Hversu flókið er að gera verðkönnun?

Umræðan um hvort verðlagseftirlit ASÍ megi gera verðkannanir í Baugsversluninni er svo himinhrópandi vitlaus að það tekur ekki tali. Verklagsreglur um verðkannanir eru álíka út í bláinn og að nota glærukynningu til að kenna fimm ára barni að grípa bolta.

Eina rétta aðferðin til að gera verðkönnun er að fara út í búð eins og hver annar neytandi og kaupa samkvæmt fyrirfram ákveðnum lista. Kassakvittunin er samanburðarverðið.

Verðlagseftirliti ASÍ ætti að vera í lófa lagið að gera fólk út af örkinni að kaupa 35 - 40 vöruliði. Gera má ráð fyrir að út úr því fáist 20 - 25 vöruliðir sem eru sambærilegir og hægt er að gera á verðsamanburð.. (Afföllin skýrast af því að ekki eru allir vöruliðir til í öllum búðum, einingarpakkningar ekki þær sömu o.s.frv.)

Verðlagseftirlit ASÍ á ekki að spyrja kóng eða prest hvort heimilt sé að gera verðkönnun. Framtak ASÍ er lofsvert og synd og skömm ef algjörlega óþörf nærgætni gagnvart hagsmunum verslunarinnar skuli eyðileggja verðsamanburð.

Til að gera langa sögu stutta: Fulltrúar ASÍ eiga að haga sér eins og neytendur þegar þeir gera verðsamanburð. Kaupa vöruna og nota kassakvittun til að gera samanburð.


Bloggfærslur 17. október 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband