Mánudagur, 8. janúar 2007
Árangursrík þöggun Baugsmiðla
Baugsmiðlum tókst að þagga stærsta fréttamálið á Íslandi á síðasta ári. Nálega helmingur þjóðarinnar telur að Baugsmálið hafði verið stærsta fréttamálið á Íslandi, samkvæmt skoðanakönnun. Umfjöllun fjölmiðla er í engu samræmi við mikilvægi málsins. Dagskrárvaldi Baugsmiðla, Fréttablaðinu, Stöð 2, DV og öðrum var beitt til að stýra umræðunni en mest til að þagga hana.
Ritstjórar og yfirmenn Baugsmiðla hljóta að fá Bónusgreiðslur fyrir árangurinn.
![]() |
Baugsmálið stærsta fréttamálið 2006 að mati almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Mánudagur, 8. janúar 2007
Staksteinar, Helförin og Palestína
Staksteinar í sunnudagsútgáfunni virðast gefa þeirri hugsun undir fótinn að tilvera Palestínumanna sé á einhvern hátt sambærileg við þjóðarmorð evrópskra gyðinga í seinni heimsstyrjöld. Til skamms tíma var vestrænn almannarómur að Helförin hafi verið einstæður atburður. Á síðari árum er reynt að draga úr sérstöðu Helfararinnar og jafnvel afneita henni sem sögulegri staðreynd, samanber nýafstaðna ráðstefnu í Íran.
Tilefni Staksteina er endurútgáfa á dagbók Önnu Frank sem var drepin ásamt milljónum gyðinga í sérhönnuðum dauðabúðum Þjóðverja í Austur-Evrópu. Dagbók Önnu, sem hún skrifaði í Amsterdam í felum með fjölskyldu sinni, var lengi þekktasta heimildin á Vesturlöndum um að gyðingarnir sem skipulega var smalað saman til útrýmingar voru venjulegt fólk sem lifði hversdagslegu evrópsku lífi þangað til að Helförinni var hrint í framkvæmd.
Í niðurlagi Stakteina segir
Jú, það er allt önnur saga í allt annarri bók en þeirri sem fjallar um Helförina. Þjóðarmorðið á gyðingum í seinni heimsstyrjöld er atburður sem mun ekki eiga sér hliðstæðu fyrr en Frakkar söfnuðu saman öllum þeim múslímum sem tækist að klófesta, settu þá í gripavagna og flyttu á afskekktan stað þar sem gasklefar tækju við þeim. Ef Bretar gerðu eitthvað sambærilegt við kaþólikka á Írlandi væri komin hliðstæða.
En staða Palestínuaraba á Vesturbakkanum eða Gaza er í engum skilningi hliðstæða við Helförina.

Það er svo aftur önnur saga hvað gerast mundi ef Anna Frank gæti nú hitt að máli ungan Palestínuaraba og þau borið saman bækur sínar um það líf sem þeim hefur verið búið.
Jú, það er allt önnur saga í allt annarri bók en þeirri sem fjallar um Helförina. Þjóðarmorðið á gyðingum í seinni heimsstyrjöld er atburður sem mun ekki eiga sér hliðstæðu fyrr en Frakkar söfnuðu saman öllum þeim múslímum sem tækist að klófesta, settu þá í gripavagna og flyttu á afskekktan stað þar sem gasklefar tækju við þeim. Ef Bretar gerðu eitthvað sambærilegt við kaþólikka á Írlandi væri komin hliðstæða.
En staða Palestínuaraba á Vesturbakkanum eða Gaza er í engum skilningi hliðstæða við Helförina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)