Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Starfsdagar og endurmenntun kennara
Blogg frá í gær um starf grunnskólakennara og stöðu þeirra vakti nokkur viðbrögð. All margir kennarar sendu inn athugasemdir og voru ekkert á því að láta höfundinn eiga inni hjá sér, - enda hafði hann ekki unnið til þess. Það vekur aftur athygli að þrátt fyrir að eyða töluverðu púðri í skrifin er ekki að finna þar tillögur til að mæta ófermdarástandinu.
Tilefni bloggsins var smáprent sem Félag grunnskólakennara gaf út og dreifði til almennings. Í ritinu er gerð nákvæm grein fyrir vinnutíma kennara, svo nákvæm að lesendur fá að vita að 9,14 klst. á viku fara í verkstjórn hjá kennurum og 5,72 í lögbundna kaffitíma og frímínútur.
Allt er þetta upplýsandi fyrir foreldra. En foreldra fýsir þó meira að vita um starfsdagana yfir veturinn þegar börnin eru send heim og hvers vegna ekki megi afnema þá. Smáprent kennara þagði þunnu hljóði um starfsdagana. Höfundur ályktaði út frá texta um endurmenntun kennara að starfsdagarnir væru nýttir í endurmenntun. Það var leiðrétt og sagt að téðir dagar væru nýttir í skipulagsmál og ýmislegt er lyti að stjórnun og áætlanagerð.
Þau rök að nauðsynlegt sé að loka grunnskólum til að ræða skipulag, stjórnun og áætlanir halda ekki. Það vita allir sem hafa komið nálægt svona vinnu að einfalt er að sinna henni í smærri hópum. Og ef bráðnauðsynlegt er að kennarar hafi heila daga til að fara yfir einhver málefni þá eru dagar til þess á vorin og haustin þegar börnin eru í fríi.
Engir kennarar af þeim fjölmörgu sem tóku til máls höfðu fyrir því að útskýra hvernig kennarar, sem samningsbundið eiga að stunda endurmenntun í 102 - 150 klst. yfir árið, fara að því að koma öllum þessum vinnustundum fyrir á skólaárinu ofaná alla þá yfirvinnu sem þeir leggja á sig til að fá lengra jóla- og páskaleyfi, eins og stendur skrifað í smáprentinu.
Það virðist vera nægur vilji til sveigjanleika á vinnutíma kennara þegar kemur að endurmenntun. Betur væri að þessi sveigjanleiki yrði fyrir hendi þegar rætt er um starfsdagana.
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Baugsfærsla tekin út - tímabundið
Blogg um Baug hefur verið tekið út af síðunni. Nánari skýringar síðar.
Viðbót kl. 19:20
Ég bið lesendur afsökunar á því að komast ekki fyrr í að útskýra málið eilítið nánar. Bloggfærslan sem um ræðir var aðsent efni frá ónafngreindum höfundi. Eftir að ég birti það hafði höfundurinn samband og bað mig að taka bloggið út í nokkra daga á meðan hann væri að kynna það öðrum. Ég varð við þeirri ósk og geri ráð fyrir að bloggið birtist hér á ný um helgina.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)