera á hann peninga. Þá svaraði Jón Ásgeir: Það er enginn maður sem stenst það að vera boðnar 300 milljónir króna inn á hvaða reikning sem er, sporlausa peninga.
Í fjölmiðlaviðtölum neitaði Hreinn því ekki að hafa nefnt við Davíð mútufé upp á 300 milljónir króna og haft það tilboð eftir forstjóra Baugs en sagði jafnframt að Jón Ásgeir hafi talað í hálfkæringi þegar hann reifaði tilboðið um sporlausu peningana.
Víst er að fundurinn í London var ekki haldinn í neinum hálfkæringi og sá sem trúir orðum Hreins Loftssonar trúir líka á tannálfinn.