Jóhannes er fallin stjarna í Namibíu, ekki á RÚV

Fyrrum stjarna ákæruvaldsins í Namibíu, Jóhannes uppljóstrari Stefánsson, er fallin, segir í fyrirsögn namibíska dagblaðinu Informaté, sem viðtengd frétt byggir á. Framhald fyrirsagnarinnar: eiturlyfjafíkill með ólögmæta friðhelgi.

Ákæruvaldið í Namibíu virðist hafa gefið Jóhannesi friðhelgi eftir að hann játaði á sig stórar sakir í nóvember 2019 í Kveiks-þætti Helga Seljan og Aðalsteins Kjartanssonar. Jóhannes hefur ekki látið reyna á friðhelgina, aldrei komið til Namibíu eftir að hann hvarf þaðan sumarið 2016 og skildi eftir sig sviðna jörð.

Frétt Informaté, og viðtengd endursögn Mbl.is, er um ráðstöfun á söluandvirði togarans Heina­ste sem namibísk yfirvöld kyrrsettu og var seldur með samkomulagi málsaðila. Dótturfélög Samherja koma við sögu í þessu dómsmáli en ekki sem sakborningar heldur hagaðilar er eiga fjárhagslegra hagsmuna að gæta.

Stóra dómsmálið þar syðra er eingöngu með namibískum sakborningum, eins og tilfallandi rakti í bloggi. Þar er ekki réttað yfir Samherja heldur namibísku stjórnarfari.  

Líferni Jóhannesar og um leið trúverðugleiki hans sem heimildar er þekkt. En ekki á RÚV sem spinnur enn frásögn um að héraðssaksóknari sé á lokametrunum með rannsókn á ásökunum Jóhannesar á hendur Samherja. Samkvæmt RÚV var Namibíurannsókn að ljúka í nóvember fyrir tveim árum. Í fyrradag heitir það á RÚV að rannsóknin ,,sé langt komin". Fréttin er brandari; RÚV segir fyrir tveim árum að Namibíurannsókn sé um það bil að ljúka. Samsærisbrandari í formi frétta er sérgrein RÚV-ara.

Í byrlunar- og símamálinu voru sex blaðamenn með stöðu sakborninga frá febrúar 2022 til september í ár. Það þótti voðalega langur tími og reyndi á sálarlíf viðkomandi, samkvæmt fjölda frétta. Í Namibíumálinu eru níu með stöðu sakborninga frá 2019 en það eru engar fréttir um að þeim kunni að þykja óþægilegt að sitja í fimm ár undir ásökunum Jóhannesar og RSK-miðla sem héraðssaksóknari tók góðar og gildar. Engar fréttir eru um að ákæruvald og fjölmiðlar séu i vafasömu samkrulli með ótrúverðugri heimild og teygi lopann til að halda í gíslingu mannorði fólks sem ekki byrlaði, stal engu og afritaði ekkert - heldur vann vinnuna sína.

 

 


mbl.is Vandar Jóhannesi ekki kveðjurnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðalsteinn og Arnar Þór staðfesta samráð í byrlunar- og símamáli

Tveir sakborningar í byrlunar- og símastuldarmálinu, Aðalsteinn Kjartansson og Arnar Þór Ingólfsson, skrifa leiðara um málið í Heimildina. Ber vel í veiði að tvímenningarnir skrifi. Aðalsteinn er skráður höfundur fréttar Stundarinnar 21. maí 2021 um ,,Skæruliðadeild Samherja." Arnar Þór ásamt Þórði Snæ Júlíussyni er merktur höfundur sömu fréttar í Kjarnanum, sem birtist samtímis Stundar-fréttinni eða morguninn 21. maí fyrir þremur árum.

Vorið 2021 voru Stundin og Kjarninn sjálfstæðir miðlar og ótengdir. Eftir að byrlunar-og símastuldarmálið fór í lögreglurannsókn, og varð báðum útgáfum þungur ljár í þúfu, sameinuðust Stundin og Kjarninn undir merkjum Heimildar.

Í leiðaranum, sem birtist í gær, þegja Aðalsteinn og Arnar Þór þá staðreynd að sama fréttin um ,,Skæruliðadeild Samherja" birtist samtímis í báðum útgáfum, Stundinni og Kjarnanum. Engir aðrir fjölmiðlar birtu fréttina þennan morgun.  Þegar tilfallandi byrjaði að kynna sér byrlunar- og símastuldarmálið, haustið 2021, var það samtímabirting sömu fréttar annars vegar og hins vegar skyndileg breyting á starfsstöð Aðalsteins, sjá 1. hér að neðan, sem kom honum á sporið.

Tveir fjölmiðlar með sömu fréttina á sama tíma er sterk vísbending um skipulag. Einhver sá til þess að einmitt þessir tveir miðlar sátu einir að fréttinni. Að kveldi dags þann 21. maí 2021 skrifaði Þóra Arnórsdóttir, sem var yfirmaður Aðalsteins þrem vikum fyrr, sjá 1. hér að neðan, eftirfarandi færslu á einkareikning sinn á Facebook:

Mér er eiginlega þvert um geð að deila þessu. En stundum þarf að gera fleira en gott þykir.

Með færslunni deildi Þóra frétt Aðalsteins á Stundinni. Hvers vegna sagði Þóra ekki stolt frá því að Aðalsteinn væri strax farinn að skúbba á Stundinni, þrem vikum eftir að hann hætti á RÚV? Hvers vegna gaf Þóra til kynna, með orðunum ,,þvert um geð," að frétt Aðalsteins væri subbufrétt, eiginlega á mörkum þess að standa undir nafni? 

Þegar á daginn kom að Aðalsteinn á Stundinni og Þórður Snær á Kjarnanum hringdu í Pál skipstjóra með ellefu mínútna millibili 20. maí 2021, daginn fyrir birtingu, þurfti ekki frekari vitnanna við. Spurningin var aðeins hver skipulagði. Frúin á Glæpaleiti varð strax líkleg tilgáta.

Leiðari Aðalsteins og Arnars Þórs frá í gær er afhjúpandi fyrir þær sakir sem ekki er fjallað um. Hér eru atriði sem leiðari tvímenninganna þegir um enda segja þau sögu sem sakborningarnir í niðurfelldri lögreglurannsókn vilja ekki að heyrist.

1. Aðalsteinn tilkynnti á Facebook starfslok á RÚV/Kveik þrem dögum fyrir byrlun Páls skipstjóra Steingrímsson, eða 30. apríl 2021. Aðalsteinn hætti fyrir hádegi á RÚV en var kynntur sem nýr liðsmaður á Stundinni eftir hádegi sama dag. Einsdæmi er að blaðamaður skipti um vinnustað í hádeginu. 

2. Páli skipstjóra var byrlað kvöldið 3. maí heima hjá sér á Akureyri. Um nóttina varð að lífga hann við með til þess gerðum tækjum. Hann var tæknilega dauður um stund, áður en lífgunartilraunir báru árangur. Flogið var með hann meðvitundarlausan á gjörgæslu Landsspítalans um hádegisbil daginn eftir. Síðdegis sama dag, 4. maí 2021, fer þáverandi eiginkona skipstjórans með síma hans yfir götuna, Bústaðarveg, sem liggur á milli spítala og RÚV á Efstaleiti. Á RÚV tekur á móti henni Arnar Þórisson framleiðslustjóri á Kveik. Þau setjast inn á skrifstofu, Arnar fer fram og sækir yfirmann sinn, Þóru Arnórsdóttur. Þau þrjú fara á aðra skrifstofu þar sem þriðji RÚV-maðurinn bíður. Hann tekur við símanum úr höndum Þóru. Daginn eftir fær konan síma skipstjórans afhentan á ný og skilar honum á sjúkrabeð Páls, sem var enn meðvitundarlaus. Skipulagið er byrla, stela, afrita og skila.

3. Fyrir byrlun, eða í apríl 2021, var Þóra búin að kaupa Samsung-síma, samskonar og Páls skipstjóra og valdi á hann símanúmer sem var það sama og á síma skipstjórans, nema síðasti tölustafurinn, 680 2140, en númer Páls var 680 214X. Úr afritaða símanum á RÚV með númerið 680 2140 voru einkagögn Páls send á Kjarnann og Stundina, m.a. skjáskot sem voru tekin af samskiptum skipstjórans. Skjáskotin voru notuð til að myndskreyta. Sjálfar fréttirnar voru að öllum líkindum skrifaðar á RÚV og sendar með tölvupósti á Stundina og Kjarnann til birtingar. 

4. Veturinn og vorið 2021 voru eiginkonan og Páll skipstjóri í skilnaðarferli. Skilnaðarlögmaður konunnar var Lára V. Júlíusdóttir. Í rannsóknagögnum lögreglu er tölvupóstur frá konunni dagsettur 3. október 2021. Viðtakendur eru Lára V. Júlíusdóttir, Þóra Arnórsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður og fyrrum sakborningur. Textinn:

Sæl Lára.
Ég gef hér með Þóru Arnórsdóttur og Aðalsteini Kjartanssyni umboð til að ná í símkortin mín til þín ef þau óska eftir því að fá þau í hendur ásamt öðru efni sem þú kannt að hafa frá mér.

Dagsetningin, 3. október 2021, er mikilvæg. Búið var að boða konuna í fyrstu yfirheyrslu, sem fór fram tveim dögum síðar. Konan átti tvo síma, enda talar hún um ,,símkortin" í tölvupóstinum. Augljóst er af samhenginu að um er að ræða svar konunnar við tilmælum um að hún veiti aðgang að símkortum sínum, sem geyma samskiptaupplýsingar. Hvers vegna vildu blaðamenn komast í einkagögn konunnar ef hún var þeim ókunn og óviðkomandi?

5. Áður en konan veitti blaðamönnum aðgang að símkortunum á skrifstofu Láru var Þóra Arnórsdóttir í reglulegu sambandi við konuna, samkvæmt símtalaskrá í gögnum lögreglu. Þann 24. ágúst 2021 töluðu þær saman í átta skipti. Hluti samskiptanna er í sms-skeytum. Þar ráðleggur Þóra konunni að ,,breyta ÖLLUM lykilorðum alls staðar." Þá fer Þóra fram á að konan afhendi ónafngreindum manni einkasíma sinn. Þóra skrifar:

Hann vill helst ekki hittast (mjög varkár maður, skiljanlega) en spyr hvort þú treystir honum fyrir símanum einn dag?

Leiðari Aðalsteins og Arnars Þórs nefnir ekkert af atriðum 1.- 5. hér að ofan. Fyrstu þrjú atriðin lúta að undirbúningi og framkvæmd tilræðisins gegn Páli skipstjóra. Seinni tvö snúa að viðbrögðum fyrrum sakborninga eftir að lögreglurannsókn hefst. Atriði 2.- 5. sýna veruleg tengsl við andlega veika konu sem byrlaði eiginmanni sínum, stal síma hans og færði blaðamönnum. 

Með þögn sinni um þessi efnisatriði viðurkenna tvímenningarnir að þeir hafa ekki frásögn sem rímar við þekktar staðreyndir úr málsgögnum lögreglu. Fleiri efnisatriði eiga eftir að bætast við er skipstjórinn fær aðgang að öllum rannsóknargögnum. Hingað til er aðeins hluti gagnanna kominn í umferð til sakborninga og brotaþola.

Leiðarinn eyðir löngu máli í að gagnrýna rannsókn lögreglu. Mestu mistök lögreglunnar eru þau að byrja ekki strax að rannsaka aðdraganda byrlunar og þjófnaðar. Tilfallandi hefur þar samúð með lögreglunni. Á Íslandi á það ekki að gerast að RÚV er miðstöð alvarlegra afbrota, þar sem tekið er við stolnum síma er fékkst með byrlun. En það gerðist.

Það þekkist ekki á fjölmiðlum, hvorki hér né erlendis, að ein ritstjórn taki við gögnum og vinni úr þeim en láti fréttirnar síðan í hendur ritstjórna annarra fjölmiðla. En einmitt þetta gerðist. RÚV tók við síma skipstjórans og afritaði og sendi efnið til birtingar í Stundinni og Kjarnanum. RÚV vissi ósköp vel að fréttirnar héldu ekki máli. En það mátti freista þess að birta þær í jaðarmiðlum til að reisa reiðibylgju í samfélaginu. Það tókst. Reiðibylgjan var notuð til að réttlæta fréttirnar. En ef fréttirnar áttu erindi til almennings hvers vegna birti RÚV þær ekki? Hvers vegna þessi leyniaðgerð RSK-miðla? 

Þegar Aðalsteinn skipti um vinnustað í hádeginu 30. apríl 2021, af RÚV á Stundina, var sími skipstjórans ekki kominn í hús á Efstaleiti. En Þóra Arnórsdóttir var búin að kaupa Samsung-síma til að afrita síma skipstjórans. Eru tveir plús tveir ekki fjórir?


Byrlun, þjófnaður og afritun: blaðamenn gætu náð sáttum

Byrlunar- og símastuldarmálið liggur fyrir í megindráttum. Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlað 3. maí 2021, síma hans var stolið og fluttur á RÚV til afritunar þann 4. maí. Eftir afritun var símanum skilað á sjúkrabeð skipstjórans. Þann 21. maí birtist sama fréttin í tveim útgáfum í óskyldum miðlum, Stundinni og Kjarnanum.

Persónur og leikendur í málinu eru þekktir. Byrlari og þjófur er fyrrum eiginkona skipstjórans. Hún glímir við andleg veikindi. Sex blaðamenn, sem fengu stöðu sakborninga, tóku við símanum og véluðu með gögnin sem voru afrituð. 

Undirbúningur var að byrlun, stuldi, afritun og fréttaflutningi. Afritunarsíminn var keyptur fyrir byrlun og þjófnað. Undirmaður Þóru Arnórsdóttur ritstjóra Kveiks á RÚV, Aðalsteinn Kjartansson, flutti starfstöð sína frá RÚV yfir á Stundina 30. apríl 2021, þrem dögum fyrir byrlun. Fréttirnar tvær, sem birtust samtímis í Stundinni og Kjarnanum 21. maí, eru af sama stofni.

Er fyrir liggur að alvarleg afbrot voru framin með vitund og vilja blaðamanna, að ekki sé sagt beinni aðild, ætti flestum að vera ljóst að við svo búið má ekki standa. Byrlunar- og símastuldarmálið þarf að upplýsa. Fjölmiðlar hafa vonum seinna áttað sig á að fyrir þá sjálfa, og blaðamannastéttina í heild, er mikilvægt að hið sanna um atburðina vorið 2021 komi í ljós. Viðtengd frétt, byggð á viðtali Andrésar Magnússonar við Sigurð G. Guðjónsson lögmann, sýnir vaxandi vilja fjölmiðla til að upplýsa málið. Vísir tekur málið upp.

Sakborningar og samtök þeirra, Blaðamannafélag Íslands, stukku ofan í skotgrafirnar þegar lögreglan tilkynnti niðurfellingu málsins. Vörn þeirra er að halda lokaðan félagsfund í næstu viku til að ráða ráðum sínum. Yfirbragðið er að fámenn klíka hafi málað sig út í horn og leiti huggunar í sameiginlegu skipbroti. Umræða á lokuðum félagsfund mun engu breyta og ekkert upplýsa. Tiltrú almennings á fjölmiðlum og blaðamönnum vex ekki, þvert á móti.

Óupplýst mun byrlunar- og símastuldarmálið eitra samfélag blaðamanna og fjölmiðla um langa hríð. Allir tapa; fjölmiðlar, blaðamenn og almenningur sem nýtir sér þjónustu þeirra. Mesta tapið bera sakborningarnir sjálfir. Nöfn þeirra verða órjúfanlega tengd óupplýstu sakamáli. Játning og sættir myndu aftur opna leiðina inn í siðað samfélag.

Tilfallandi vill benda á sáttaleið sem uppfyllir það skilyrði að málið verði upplýst annars vegar og hins vegar veit á sættir málsaðila. Á mánudag kvaðst tilfallandi þeirrar skoðunar að sættir mættu ekki takast, að málið yrði sem lengst á dagskrá umræðunnar. Tilfallandi hefur endurmetið afstöðu sína og telur farsælast, hvað alla málsaðila áhrærir, að sættir takist. Undir formerkjum sannleikans. 

Formleg staða málsins í dag er að niðurfelling þess stendur þangað til annað er ákveðið. Páll skipstjóri á þann kost að kæra niðurfellinguna til ríkissaksóknara, hefur til þess þrjár vikur. Ef kæra ber ekki árangur getur skipstjórinn höfðað einkamál, fleiri en eitt, á hendur blaðamönnum, RÚV og Heimildinni (áður Stundin/Kjarninn). Rannsóknargögn lögreglu, sem skipstjórinn fær í hendur, munu undirbyggja væntanlega málssókn.

En skipstjórinn gæti líka sleppt því að kæra niðurfellinguna og ekki farið í einkamál.

Tilfallandi talar ekki fyrir hönd skipstjórans en þykist vita að fyrir hann persónulega skipti mestu máli að fá vitneskju um hvernig það atvikaðist að honum var byrlað vorið 2021, síma hans stolið til afritunar og ráðist var á einkalíf hans. Upplýsingarnar eru í höndum fyrrum sakborninga. Blaðamennirnir vita öll málsatvik. Að því leytinu eru þeir í sterkri stöðu á meðan dómsmál hafa ekki risið, hvorki af hálfu ákæruvalds né skipstjóra. Blaðamenn búa að upplýsingum sem eftirspurn er eftir og geta veitt þær af fúsum og frjálsum vilja. Glugginn til sátta lokast um leið og málið fer fyrir dóm, hvort heldur fyrir atbeina ákæruvalds eða brotaþola.

Það væri í þágu blaðmanna sjálfra, sakborninganna sex, stéttarinnar í heild og fjölmiðla almennt að upplýsa málsatvik og sættast. Málsaðilar gætu haldið áfram með líf sitt eftir slíkt uppgjör. Óupplýst mál heldur áfram að eitra, skaðinn verður mestur þeirra sem bera sakir.

Undir lögreglurannsókn stóðu sakborningar saman allir sem einn og fengu stuðning frá Stefáni Eiríkssyni útvarpsstjóra. Hópurinn getur sýnt sömu samstöðuna, en nú með reisn og manndómi, og lagt spilin á borðið. Sannleikurinn gerir menn frjálsa - og er forsenda sátta. 

 

 


mbl.is Byrlunarmálinu alls ekki lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu, Stalíngrad Sjálfstæðisflokks

Miðflokkur Sigmundar Davíðs mælist 19 prósent hjá Gallup, Kristrún og Samfylking með 26. Frá síðustu könnun bætir Miðflokkur við sig þrem prósentustigum; Kristrún og félagar standa í stað.

Báðir flokkarnir hagnast á óvinsældum sitjandi ríkisstjórnar. Óvinsældirnar stafa ekki af slæmu árferði til sjávar og sveita (les: efnahagsmálum] eða stórvandræðum í afmörkuðum sviðum - nema ef vera skyldi útlendingamálum. Ekki svo að skilja að allt sé í fínu standi á Fróni en fjarstæða að ástandið sé í kalda koli.

Meginástæða óvinsælda ríkisstjórnarinnar er að hún átti sinn tíma fyrsta kjörtímabilið, 2017-2021, en varð viðskila við samtíma sinn í kringum kófið. Gagnólíkir flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir, fundu samnefnara, að forða landinu frá viðvarandi stjórnarkreppu, en hafa hvor í sínu lagi verið í vörn með sín stefnumál. Ef Sjálfstæðisflokki verður ágengt með einhver mál bitnar það á Vinstri grænum og öfugt. Þriðji stjórnarflokkurinn, Framsókn, ríður ekki feitum hesti frá orrahríðinni, mælist með sex prósent.

Langtímaþróun telur einnig. Sjálfstæðisflokkur líður enn fyrir kratisma sem hann tileinkaði sér eftir hrun. Með réttu eða röngu var frjálshyggju kennt um hrunið. Viðbrögð sjálfstæðismanna var að halla sér að alþjóðlegum kratisma, fylgisspekt við Brussel, bæði ESB-skrifstofuna og Nató-deildina. Þróun síðustu ára, einkum frá 2016 (Brexit og Trump) er mótdræg miðhægriflokkum með værðarleg stefnumál forsjárkennd.

Sjálfstæðisflokkur mælist með 14 prósent fylgi. Þrír stærstu flokkarnir eru skv. Gallup með 59 prósent stuðning kjósenda. Er nær dregur kosningum, og haldi núverandi fylgi í grófum dráttum, verður spurt hvort raunhæf sé ríkisstjórn Samfylkingar, Miðflokks og Sjálfstæðisflokks.

Pólitískt eiginlega ekki. Miðflokkur og Samfylking eru kannski ekki eins og olía og vatn, en stappar nærri. Gagnvart þeim tveim er Sjálfstæðisflokkur kominn í hlutverk Framsóknar í sitjandi ríkisstjórn.

Raunsæir kjósendur, ekki bundnir á flokksklafa, og þeir eru giska stór hópur, munu taka með í reikninginn á kjördag hvaða ríkisstjórnarmynstur sé í kortunum. Þar mun skipta máli hvaða skilaboð flokksformennirnir senda á síðustu dögum kosningabaráttunnar og hvernig pörun þeirra virkar á hug kjósenda.

Að þessu sögðu er langt í kosningar. Gömul sannindi eru að vika er langur tími í pólitík. Enn eru ómannaðir framboðslistar og það er þekkt jarðsprengjusvæði. Litlir flokkar sem verða stórir í könnunum skila ekki alltaf mældu fylgi í hús á kjördag.

Síðasta mæling Gallup sýnir að sókn Samfylkingar er á enda runnin í bili. Mjúka miðvinstrið hennar Kristrúnar hefur kjörþokka sem ræðst meira af þreytu á mussuvinstri VG en sannfæringu að Garðabæjarfrúin sé komin með fulla stjórn á óreiðuliðinu sem löngum ræður ferðinni í Samfylkingu. Velgengni skæruliðablaðamanna sem ganga til liðs við flokkinn í von um uppreist æru byrlaðs mannorðs verður mælikvarði á hvað þykir stofustáss í híbýlum Kristrúnar. 

Vandræði Sjálfstæðisflokksins eru sýnu mest af þrem stærstu flokkunum. Veikt þriðja sæti flokksins í þingkosningum yrði katastrófa. Óvíst er hvort Bjarni gefi kost á sér áfram. Missir yrði af honum. Bjarni er góður og gegnheill maður, þótt honum verði á mistök eins og gengur. Flokkurinn sakar þess að hafa ekki menn eins og Brynjar Níelsson og Sigríði Á. Andersen á fremsta bekk. Gefi Bjarni frá sér formennskuna er helst líklegt að Áslaug Arna nái flokksvopnum í tæka tíð fyrir kosningar. Áslaug Arna er voguð er aðrir hika. Sjálfstæðismenn leggja helst ekki á tæpasta vað. Í Stalíngrad-stöðu bjóðast ekki kostir án áhættu. 

 


Sigríður Dögg hitti sakborninga, fréttabann af fundinum

Sigríður Dögg formaður Blaðamannafélags Íslands hitti í gær sex fyrrum sakborninga í byrlunar- og símastuldsmálinu. Sigríður Dögg tilkynnti fundinn í Silfrinu á RÚV mánudagskvöld. ,,Við erum öll að fara að hittast á morgun [þriðjudag], þessir sexmenningar og lögmaður okkar til að ræða næstu skref," sagði formaðurinn. En það komu engar fréttir af fundinum í gær. Núll, nix, ekkert.

Fréttabann af fundinum er stórfurðulegt. Formaður BÍ segir á RÚV að hann ætli að funda með sex sakborningum, allt blaðamenn, sem voru skornir úr snörunni, a.m.k. tímabundið, með niðurfellingu lögreglu á sakamálarannsókninni s.l. fimmtudag. Efnið er aktúelt, spennandi og varðar mikilvæg samfélagsmálefni. Almenning varðar miklu hvort blaðamenn hafi sérstakar heimildir til lögbrota, líkt og formaður þeirra heldur fram.

Fundurinn er stórfrétt hvernig sem á allt er litið. Hvað var rætt á fundinum? Hver eru viðbrögð blaðamanna? Hyggjast blaðamenn krefja lögreglu um afsökun? Ætla þeir í málssókn? Myndi BÍ borga þá málssókn? Hvað segja blaðamenn um þá yfirlýsingu lögreglu að afbrot var framið, sími Páls skipstjóra var afritaður á RÚV, en ekki tókst að sanna hvaða blaðamenn afrituðu? Er aðild að þjófnaði hluti af starfslýsingu blaðamanna? Hvað segja siðareglur að blaðamenn eigi að gera er þeir hafa vitneskju um yfirvofandi afbrot, byrlun og þjófnað? Eiga blaðamenn að þegja og hirða afraksturinn af alvarlegum lögbrotum?

Ofanritað er aðeins hluti af þeim spurningum sem æskilegt er að blaðamenn myndu spyrja starfsfélaga sína, fyrrum sakborninga, og formann blaðamanna, Sigríði Dögg. Til að halda almenningi upplýstum um hlutverk og skyldur blaðamanna. Brýnt málefni, sem sagt.

En engar fréttir eru sagðar. Ekki einu sinni hvar fundurinn var haldinn og hve lengi fundurinn stóð og hvaða ,,næstu skref" voru rædd. Það er eins og fundurinn hafi ekki farið fram - tilkynnti Sigríður Dögg þó opinberlega með sólarhringsfyrirvara að til stæði að halda hann. Það væri sjálfstæð frétt ef fundurinn hefði verið tekinn af dagskrá og hvers vegna.

Í staðinn fyrir frásögn af boðuðum fundi í gær birtist á heimasíðu Blaðamannafélagsins tilkynning um að í næstu viku verði pressukvöld, opinn fundur um byrlunar- og símastuldsmálið.

Eina myndefnið með tilkynningu Blaðamannafélagsins er stór mynd af Þorsteini Má forstjóra Samherja. Ha, hugsaði tilfallandi með sér, ætlar Þorsteinn Már að tala á pressukvöldi blaðamanna? Nei, við lestur kemur á daginn að myndin af Máa er til að vekja athygli, smetti sakborninga trekkja ekki. Forstjóri norðlensku útgerðarinnar er aftur maður sem þjóðin þekkir og tekur mark á. En Mái verður sem sagt ekki á vettvangi, aðeins fyrrum-fólk að þegja um drýgðar syndir sem sópað var undir teppið á Glæpaleiti.

Á pressukvöldinu verða vinnubrögð blaðamanna til umræðu. Sigríði Dögg dettur ekki í hug að leita eftir aðild frægasta þolanda íslenskra blaðamanna fyrr og síðar, Páls skipstjóra Steingrímssonar. Enginn í annálum fjölmiðla hefur mátt þola viðlíka atlögu að heilsu sinni, fjölskyldu og einkalífi en einmitt skipstjórinn. Fundur með yfirskriftinni Skipstjórinn og sakborningarnir sex myndi troðfylla Hörpuna. Stefán útvarpsstjóri gæti verið fundarstjóri.


Mjúkt vald vestrænt og harkan sex

Í Úkraínu stendur mjúkt vestrænt vald, fjármagn og vopn ásamt efnahagsþvingunum, andspænis hörðu rússnesku hervaldi og fer halloka. Í Miðausturlöndum hefur mjúkt vestrænt vald haldið aftur af herskáum Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sem eftir fjöldamorð Hamas 7. október á síðasta ári kýs hart stríð á stórum skala fremur en smáskærur. Drápið á Nasralla var ,,sögulegur vendipunktur," segir Netanjahú.

Frá lokum kalda stríðsins fyrir rúmum þrjátíu árum ræður ferðinni í heimsmálum mjúkt vald vestrænt. Stríðsátök eru hófleg og afmörkuð. Efnahagsmáttur vesturlanda, veita fjármunum hér en beita efnahagsþvingunum þar, nægði til að halda lokinu á mestu óöldinni í flestum heimshornum.

Innrás Rússa í Úkraínu fyrir bráðum þrem árum skoraði á hólm vestrænt vald mjúkt. Naetanjahú í Ísrael dregur þá ályktun að fordæmið frá Úkraínu sé nothæft í stríðinu við öfgamúslíma, einkum Hams á Gasa og Hisbolla í Líbanon. Helsti bakhjarl hryðjuverkasamtakanna er Íran, sem á þessari öld hefur fært út áhrifasvæði sitt og látið sér í léttu rúmi liggja mýktina í vestrænni andstöðu.

Einleikur Netanjahú er auðveldari sökum þess að helsti handhafi vestræna mjúka valdsins, forseti Bandaríkjanna, er leigjandi fremur en húsráðandi i Hvíta húsinu.

Í skugga mjúka valdsins óx á vesturlöndum samúð með hörðu valdi hryðjuverkasamtaka á borð við Hamas og Hisbolla. Samúðin kemur einkum frá vinstrimönnum. Þeir eru feitir af velmegun, gefnir fyrir sjálfshirtingu og finna upphafningu í manngerðu loftslagi, trans og Hamas-Hisbolla. Samkrulluð hálfvitaspeki einkennir vinstrimenn allt frá dögum Marx.

Hægrimenn sjá í Netanjahú ljósbera. Ísrael berst fyrir vestrænni siðmenningu, skrifar Charles Moore i Telegraph. Í sömu útgáfu skrifar sjálfur Jordan Peterson grimma greiningu á íslamblæti vestrænna vinstrimanna og hvetur til upprætingar á aðalóvini vestursins, sem er Íran og öfgamúslímar.

Klerkarnir í Íran eru taktískir bandamenn Pútín Rússlandsforseta. Frá Íran hafa Rússar fengið drónatækni sem hentar vel á vígvellinum í Úkraínu. Þegar öll spjót standa á Íran og hryðjuverkafélögum vilja klerkarnir ólmir fá rússneskar hljóðfráar eldflaugar til að herja á Ísrael og hentug bandarísk skotmörk. Hingað til fær Íran ekki eldflaugarnar. Ástæðan er að vestrið hefur enn ekki leyft Úkraínu að nota langdrægar eldflaugar, bandarískar og breskar, á skotmörk djúpt í Rússlandi. Vestrænn ótti í Miðausturlöndum veldur hiki í Úkraínu.   

Netanjahú mun vera í þokkalegu talsambandi við Pútín. Ísraelski forsætisráðherrann er herskár en ekki dómgreindarlaus. Pútín er raunsær, lítt gefinn fyrir öfgamúslíma en réttir klerkum spámannsins hæfilega hjálparhönd í baráttu við sameiginlegan óvin. Fái Úkraína heimild frá vestrinu að nota langdrægar eldflaugar á Rússland fær Íran hljóðfráar flaugar frá Rússum. Enginn segir neitt upphátt en sumir eru huglausir, trúa ekki á málstaðinn. 

Harkan sex í Jerúsalem og Kreml er ríkjandi, hinsegin vald mjúkt og vestrænt er á undanhaldi. 

 


mbl.is Ísrael sendir herlið inn í Líbanon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimildir gegn blaðamönnum vegna byrlunar og símastulds

Þögn og flótti eru viðbrögð fyrrum sakborninga í byrlunar- og símastuldsmálinu. Málið var fellt niður um hádegisbil á fimmtudag með tilkynningu lögreglu. Það voru beygðir og brotnir blaðamenn sem meðtóku boðskapinn enda rúnir trausti og tiltrú. Þórður Snær er hættur blaðamennsku, leitar á náðir Samfylkingar, Aðalsteinn sagðist vonsvikinn, Þóra ítrekar ekki kröfu sína um afsökun frá lögreglu, Ingi Freyr er í felum á RÚV og léttadrengurinn Arnar Þór er stúmm.

Hvers vegna stigu blaðamennirnir ekki sigurdans á götum og torgum umræðunnar og tvíefldust í störfum sínum? Tvær ástæður eru nærtækar. Í fyrsta lagi er bláköld staðreynd að síma skipstjórans var stolið í þágu blaðamanna og afritaður af þeim. Í öðru lagi þora blaðamenn ekki fyrir sitt litla líf að útskýra fyrir almenningi hvað þeim gekk eiginlega til með beita fyrir vagn sinn andlega veikri konu og skipuleggja aðgerð sem minnir meira á hryðjuverk en blaðamennsku. Það voru ekki stoltir fullhugar sem fengu niðurfellda sakamálarannsókn heldur menn sem fara með veggjum.

Kjarninn i niðurfellingu er að afbrot voru framin af hálfu blaðamanna en ekki tókst að sanna óyggjandi hvaða blaðamaður framdi hvaða afbrot. Með því að blaðamenn neituðu að gefa lögreglu upplýsingar tóku þeir glæpinn á sig sem hópur - og sitja uppi með það. Félagar í glæpaklíkum hafa oft þennan háttinn á, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Heiðarlegir borgarar sem verða aðilar að sakamáli segja vanalega frá málsatvikum sem best þeir vita. Ekki blaðamenn RSK-miðla. Í yfirlýsingunni segir:

Það er mat Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að ekki hafi tekist að sanna hver afritaði símann, hvernig og hver afhenti öðrum upplýsingar um einkamálefni brotaþola. Þeir sem birtu fréttir upp úr gögnum símans fengu réttarstöðu sakbornings auk þeirra sem sannað er að höfðu verið í samskiptum við þann sakborning [eiginkonuna fyrrverandi] sem afhenti símann til fjölmiðla. (feitletr. pv]

Páll skipstjóri Steingrímsson fær upplýsingar frá lögreglu um hvaða blaðamenn herjuðu á fárveika þáverandi eiginkonu hans. Hann fær upplýsingar um hvenær blaðamenn hringdu, hve oft og hve lengi var talað. Einnig fær hann eftirrit af hljóðritum samtölum og öðrum gögnum, bæði milli blaðamanna og við konuna. Sérlega upplýsandi verður að sjá hvaða blaðamenn voru í sambandi við konuna fyrir byrlun. Engar líkur eru á að texti/afrit sé af þeim samskiptum; gögnum var skipulega eytt, eins segir í yfirlýsingu lögreglu. En það eitt að símtöl voru á milli konunnar og blaðamanns/blaðamanna fyrir byrlun segir töluverða sögu.

Þau samskiptagögn sem eru komin í umferð hjá fyrrum sakborningum og þolanda eru öll frá ágúst 2021 og yngri. Símtalaskrár frá apríl og maí 2021 gefa upplýsingar hvort og í hve miklum mæli blaðamenn voru í samskiptum við byrlara skipstjórans áður en látið var til skarar skríða 3. maí 2021. Vitað er að Þóra Arnórsdóttir á Kveik keypti í apríl Samsung-símann sem notaður var til að afrita síma skipstjórans.

Heimildirnar sem um ræðir eru gögn sem nýtast vel til að fylla eyðurnar í byrlunar- og símastuldsmálinu með persónum og leikendum. Þar sem um er að ræða heimildir úr lögreglurannsókn þýðir ekkert fyrir fyrrum sakborninga að bera á þær brigður. Þeirra eigin stafrænu spor eru vitnisburðurinn.

Skipstjórinn mun meta þessi gögn og hvort þau gefi tilefni til að kæra niðurfellingu málsins til ríkissaksóknara. Einnig getur hann farið í skaðabótamál fyrir þann miska sem hann og fjölskyldan varð fyrir af hálfu blaðamanna. Meiðyrðamál kemur einnig til álita. Blaðamenn tóku stolin einkasamtöl og skrumskældu þannig að hvítt varð svart eins og samanburður á fréttum og samtölum leiðir í ljós. Hér er aðeins talað um blaðamenn. RÚV og Heimildin (áður Stundin og Kjarninn) bera einnig stórar sakir sem tilefni er til að fá mat dómstóla á. Fjölmiðlar sem stunda glæpi meðfram fréttaflutningi eru vart friðhelgir fyrir skaðabótakröfum.

Tilfallandi kæmi ekki á óvart að fyrrum sakborningar, ásamt RÚV og Heimildinni, myndu gera skipstjóranum sáttartilboð. Vonandi þó ekki. Byrlunar- og símastuldsmálið er þess eðlis að full ástæða er að það verði dagskrá næstu þrjú til fjögur árin. Víðtæka lærdóma má draga af málinu, fyrir blaðamennsku og fjölmiðlun annars vegar og hins vegar opinbera umræðu. 


Stefán: óþarfi að ræða afritun stolins síma á RÚV

Í viðtengdri frétt er viðtal við Stefán Eiríksson útvarpsstjóra RÚV. Þar segir:

„Málið snýr að rann­sókn lög­reglu sem lokið er með niður­fell­ingu máls­ins og þar með lok­um þess, nema þeirri ákvörðun verði snúið við,“ skrif­ar Stefán í skila­boðum til blaðamanns en tek­ur fram að það sé ekk­ert tengt þessu máli sem hann þurfi að ræða.

Í yfirlýsingu sem fylgdi niðurfellingu byrlunar og símastuldsmálins segir lögreglan á Norðurlandi eystra:

Í júlí síðastliðnum upplýsti sakborningur um að hafa afhent fréttamanni RÚV símann í húsnæði RÚV í Reykjavík. Sá hafi kallað til annan starfsmann RÚV sem tók við símanum og fór með hann til þriðja aðila sem hann gat ekki upplýst um hver hefði verið. Þessir starfsmenn RÚV hefðu verið með símann í sólarhring og sakborningur hefði komið daginn eftir á RÚV og fengið símann afhentan aftur.

Stefán útvarpsstjóri segir ,,ekk­ert tengt þessu máli sem hann þurfi að ræða." Útvarpsstjóri telur sjálfsagt að starfsmenn RÚV séu í sambandi við byrlara út í bæ, fái frá honum stolinn síma og afriti með leynd. Taki síðan stolin gögn og komi á framfæri við valda fjölmiðla til að valda miska og meiðingum.

Aðeins leyniþjónustur og hryðjuverkasamtök haga sér með þessum hætti.

Hvað er út í kaffinu á Efstaleiti?


mbl.is Stefán ætlar ekki að tjá sig um byrlunarmálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þórður Snær leitar skjóls í Samfylkingu (staðfest)

Fyrrum sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu, Þórður Snær Júlíusson, gekk ekki í raðir Pírata, líkt og tilfallandi sagði í gær, heldur Samfylkingu. Nýniðurfelldur sakborningurinn opinberaði í fréttatilkynningu að hann væri genginn til liðs við Kristrúnu og félaga. 

Hvers vegna gengur blaðamaður eins og Þórður Snær í stjórnmálaflokk? Og það daginn eftir að hann fær niðurfellingu á rúmlega tveggja ára stöðu sem sakborningur, grunaður um glæp. Skyldi ætla að hann tvíefldist sem blaðamaður og erjaði sama garð og síðustu áratugi. Hvers vegna, spyr Björn Bjarnason, ,,stjórnmálavæðist" fyrrum sakborningur og ritstjóri?

Hér er ekki öll sagan sögð, ekki frekar en í byrlunar- og símastuldsmálinu. Í tilkynningu Þórðar Snæs, um að hann hefði skráð sig í Samfylkingu, er önnur frétt sem skýrir stjórnmálavæðingu fyrrum sakbornings. Með orðum Þórðar Snæs:

hef ég tilkynnt stjórnendum Morgunvaktarinnar á Rás 1 að ég sé hættur að greina efnahagsmál og samfélag á þeim vettvangi, en það hef ég gert óslitið síðan í byrjun árs 2019. Greiningin á þriðjudag var því sú síðasta. Það passar ekki saman, að mínu viti, að taka þátt í skipulögðu flokksstarfi og sinna því hlutverki.

Þórður Snær hefur haft þann bitling á RÚV að fá greitt verktakalaun fyrir að koma fram vikulega og ræða efnahagsmál. Sem stendur er Þórður Snær atvinnulaus. Er líklegt að hann hafi gefið frá sér RÚV-bitlinginn af frjálsum vilja?

Hafi Þórður Snær um hríð velt fyrir sér stjórnmálaþátttöku, líkt og hann segir i tilkynningu í gær og skráð sig í Samfylkingu, ,,eftir töluverða yfirlegu og fjölmörg samtöl", hvers vegna kvaddi hann ekki hlustendur RÚV síðast liðinn þriðjudag? RÚV-bitlinginn hafði hann haft í fimm ár. Kurteisi hefði verið af hans hálfu að þakka fyrir sig á vettvangi RÚV.

Eina rökrétta skýringin er að hann vissi ekki á þriðjudag að álitsgjöfin í ríkisfjölmiðlinum yrði sú síðasta. Þórður Snær gaf ekki frá sér RÚV-bitlinginn. Bitlingurinn var tekinn af honum. Með tilkynningu um að hann sé orðinn félagi í Samfylkingu býr Þórður Snær til skýringu á uppsögninni.

Samfylkingarmenn hafa ekki beinlínis ruðst fram á opinberan vettvang til að fagna að fyrrum sakborningur sé orðinn félagi í flokknum. Skal engan undra. Með Þórði Snæ fylgir byrlunar- og símastuldsmálið.

Málsvörn Þórðar Snæs í sakamálinu, sem var fellt niður í fyrradag, er efnislega að það er í lagi að blaðamenn taki við stolnum síma manns sem var byrlað. Einnig er til fyrirmyndar að afrita símann á meðan maðurinn liggur meðvitundarlaus á gjörgæslu. Þá er lofsvert að einn fjölmiðill sjái um afritun en sendi gögnin á aðra fjölmiðla til birtingar. Fjölmiðlar mega sem sagt brjóta lög, ljúga og blekkja í blaðamennsku Dodda. Með í málsvarnarpakkanum fylgir að sjálfsagt sé að djöflast á hjónabandi manna og misnota andlega veika.

Ekki er líklegt að margur samfylkingarmaðurinn vilji gera málsvörn Þórðar Snæs að pólitísku stefnumáli.

Trúverðugleiki skilur á milli feigs og ófeigs í blaðamennsku. Þar er fyrrum sakborningur með málsvörn Þórðar Snæs feigur. Honum er nauðugur kostur að stjórnmálavæða sjálfan sig í von um málafylgju við óverjandi málstað.

Tilfallandi hélt í gær að Píratar yrðu fyrir valinu. En fyrrum sakborningur skráði sig í Samfylkinguna. Í leiðinni skráði hann byrlunar- og símastuldsmálið í flokksbækurnar. Glæpaleiti þvær hendur sínar af Þórði Snæ en þá leitar hann eftir hlutverki hjá Samfylkingunni. 

 

 


Glæpir án refsingar, Þórður Snær í framboð fyrir Pírata

Í byrlunar- og símastuldsmálinu voru glæpir framdir, segir í yfirlýsingu lögreglu, en afbrotin voru ýmist fyrnd, ekki er hægt að hengja þau á tiltekna einstaklinga enda gögnum eytt. Þá er einn sakborninganna ekki heill á geði. Afleiðingin er niðurfelling rannsóknar.

Yfirlýsing lögreglunnar er ein mest sakfellandi niðurfelling sakamáls í íslenskri réttarsögu.

Niðurfellinguna notar Þórður Snær Júlíusson fyrrum ritstjóri Kjarnans/Heimildarinnar til að tilkynna framboð til alþingis fyrir Pírata. Ekki er hægt skilja á annan veg þessi orð fyrrum sakbornings, sem DV gerir skil:

Málið hefur breytt sýn minni á samfélagið og hafði áhrif á að ég ákvað að skipta um kúrs í lífinu. Það hefur sýnt mér að ef maður stendur ekki upp og berst fyrir því sem er réttlátt, sanngjarnt og satt, jafnvel þótt að valdamesta fólk landsins sé mótaðilinn, þá gerir það enginn fyrir mann.

Þórður Snær ,,skipti um kúrs í lífinu" í sumar þegar hann varð undir í valdabaráttu hluthafahóps Heimildarinnar og hrökklaðist úr starfi ritstjóra. Núna kennir hann lögreglu um nýjan kúrs með stefnu á þingmennsku sjálfum sér til hagsbóta og lífsviðurværis. Um baráttu undirmálsmannsins gegn ,,valdamesta fólki landsins" er það að segja Doddi stefndi tilfallandi bloggara, sem trauðla telst til valdamanna. Fyrrum sakborningur tapaði málinu. Hæstiréttur staðfesti að blaðamenn eru ekki hafnir yfir aðra í samfélaginu, líkt og sá fyrrverandi heldur.

Framboðsdraumar Þórðar Snæs fá stuðning frá Birni Leví, þingmanni Pírata. Spuni félaganna að lögreglurannsóknin hafi verið tilefnislaus jafngildir að einum þingmanni á alþingi, og öðrum sem stefnir þangað, finnst allt í sóma að byrla til að stela gögnum, þjóni það pólitískum hagsmunum. 

Yfirlýsing lögreglu staðfestir meginfrásögnina af byrlunar- og símastuldsmálinu. Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlað á Akureyri 3. maí 2021 af þáverandi eiginkonu, sem hafði verið í sambandi við blaðamenn. Á meðan skipstjórinn var meðvitundarlaus á gjörgæslu Landsspítalans í Reykjavík, 4. til 6. maí, fór konan með síma eiginmannsins yfir götuna á milli Landsspítala og RÚV á Efstaleiti og afhenti blaðamönnum. Síminn var afritaður á RÚV; þar var unnið með gögnin. Fréttir með vísun í gögnin birtust samtímis í Stundinni og Kjarnanum þann 21. maí 2021. Allir blaðamennirnir gætu hafa brotið af sér gagnvart skipstjóranum, segir í yfirlýsingu lögreglu:

Sakarefni samkvæmt 228. og 229. gr. alm. hgl. lýtur að brotum á friðhelgi einkalífs meðal annars með því að hnýsast í, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildarleysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einkamálefni viðkomandi. Þar er afstaða Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að allir sakborningar í málinu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokkast undir brot á framangreindum ákvæðum. [...]

Það er mat Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að ekki hafi tekist að sanna hver afritaði símann, hvernig og hver afhenti öðrum upplýsingar um einkamálefni brotaþola.

Þórður Snær og aðrir fyrrum sakborningar hafa enga aðra sögu að segja en þá sem rakin er hér að ofan og byggir á yfirlýsingu lögreglu. Blaðamenn komust undan ákæru þar sem ekki tókst að sanna glæpi á tiltekna blaðamenn, segir lögreglan. Í okkar réttarfari eru brotlegir einstaklingar ákærðir, ekki hópar. Sú málsvörn blaðamanna heppnaðist að ljúga með þögninni. Gögnum var eytt til að hylja slóðina, segir lögreglan ennfremur: ,,Ekki tókst að afla fullnægjandi stafrænna gagna þar sem þeim hafði verið eytt..."  

Í gögnum lögreglu, þeim sem þegar hefur dreift til málsaðila, kemur fram að Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks, fór fram á að veika konan léti af hendi einkasíma sinn til manns á vegum Þóru. Samskiptin fóru fram 24. ágúst 2021. Lögreglurannsókn var hafin og blaðamenn höfðu áhyggjur af gögnum í einkasíma veiku konunnar. Þóra skrifaði sms-skilaboð:

Hann vill helst ekki hittast (mjög varkár maður, skiljanlega) en spyr hvort þú treystir honum fyrir símanum einn dag?

Varla vildi Þóra að ,,varkári maðurinn" kæmist í síma konunnar, sem játaði byrlun og þjófnað, til að spila tölvuleik í einn sólarhring?

Morgunblaðið hafði samband við Þórð Snæ, eftir að hann birti framboðsfærslu sína á Facebook, og innti hann eftir frekari viðbrögðum. Í frétt mbl.is segir:

Þórður neitaði að tjá sig frek­ar um málið í sam­tali við mbl.is og vísaði ein­ung­is á færslu sína. 

Ha? Virkilega Þórður Snær? Getur þú ekki gert betur en þetta, sendir frá þér yfirlýsingu og gefur ekki færi á spurningum? Ætlar samt í þingmennsku fyrir Pírata. Enn á flótta.

Þórður Snær þorir ekki að útskýra hvernig fréttin hans um skæruliðadeild Samherja varð til. Honum til upprifjunar er dómur í héraðsdómi Reykjavíkur, í máli Aðalsteins Kjartanssonar gegn tilfallandi. Dómurinn féll í vor og bíður áfrýjunar í landsrétti. Í dómnum segir að tilfallandi hafi

verið heimilt að halda því fram í bloggfærslu sinni að fréttaflutningur blaðamannanna hefði byggst á upplýsingum sem aflað hefði verið með refsiverðum hætti...

Ennfremur, segir í dómnum, er

óumdeilt í málinu að fréttaflutningur stefnanda [Aðalsteins], sem hann hlaut verðlaun fyrir, byggðist að hluta til á gögnum er tilheyrðu Páli Steingrímssyni.  

Þórður Snær fékk verðlaun fyrir sömu frétt og Aðalsteinn. Lögreglan segir fréttir blaðamanna fengnar með byrlun og símastuldi; héraðsdómur staðfestir. En blaðamennirnir segjast ekki hafi gert neitt rangt. Sökin sé öll hjá lögreglunni sem dirfðist í óþökk blaðamanna að rannsaka byrlun, stuld og afritun.

Aðalsteinn tekur til máls á mbl.is og segir vont að lögreglan efist um heilindi hans sem blaðamanns. Saklaus Aðalsteinn var boðaður til yfirheyrslu hjá lögreglu í febrúar 2022. Hann lét ekki ná í sig fyrr en í ágúst sama ár. Þannig haga sér ekki menn með hreinan skjöld.

Páll skipstjóri Steingrímsson á þann kost að kæra niðurfellingu rannsóknarinnar til ríkissaksóknara. Valinkunnur hæstaréttarlögmaður sendi tilfallandi þessa ábendingu:

Athyglisvert að ekki er ákært fyrir hlutdeild í byrlunar og símamáli eins og virðist gráupplagt: „Hver sá maður, sem með liðsinni í orði eða verki, fortölum, hvatningum eða á annan hátt á þátt í því, að brot samkvæmt lögum þessum er framið, skal sæta þeirri refsingu, sem við brotinu er lögð.“ – Vitað er hvert brotið var og hverjir liðsinntu. Það þarf ekki að liggja fyrir hver hinn brotlegi aðalmaður er þegar ákært er fyrir hlutdeild.

Tilfallandi er ólöglærður og ætlar ekki að draga stórar ályktanir. Hitt er öllum ljóst að byrlunar- og símastuldsmálið verður ekki tekið af dagskrá í bráð. Gögnin sem lögregla aflaði eru enn ekki öll komin fram og verður ekki pakkað ofan í skjalageymslu.

Burtséð frá mögulegri kæru til ríkissaksóknara er viðbúið að skipstjórinn höfði einkamál vegna þess miska sem blaðamenn gerðu honum og fjölskyldu hans. Blaðamenn gerðu miskunnarlausa atlögu að skipstjóranum og beittu fyrir vagn sinn fárveikri eiginkonu hans. Tímasetning dómsmáls gæti farið saman við kosningabaráttu Þórðar Snæs að komast á alþingi fyrir Pírata. Gangi Doddanum vel að sannfæra kjósendur að hann sé heiðarlegur maður. 

 

 

 

 


mbl.is Rannsókn í byrlunar- og símamáli felld niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband