Heilagt stríđ múslíma; sjálfsvörn eđa kjarninn sjálfur?

Ţegar nítján múslímar drápu sjálfa sig og ţúsundir annarra 11. september 2001 var árásin á New York og Pentagon réttlćtt međ heilögu stríđi múslíma gegn Vesturlöndum og Bandaríkjunum sérstaklega. Hugtakiđ heilagt stríđ, jihad, og merking ţess í trú múslíma er mörgum hugleikin eftir atburđinn.

Í grófum dráttum skiptast sjónarmiđin í tvö horn. Annars vegar ađ heilagt stríđ sé afbrigđi í trúarkerfi múslíma og komi ađeins til álita í nauđvörn. Múslímatrú sé friđsöm og leggi ekki blessun sína yfir blóđsúthellingar saklausra. Hins vegar eru ţeir sem telja trúarbrögđin af Arabíuskaganum vera í kjarna sínum ofbeldishneigđ. Heilagt stríđ sé birtingarmynd hneigđarinnar.

Umrćđan um heilagt stríđ er jafngömul sjálfri trúnni sem óx og dafnađi í kjölfar hernađarsigra fylgismanna spámannsins. Í yfirlýsinga Osama Bin Laden frá árinu 1998 er vísun í múslímskan frćđimann frá ţrettándu öld.

Í nýjustu útgáfu New York Review of Books, rćđir Malise Ruthven um múslímatrú, heilagt stríđ og nútímann. Til grundvallar leggur Ruthven ţrjár bćkur (John Kelsay: Arguing the Just War in Islam; Hans Küng: Islam. Past, Present and Future og Michael Bonner: Jihad in Islamic History).

Ruthven segir ţá Küng og Bonner komast ađ sömu niđurstöđunni: Heilagt stríđ er ekki afbrigđi í múslímatrú sem ađeins sé beitt í sjálfsvörn. Í sögu trúarbragđanna og iđkun ţeirra er hugmyndin um stríđ gegn vantrúuđum veigamikill ţáttur. Umrćđan í samfélagi múslíma sé ekki um ţađ hvort heilagt stríđ falli innan ramma trúarinnar heldur hvenćr og hvernig beita skuli ţessu vopni.

Ruthven dregur upp ţá mynd af múslímatrú ađ hún sé kviksett í fyrnsku og geti ekki átt samleiđ međ veraldlegum stofnunum í lýđrćđisţjóđfélagi. Endurnýjun sem kaţólska kirkjan, mótmćlendatrú og gyđingdómur fóru í gegnum síđustu fimm hundruđ árin eđa svo hefur ekki snert múslíma. Ţeir eru enn fangar bókstafstrúar međ heimssýn sem leyfir ekki fjölrćđi.

Sjálf umrćđan um múslímatrú er dauđans hćttuleg, samanber hótanir sem vofa yfir ţeim rithöfundum og gagnrýnendum er voga sér óhefđbundna nálgun á spámanninum og orđum hans.


Bloggfćrslur 28. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband