Minnisleysi í málsvörn Baugsmanna

Baugsmenn, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson og Tryggvi Jónsson, sem nú eru fyrir héraðsdómi, kunna út í hörgul að útskýra málsatvik þegar það er þeim hagfellt en brestur minni þess á milli. Lögfræðiteymið sem vinnur að málsvörn þeirra félaga ætti að ræða það við sakborningana að minnisleysi er ekki trúverðug málsvörn.

Á hinn bóginn getur verið að Baugsmenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af slíkum smáatriðum. Dómarinn hefur með atferli sínu og háttsemi gefið skýrt til kynna hvaða hug hann ber til málsaðila.


mbl.is Tekist á í Baugsmálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flatneskja í fjölmiðlaflóru

Peningar kaupa ekki gæði í blaðamennsku. Aldrei í sögu prentmiðla á Íslandi hafa jafn miklir fjármunir verið lagðir í dagblöð, vikublöð og tímarit. Ef allt væri með felldu ætti lesendum að standa til boða fjölbreytt úrval fjölmiðlaefnis sem endurspeglaði margbreytilegar áherslur í fréttavali, framsetningu, sjónarhornum, greiningu og gagnrýni.

En því er ekki að heilsa. Þrátt fyrir fjölda titla blasir flatneskjan við í prentmiðlaútgáfu. Að slepptum hverdagslegum stuttfréttum er uppistaðan heimildastýrð endurvinnsluviðtöl og álitsgjafadálkar.

Nýjasta afurðin, Krónikan, er með Hannes Smárason kaupsýslumann á forsíðu. Viðtalið við hann er maður búinn að lesa áður í Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu. Annað viðtal er við Gísla Örn Garðarsson leikara og leikstjóra sem hefur verið tíður gestur á síðum dagblaða og tímarita. Berglind Ásgeirsdóttir sendiherra er líka í viðtali. Tveir álitsgjafar, Sigmar Guðmundsson og Guðmundur Magnússon, skrifa sína síðuna hvor. Eina unna fréttin sem eitthvað kveður að í þessu 80 blaðsíðna vikuriti er um sjóræningjaveiðar í Barentshafi.

Prentmiðlar verða að eiga erindi við lesendur. Þeim þarf að liggja eitthvað á hjarta, annað en það að koma út.


Bloggfærslur 19. febrúar 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband