Föstudagur, 12. janúar 2007
Múslímar, fjölmenning og jafnrétti
Múslímar sumir hverjir komast upp með að lítilsvirða vestræn gildi, svo sem einstaklingsfrelsi og jafnrétti kynjanna, án verulegra andmæla. Þegar múslímar móðgast rís upp fjölahreyfing víða um lönd með hótunum um viðskiptabann ef ekki líflát, samanber rithöfundinn Salman Rushdie og dönsku skopmyndirnar af spámanninum.
Margvíslegar spurningar vakna um þetta ójafnvægi. Ein er þessi: Hvernig réttlæta vestrænir talsmenn fjölmenningar að múslímskum viðhorfum og lífsgildum skuli gert jafnhátt undir höfði og vestrænum?
![]() |
Múslímaklerkur segir brjálæðislegt frelsi ríkja í Ástralíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Föstudagur, 12. janúar 2007
Virtu ekki rauða kallinn á eigin ábyrgð
Enskur sagnfræðingur var snúinn niður af lögreglumanni og handtekinn fyrir að virða ekki umferðarljós og ganga yfir götu í miðborg Atlanta í Bandaríkjunum. Sagnfræðingurinn Felipe Fernandez-Armesto skrifaði meðal annars bókina Hugmyndir sem breyttu heiminum kveðst ekki hafa haft hugmynd um að viðurlög væru við athæfinu.
Ástæðan fyrir því að Fernandez-Armesto var felldur í götuna er sú að hann áttaði sig ekki á að lögreglumaðurinn sem spurði hann um skilríki eftir brotið væri opinber starfsmaður og svaraði spurningunni með gagnspurningu. Lögreglumaðurinn taldi sagnfræðinginn veita viðnám, skellti honum umsvifalaust á götuna og fékk starfsfélaga sína í lið með sér að yfirbuga brotamanninn.
Sagnfræðingurinn fékk að dúsa í átta klukkustundir í varðhaldi en var ekki ákærður, samkvæmt frétt á BBC.
Engin viðurlög eru við því í Bretlandi að virða ekki rauða kallinn á umferðarljósum en margar borgir í Bandaríkjunum taka hart á slíku framferði.
Í Þýskalandi, aftur á móti, geta ökumenn verið sektaðir fyrir að hleypa ekki vegfarendum yfir götu, jafnvel þótt engum umferðarljósum sé til að dreifa.
Lærdómur: Gerum eins og við kennum börnunum að gera og göngum ekki gegn rauða kallinum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)