Fimmtudagur, 19. ágúst 2010
Björgólfsfeðgar kaupa söguna
Björgólfur Guðmundsson keypti sér nýja Hafskipsögu þegar hann kom heim með Rússagullið. Varnarritið Hafskip í skotlínu eftir Björn Jón Bragason er keypt saga um sakleysi Björgólfs af skipafélaginu sem reyndi útrás um miðjan níunda áratug síðustu aldar og sigldi í gjaldþrot á fáum mánuðum. Björgólfur hlaut dóm fyrir.
Björgólfur Thor gengur í smiðju föður síns og kaupir sér nýja sögu. Ætlun hans er að endurskrifa sögu feðganna frá því þeir komu með Rússagullið heim í byrjun aldar frá háborg rússnesku mafíunnar í Pétursborg en þar efnuðust feðgarnir á áfengissölu.
Björgólfi eldri varð nokkuð ágengt með að endurskrifa söguna og var nærri búinn að kaupa sér sakleysi með því að fá áheyrn um endurupptöku Hafskipsmála. En svo kom hrunið 2008 og nýju fötin Björgólfs reyndust engu efnismeiri en í ævintýrinu.
![]() |
Reynt að fegra stöðu bankans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010
Hákarlafjárfestir kennir hagfræði
Björgólfur Thor reyndi að byggja alþjóðlegt fjármálaveldi á Íslandi. Hann keypti í félagi við föður sinn ig viðskiptafélaga Landsbankann. Elsti og virðulegasti banki landsins var Björgólfi ekki nóg og hann hafði því líka fjárfestingabankann Straum Burðarás til að sýsla með krónurnar sínar.
Fjármálastarfsemi Björgólfs og íslensku auðmannanna hrundi haustið 2008. Það var ekki krónan sem olli hruninu heldur glæfraspil Björgólfs og félaga.
Björgólfur Thor kallaði sig á tímabili umbreytingafjárfesti. Honum tókst að umbreyta íslensku hagkerfi í ruslahrúgu. Núna vill Björgólfur Thor vera tekinn í sátt sem hagspekingur. Jamm.
![]() |
Byggt á veikustu örmynt veraldar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010
Landráð eru svik við land og þjóð
Umræðustjórinn Egill Helgason skensar mig fyrir að nota orðið landráð um umboðslausa aðildarumsókn Samfylkingarinnar til Evrópusambandsins. Egill segir orðið stórt og ekki við hæfi en útskýrir ekki nánar skilning sinn á orðinu. Í pistli mínum tók ég dæmi úr danskri umræðu þar sem landráð var haft um ráðabrugg Kristjáns 9. að setja Danmörku inn í þýskt ríkjasamband á 19. öld.
Hér er eitt elsta dæmið um landráð á íslensku og er það frá 18. öld
Landrad, oluckuleg bruggiørd a mote sijnu Fødurlande
Landráð eru þegar þjóð er svikin og vald framselt til útlendinga. Niðurstöður kosninganna vorið 2009 voru að 70 prósent þjóðarinnar höfnuðu óskum Samfylkingarinnar um stuðning við að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Engu að síður var umsókn send þrem mánuðum síðar.
Það eru svik og það eru landráð.
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010
Landráð dönsk og íslensk
Kristján 9. konungur Dana bauð Vilhjálmi 1. Prússakonungi að Danmörk yrði hluti af sambandi þýskra ríkja árið 1864. Þýska ríkjasambandið var forveri Evrópusambandsins, tilrauninni var frestað 1871 þegar stofnað var til Þýskalands en haldið áfram eftir seinna stríð.
Danir líta svo á að boð Danakonungs hafi verið landráð þar sem ekki var haft samráð við ríkisstjórn landsins sem hafði umboð þjóðarinnar.
Á Íslandi gerist það 2009 að stjórnmálaflokkur sem í nýafstöðnum kosningum fær 29 prósent fylgi knýr alþingi til að samþykkja aðlögun að Evrópusambandinu. Samfylkingin var eini flokkurinn sem bauð Evrópusambandið í kosningunum vorið 2009 og 70 prósent þjóðarinnar hafnaði tilboðinu.
Innlimun Íslands í Evrópusambandið með kostun frá Brussel er hafin á ábyrgð ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur.
Hér er um að ræða landráð samkvæmt venjulegum skilningi þess hugtaks.
![]() |
Bauð Þjóðverjum Danmörku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010
Bandalag Baugs og Samfylkingar lifir hrunið
Jón Ásgeir Baugsstjóri og Samfylkingin stofnuðu til bandalags veturinn 2003. Jón Ásgeir þurfti að ryðja Davíð Oddssyni þáverandi forsætisráðherra frá völdum til að skapa sér aukið svigrúm og Samfylkingin sá í fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeir tækifæri til að hafa áhrif á opinbera umræðu.
Samfylkingin barðist með oddi og egg gegn frumvarpi um fjölmiðlalög sem áttu að koma böndum á yfirgang Jóns Ásgeirs vorið 2004. Ríkisstjórnin var gerð afturreka með málið þar sem þríeina bandalag Samfylkingar, forseta lýðveldisins Ólafs Ragnars Grímssonar og Baugsveldis sigraði ríkisvaldið.
Orð Páls Magnússonar um þjónustulund ríkisbankans við Baug staðfesta að Samfylkingin lítur enn á Jón Ásgeir sem bandamann sinn þrátt fyrir hrun og eyðilegginguna sem beint má skrifa á reikning Jóns Ásgeirs.
Samfylkingin er réttnefnd Baugsfylking.
![]() |
Segir Landsbankann hafa staðið á bak við Jón Ásgeir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010
Eftirlýstur Sigurður
Sigurður Einarsson var í efstu deild útrásarauðmanna og einn af höfundum heimskuvaðalsins um að Norðurlönd og Bretland væru ,,heimamarkaður" íslensku fyrirtækjanna sem fóru hamförum í áhættufjárfestingum með fé lífeyrissjóða og almennings.
Þegar Sigurður sá endalokin nálgast stóð hann fyrir stöðutöku Kaupþings gegn krónunni en seldi viðskiptavinum bankans samninga um að krónan styrktist.
Sigurður varð eins um margir auðmannanna sannfærður aðildarsinni þegar þeir voru búnir að brenna upp íslenskt efnahagslíf.
Sigurður hefur um skeið verið eftirlýstur en það er engin eftirspurn eftir honum.
![]() |
Sigurður Einarsson kominn til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010
Auðrónadeildin gerir Sjálfstæðisflokkinn auðvelda bráð
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifar skynsama grein í Morgunblaðið um skuldastöðu ríkissjóðs og bendi á 100 milljarðar króna fara í vaxtagreiðslur. Við svo búið megi ekki standa. Allir ættu að geta tekið undir sjónarmið þingmannsins. Aftur á móti eyðileggur orðspor þingmannsins málflutning hans og þar með Sjálfstæðisflokksins.
Þingmaðurinn er Guðlaugur Þór Þórðarson oddviti auðrónadeildar Sjálfstæðisflokksins. Guðlaugur Þór þáði fé frá ónafngreindum auðmönnum til að reka pólitík þeirra í nafni sjálfstæðismanna. Guðlaugur Þór fékk á sig tillögu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um að víkja.
Greinin í Mogganum í dag sýnir að Guðlaugur Þór ætlar að standa keikur. Viðbrögð út í samfélaginu sýna að hann er þægilegt skotmark og um leið er Sjálfstæðisflokkurinn auðveld bráð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010
Valkvæð heimska í HÍ
Umsókn Samfylkingarinnar um aðild Íslands að Evrópusambandinu dregur fram lítilmótlegustu eiginleika aðildarsinna. Í Fréttablaðinu í dag skrifar prófessor við Háskóla Íslands grein þar sem vísvitandi blekkir í þágu Evrópusambandsins. Grein Baldurs Þórhallssonar heitir Landnám ESB? Dregin er upp mynd af félagsskap þar sem allir eru vinir allra og una sér glaðir við leik og störf. Hjárænulegt gagnrýnisleysi prófessorsins hæfir málefninu.
Í viðleitni sinni til að fegra Evrópusambandið sem félagsskap jafnrétthárra ríkja er deila bróðurlega milli sín völdum skrifar Baldur eftirfarandi
Í þessu sambandi má benda á þá mikilvægu staðreynd að Ísland á í aðildarviðræðum við tuttugu og sjö ríki sambandsins. Hvert og eitt þeirra hefur neitunarvald í viðræðunum.
Samkvæmt orðanna hljóðan gerir Evrópusambandið út 27 viðræðunefndir til að hitta Íslendinga. Vitanlega er þetta bull. Evrópusambandið kemur fram sem ein heild gagnvart Íslandi enda þjóðríki búin að framselja margvísleg völd til Brussel. Lissabon-sáttmálinn er grundvöllur Evrópusambandsins og samningar við Ísland ganga út á hvernig við aðlögum okkur að lögum og reglum sambandsins.
Á fundum Samfylkingarinnar hefur Baldur dregið upp aðra mynd af ferli Íslands inn í sambandið en hann gerir í Fréttablaðsgreininni í dag. Eins og fjarska margir aðildarsinnar er Baldur tvöfaldur í roðinu; elítan má heyra sannleikann en almenningur ekki. Menntahroki helst ágætlega í hendur við hjárænu prófessorsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010
Mafíuvæðingu OR lokið eða nýr kafli?
Auðrónadeildir tveggja flokka létu greipar sópa um sjóði og auðlindir OR. Alfreð Þorsteins og Björn Ingi Hrafnsson úr Framsóknarflokki; Guðlaugur Þór Þórðarson og Vilhjálmur borgarstjóri úr Sjálfstæðisflokki. Magma-málið í dag er skilgetið afkvæmi auðrónadeildanna.
Brandaraflokkurinn og tækifærissinnar í Samfylkingu þurfa fljótt og vel að sýna fram á að tilgangurinn með forstjóraskiptunum sé að snúa baki við mafíuvæðingu fyrri ára.
Ef minnsti grunur kviknar um að verið sé að búa til pláss handa flokksgæðingi eða kunningja er tiltrú meirihlutans farin og kemur ekki aftur út kjörtímabilið.
![]() |
Helgi Þór forstjóri OR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010
Ríkisbanki í stríði við stjórnvöld
Íslandsbanki er ríkisbanki sem grefur undan stjórnvöldum. Sérstök orkuútrásardeild starfar í bankanum undir forsæti Árna Magnússonar fyrrverandi ráðherra. Deildin vélar með Magmamálið enda var Árni með forstjóra Magma á Íslandi á alræmdri ráðstefnu í Bandaríkjunum í vor þar sem svikamyllan átti að fá lögmæti.
Ríkisstjórnin gaf út yfirlýsingu um að vinda skuli ofan af Magma-málinu. Samt sem áður tekur Íslandsbanki við greiðslu frá Magma, en bankinn er með þrotabú Geysis Green á sinni könnu.
Steingrímur J. á að gera Birnu bankastjóra orð að hún losi sig við kvislingadeildina - að öðrum kosti losar þjóðin sig við bankann lóðbeint í gjaldþrot.
![]() |
Magma hefur greitt fyrir hluta bréfanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)