Baugur og birgjar

Síðunni barst bréf þar sem fjallað er um samskipti Baugs við birgja. Bréfið er svohljóðandi:

 

Baugur hefur um árabil kúgað íslenska birgja um betri kjör og framlengt greiðslutímabil þannig að þeir borga talsvert seinna en gengur og gerist enda þarf að nota sjóðstreymið til að borga lán og aðra fjármögnun sem Baugur notar til að komast yfir öll þessi fyrirtæki - heima sem erlendis.

Um daginn kom fram í Bretlandi að Baugur er að ráðast í tug milljarða endurbætur á verslanakeðjunni House of Fraser.

Baugur ætlast til þess að birgjar komi að verulegum hluta að þessari aðgerð sem kostar um 230 milljónir punda. Þeir birgjar sem EKKI samþykkja að vera með fá „óheppileg" verslunarkjör, ef ekki uppsögn á samstarfi. Alveg eins og á Íslandi.

Þegar þú er orðinn stór, þá gerir þú það sem þú vilt... birgjar sem vilja hafa gott sambandi við Baug eiga ENGA aðra kosti en að samþykkja þessi kjör sem þarna koma fram og borga þúsundir milljóna til að fjármagna endurbæturnar. Þeir birgjar sem samþykkja eru „vildarvinir" Baugs. Það er auðvitað stórkostlegt að birgjar sem skaffa vörur þurfi að punga út þúsundum milljóna til að fjármagna innréttingar og endurbætur á verslunum Baugs.

Takið eftir því að í fréttinni kemur fram að Baugur hefur þegar breytt greiðslum til birgja og lengt greiðslutímabilið. Þannig virkar Baugur í raun, notar sjóðsstreymið á þessu langa tímabili og rúllar í næstu verkefni og afborganir. Þeir sem neita geta bara gleymt að eiga viðskipti við Baug.

Alveg eins og á Íslandi. Nú er spurning hvort birgjar á Íslandi séu ekki tilbúnir að koma fram og segja frá kúgunaraðferðum Baugs hér heima. Af nógu er að taka.

Baugsmiðlar birta aldrei svona fréttir.


http://www.telegraph.co.uk/money/main.jhtml?xml=/money/2007/09/11/cnhof111.xml


Bloggfærslur 3. nóvember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband