Jóhannes í Bónus og áfengið

Bónusverslunin er áhugasöm um að selja landsmönnum áfengi og rekur auglýsingaáróður í fjölmiðlum í því skyni. Hér á mlb.is eru auglýstar viðhorfskannanir Bónus þar sem fólk er spurt hvort það vilji að áfengi verði selt í matvöruverslunum. Og fyrst Bónus er að spyrja almenning hlýtur að vera í lagi að almenningur spyrji Bónus.

Undirritað eintak af almenningi vill beina þeirri spurningu til Jóhannesar Jónssonar stofnanda Bónus og helsta eiganda hvort hann telji samfélagsbót að auka aðgengi almennings að áfengi. Þá er Jóhannes spurður að því hvort hann sé þeirrar skoðunar að það sé fjölskylduvænt að stilla upp áfengi við hliðina á nauðsynjavöru.

Einnig mætti Jóhannes svara þeirri spurningu hvort maður hætti að kunna að skammast sín þegar maður kemst í álnir.


Boston 2-0 í Heimsseríunni

Boston Red Sox unnu tvo fyrstu leikina í Heimsseríunni gegn Colorado. Fjóra sigra þarf til að taka seríuna. Næstu tveir leikir verða í Denver, sá fyrri seinna í dag.

Josh Beckett kastaði fyrsta leikinn og gaf aðeins eitt hlaup til Klettafjallaliðsins. Í fyrstu lotu sló Dustin Pedroia, líklegur nýliði ársins, heimahlaup og gaf tóninn fyrir heimaliðið. Boston virtist hafa leikinn í hendi sér allan tímann. Boston vann 13-1.

Curt Schilling tók hólinn í öðrum leiknum og var traustur inn í sjöttu lotu. Þá tók Hideki Okjaima við í rúmar tvær. Jónatan Papelbon, besti slúttarinn í báðum deildum, kláraði leikinn. Hann kastaði út Matt Holliday í fyrstu höfn í áttundu lotu og afgreiddi kylfara Colorado í níundu án þess að þeir kæmust í fyrstu höfn. Það þurfti til vegna þess að staðan var 2-1 fyrir Boston og mátti engu muna. Mike Lowell kom David Ortiz í heimahöfn í fimmtu lotu með tveggja hafna skoti niður hliðarlínuna. Forystan var ekki látin af hendi eftir það.

Dice-K tekur hólinn í kvöld fyrir Boston og ætti að hafa sjálfstraust eftir sigurinn gegn Cleveland í síðustu viku.


Bloggfærslur 27. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband