Færsluflokkur: Dægurmál
Fimmtudagur, 23. apríl 2009
Samfylking er málssvari gjaldþrota
Samfylkingin kaupir auglýsingu í viðskiptakálfi Morgunblaðsins í dag. Í auglýsingunni segir að hefðu fyrirtæki atkvæðisrétt myndu þau kjósa Samfylkinguna. Boðskapur í viðtengingarhætti þar sem dauðum hlutum eru gefnir mannlegir eiginleikar er í stíl Samfylkingar.
Í fjölmiðlum hefur komið fram að velflest íslensk fyrirtæki eru gjaldþrota. Samtök eigenda fyrirtækja er stærsta félag draumóramanna Íslandssögunnar og flestir með skellótt siðferðisvottorð, svo vægt sé farið í sakirnar.
Auðvitað hljóta fyrirtæki og eigendur þeirra að styðja Samfylkinguna. Sumir hafa meira að segja keypt hlutabréf í þingmönnum og ráðherrum Samfylkingarinnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 23. apríl 2009
ESB-málið er steindautt
Sjá menn fyrir sér að ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna boði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort við ættum að sækja um aðild að Evrópusambandinu? Ríkisstjórnin væri þverklofin í málinu og svo gott sem óstarfhæf í aðdraganda slíkra kosninga. Þar fyrir utan á eftir að semja reglur um þjóðaratkvæði og svo á eftir að breyta stjórnarskránni. Við sáum það á nýafstöðnu þingi að breytingar á stjórnarskrá eru góðu heilli torsóttar.
Nei, þeir kjósendur sem vilja trúa blekkingu Samfylkingarinnar um að ESB-aðild sé á næsta leyti hljóta líka að trúa á tannálfinn. Það eru engar líkur á aðild að Evrópusambandinu í fyrirsjáanlegri framtíð. Samfylkingin og Alþýðuflokkur þar áður hafa notað þetta mál frá árinu 1995 til að slá ryki í augu fólks.
Tilburðir til að búa til fjöldahreyfingu um aðildarumsókn runnu út í sandinn með fundi Benedikts Jóhannessonar og frjálsyggjukratanna sem tókst með fjáraustri upp á milljónir króna að safna um 150 manns á fund til stuðnings aðildarumsókn.
Öllu var tjaldað til. Benedikt skrifaði flaustursgrein sem ESB-blöðin, Morgunblaðið og Fréttablaðið, átu hráa og endurbirtu um að annað hrun stæði fyrir dyrum. Kjánaprikið Eiríkur Bergmann Eiríksson, Evrópufræðingur með fræðimannsheiður samkvæmt Baugsskríbentnum Illuga Jökulssyni, sagði að EES-samningnum yrði bráðlega sagt upp. Téður Eiríkur sagði í Útvarpsfréttum fyrir ári að ef við færum inn í ESB yrði auðveldara að versla á netinu. Annar furðutalsmaður af ætt frjálshyggjukrata taldi fram þau störf sem yrðu til í Brussel handa Íslendingum og komst í hálft þriðja hundrað. Samfylkingin kokkaði frétt og seldi fjölmiðlum um að Bretar væru svo leiðir yfir Icesave-málinu að þeir myndu tryggja okkur flýtimeðferð. Í sjónvarpsumræðum talaði Össur um að gluggi inn í Evrópusambandið væri opinn núna en lokaðist í sumar, eins og Brussel hugsaði í dögum eða vikum þegar aðildarpælingar væru annars vegar; þeir hafa verið í samningaviðræðum við Tyrki í áratugi.
Tilraun til að búa til móðursýkisáhlaup á aðildarumsókn rann út í sandinn því þjóðin nennti ekki að hlusta á margtuggnar aularöksemdir Evróputrúðanna.
![]() |
Trúi ekki að Samfylkingin láti stranda á ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
Pólitískt lauslæti í lagi, liggi maður undir nógu mörgum
Guðlaugur Þór Þórðarson er orðin að málpípu pólitísks lauslætis og viðbúið aðrir komi með sömu afsakanir. Ef maður liggur undir nógum mörgum er það allt í sóma. Þetta er þvættingur, þótt ekki sé nema fyrir þá sök að auðmenn áttu hver um sig margar kennitölur og gátu, eins og styrkir Baugs til Samfylkingar bera vitni um, dreift styrkjunum á mörg fyrirtæki.
Guðlaugur Þór og spilltu Samfylkingarþingmennirnir verða koma með betri afsökun.
![]() |
Segir 40 aðila hafa styrkt sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 22. apríl 2009
Baugsfylkingin stendur undir nafni
Jóhanna Sigurðardóttir var á Baugsspenanum sem og Steinunn Valdís og Helgi Hjörvar. Björgvin G. Sigurðsson þáverandi viðskiptaráðherra var kallaður inn á teppið hjá Jóni Ásgeiri forstjóra Baugs þegar Seðlabankinn tók yfir Glitni. Þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar voru í vasa Baugsveldisins.
Samfylkingin var sérstakur talsmaður Baugs á alþingi þegar fjölmiðlafrumvarpið sáluga var til umfjöllun þar. Í frægri Borgarnesræðu formanns Samfylkingarinnar var borið blak af Baugi og opinberir starfsmenn sem störfuðu að sakamálarannsókn í Baugsmálum voru gerðir tortryggilegir.
Á laugardag stefnir í að Samfylkingin verði stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Eftirleiðis heitum við Baugslýðveldið.
![]() |
Birta styrki Baugs til þingmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. apríl 2009
Reipi í boði Baugs
![]() |
Háir styrkir frá Baugi og FL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 21. apríl 2009
Frjálshyggjukratar
Fallnir talsmenn auðhyggju og samfylkingarfólk er samstíga um öll vötn skuli falla til Brussel. Sameiginlegir hagsmunir frjálshyggjukrata er að stýra dagskrá opinberrar umræðu frá meinvaldi síðustu ára sem er græðgisvæðing samfélagins.
Samfylkingin tók upp aðferðafræði Verkamannaflokks Tony Blair í Bretlandi, að verða kaþólskari en páfinn. Græðgisvæðingin var jafn taumlaus á valdavakt Samfylkingar sem hún hafði verið í tíð samstarfs Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Októberhrunið afhjúpaði villigötur auðhyggjunnar. Í stað þess að kannast við blekkinguna og efna til uppgjörs vilja frjálshyggjukratar leiða okkur á nýja blindgötu, einstefnuna til Brussel.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 21. apríl 2009
Samfylkingin er sprengjuflokkur
Einföld skilaboð um flókinn veruleika eru lýðræðinu hættuleg. Þegar skilaboðunum er fylgt eftir með hótunum og yfirgangi er rétt að staldra við og spyrja hvert við stefnum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 20. apríl 2009
Pólitísk fjárkúgun Samfylkingar
Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri grænir samþykktu á landsfundum sínum stjórnmálaályktanir um að hagsmunum Íslands væri best borgið utan Evrópusambandsins. Landsfundir stjórnmálaflokka eru lýðræðislegur vettvangur þar sem almennir flokksmenn koma saman og ráða ráðum sínum.
Samfylkingin gefur ekki mikið fyrir lýðræðislega starfshætti. Forystumenn hennar segjast ekki ætla í ríkisstjórn nema samstarfsflokkurinn afneiti nýsamþykktri ályktun landsfundar.
Frekjuleg afstaða Samfylkingar til lýðræðislegra starfshátta er í andstöðu við viðteknar hugmyndir um siðað samfélag.
![]() |
Evrópustefnan verði á hreinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 20. apríl 2009
Benni frændi
Benedikt Jóhannesson forstjóri Talnakönnunar er frændi Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Benedikt er einn af hugmyndasmiðum einkavæðingar andskotans sem var forsenda októberhrunsins. Eftir hrun vill Benedikt með Ísland inn í Evrópusambandið í von um betri bithaga.
Benedikt galt afhroð á landsfundi Sjálfstæðisflokksins þar sem flokkmenn sögðu nei, takk, ekki pólitíska útrás ofaní gjaldþrot hinnar fyrri. Forstjóri Talnakönnunar lét ekki svo gott heita. Síðustu daga hefur hann í félagi við aðra frjálshyggjukrata staðið að auglýsingaherferð í fjölmiðlum fyrir inngöngu.
Hávaðinn í Benedikt og félögum hefur verið slíkur að Bjarni Ben frændi sá sitt óvænna og keypti auglýsingar í blöðum um að hann vildi taka upp evru í samráði við Alþjóða gjaldeyrissjóðinn. Það er álíka gáfulegt og að biðja Færeyinga að aðstoða okkur við að taka upp japanskt yen. Hlátrasköllin yfir heimskunni heyrast yfir Atlantsáli.
Í dag segist Benedikt á heimasíðu sinni ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn á laugardag. Líklega er það samúðaratkvæði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Mánudagur, 20. apríl 2009
Jón Baldvin '95 - Jóhanna Sig. '09
Í kosningunum árið 1995 gerði Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins ESB-aðild að kosningamáli með litlum árangri. Tilgangurinn var að veiða atkvæði frá Sjálfstæðisflokknum en það gekk ekki eftir. Alþýðuflokkurinn gafst upp og rann inn í Samfylkinguna. Jóhanna Sigurðardóttir, sem stofnaði Þjóðvaka fyrir kosningarnar 1995, fetar í fótspor Jóns Baldvins fyrir kosningarnar næstkomandi laugardag og býður inngöngu í Evrópusambandið sem allsherjarlausn fyrir Ísland.
Flest bendir til að Jóhanna nái betri árangir en fjandvinur hennar Jón Baldvin fyrir fjórtán árum. Spurningin er hvort árangur Jóhönnu skrifast á veikleika Sjálfstæðisflokksins eða hvort Evrópusambandið er betri málstaður í dag en vorið 1995.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)