Sigmundur Davíð og tilboðið: valdeflum almenning

Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn gera almenningi tilboð sem vert er að íhuga. Á hverju ári verði afgangi ríkissjóðs skipt í tvo hluta. Almenningur, þ.e. sérhver íslenskur ríkisborgari, fær helminginn en helmingurinn fer annað tveggja til lækkunar opinberra skulda eða í varasjóð.

Almenningur fengi með þessu fyrirkomulagi tvöfaldan ávinning. Í fyrsta lagi beingreiðslu einu sinni á ári - ef það er afgangur af ríkissjóði. Í öðru lagi stæði almenningur betur að vígi gagnvart stjórnmálamönnum, þingi og framkvæmdavaldi, Árlega gæti almenningur krafið stjórnvöld um útskýringu á hvernig gengi að reka ríkissjóð.

Stjórnmálamenn munu keppast um að þegja í hel tilboð Sigmundar Davíðs og Miðflokksins. Hvers vegna skyldi það vera?


mbl.is Vill skila afgangi úr ríkissjóði til almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíminn, kynin og Katrín

Líffræðileg kyn eru tvö, kennd við karl og konu. Án tveggja kynja verður líffræðileg þróun óskiljanleg. Þróunarkenning Darwins um uppruna tegundanna er merkingarleysa ef við gefum okkur að kyn sé val einstaklingsins og félagslega skilgreint. Fyrir miðja síðustu öld var til hugmyndafræðin félagslegur Darwinismi. Allir með eitthvað á milli eyrnanna forðast þá hugmyndafræði.

Lög sem segja kyn valkvætt eru andvísindaleg og brjóta gegn heilbrigðri skynsemi. Katrín forsætis og Vinstri grænir telja sig sjálfsagt gera góðverk með lagasetningunni. Öðru nær, því miður. Ef við hættum að taka gott og gilt sem blasir við og er undirstaða skilnings okkar á lífinu og tilverunni er hætt við að fleira fari í súginn.

Við mælum aldur í dögum, vikum, mánuðum og árum, jafnvel mínútum ef því er að skipta. Ólíkt kynferði, sem er gefin stærð í náttúrunni, eru mælieiningar tímans mannlegur tilbúningur. Samt dettur engum í hug að leyfa fólki að ákveða sjálft hversu gamalt það er. 84 ára kraftlyftingakona getur með rökum sagt sér líða ekki deginum eldri en sextugt. Ætti hún að fá heimild til að breyta aldri í þjóðskrá? Vitanlega ekki.

Við þurfum fastar afmarkaðar staðreyndir í tilverunni til að heimurinn sé skiljanlegur. Fastar afmarkaðar staðreyndir eru hornsteinar. Án þeirra blasir við merkingarleysa og óreiða. Ef karl í dag getur orðið kona á morgun er heimurinn óskiljanlegur.

Líffræði verður ekki breytt með lögum. Að stjórnvöld sæmilega upplýstrar þjóðar skuli reyna það segir ókræsilega sögu um dómgreind stjórnvalda. 


mbl.is Katrín svarar Sigmundi um fjölda kynja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ styður Sigmund Davíð

Drífa Snædal forseti ASÍ vill að heimilin fái tækifæri til að lækka skuldirnar. Útspil Drífu kemur sama dag og Sigmundur Davíð kynnir tillögur um skattalækkun.

Fullveldislækkun skatta kæmi til útborgunar 1. desember ár hvert, samkvæmt tillögum Sigmundar Davíðs. Fólk hefði val að lækka skuldir heimilisins eða gera vel við sig í jólamánuðinum.

Sigmundur Davíð og Miðflokkurinn mega vel við una að fá stuðning ASÍ.


mbl.is Hafa áhyggjur af áhrifum á skuldsetningu heimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni, Ási ráðherra og rasismi góða fólksins

Afganir fengu land sitt til baka þegar talibanar ráku bandarískan her úr landi. 20 ára tilraun vesturlanda að gera Afganistan vestrænt lauk þar með. Tilraunin kostaði billjónir í dollurum og tugi þúsunda mannslífa.

Bjarni Harðarson vekur athygli á rasisma góða fólksins í viðbrögðum þess við innreið talibana í Kabúl. Góða fólkið á vesturlöndum þykist vita betur en Afganir hvernig eigi að lifa lífinu í Afganistan.

Í sama Fréttablaði og grein Bjarna birtist segist Ásmundur Einar félagsmálaráðherra vera í kapphlaupi við tímann að bjarga þjóð frá sjálfri sér.

Sem sagt kapphlaup að búa til flóttamenn í Afganistan til að þeir fari skömmu síðar sem ferðamenn til heimalandsins.

Hroki og hleypidómar góða fólksins ríða ekki við einteyming.


Hærri vextir, heilbrigðara hagkerfi

Einkenni á hagkerfum í kreppu eru núllvextir, eins og í Evrópu, Japan og Bandaríkjunum síðustu ár. Núllvextir skapa aukna misskiptinu auðs enda fá þeir mestu verðmætin sem síst þurfa á þeim að halda.

Ísland slítur sig frá núllvöxtum með hækkun stýrivaxta sem þó eru í sögulegu lágmarki eða 1,25%.

Enn og aftur sýnir krónuhagkerfið íslenska yfirburði sína gagnvart núllvaxtahagkerfum.

Kveðja frá krónuvinafélaginu.


mbl.is Seðlabankinn hækkar vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afganir: flóttamenn eða ferðamenn?

Afganir koma til Íslands sem flóttamenn en fara aftur til Afganistan sem ferðamenn. 

Hvort eru þeir flóttamenn eða ferðamenn? 

Ferðamennskan er í íslenskan ríkissjóð og peningaflóttinn er til Afganistan.

Er ekki einfaldara að senda peninga beint út? Meintir flóttamenn eru óþarfur milliliður.


mbl.is Þrjár fjölskyldur komnar heim frá Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot Seðlabanka og RÚV fyrnd

Þagnarskyldubrot Seðlabanka Íslands og RÚV gagnvart Samherja árið 2012, og eru upphaf Samherjamála í fleirtölu, fyrndust árið 2017.

Í bréfi vararíkissaksóknara kemur fram að brotin varði frá einu til þriggja ára fangelsi.

Seðlabankinn og RÚV sleppa á tæknilegu atriði - fyrningu.


mbl.is Kæra Samherja felld niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hryðjuverkaógn frá Afganistan

Bresk yfirvöld stöðvuðu Afgana sem talinn er ógn við þjóðaröryggi Bretlands. Maðurinn kom í breskri flugvél frá Kabúl er flutti flóttamenn frá Afganistan.

Samkvæmt Telegraph var maðurinn einn af fimm á lista breskra yfirvalda yfir mögulega hryðjuverkamenn sem reyndu að komast til Bretlands undir því yfirskini að vera flóttamenn.

Fjórir af fimm voru stöðvaðir á flugvellinum í Kabúl en sá fimmti komst ekki undir manna hendur fyrr en hann var lentur í Bretlandi - í breskri herflugvél.


mbl.is 16 þúsund fluttir frá Kabúl á sólarhring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland gerði ekki innrás í Afganistan

Íslendingar bera ekki ábyrgð á Afganistan. Ekki frekar en að við berum ábyrgð á Suður-Afríku, Hvíta-Rússlandi, Venesúela, Súdan, Noregi eða Jemen.

Mál skipast með ýmsum hætti í heimsbyggðinni. Íslendingar ráða ekki ferðinni, hvorki í alþjóðapólitík né í innanríkismálum einstakra þjóða.

Framlag Íslendinga til heimsmenningarinnar er að sýna fram á að fámenn þjóð getur skapað þegnum sínum eftirsóknarverð lífskjör án þess að tapa menningu sinni. Stórþjóðir austan hafs og vestan þykjast kannski vita hvernig á að reka samfélag og segja smærri þjóðríkjum fyrir verkum. Það er Íslendingum framandi að segja öðrum þjóðum hvernig þær skuli haga sínum málum.

Ísland getur lagt gott til þegar því er að skipta. En við eigum ekki að láta útlönd segja okkur fyrir verkum. Við reyndum það í 700 ár og það gafst illa. 


mbl.is Tillögur flóttamannanefndar til þriggja ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ástin gaslýst - og pólitík

Gaslýsing í ástarsambandi er þegar annar aðilinn telur makanum trú um hluti sem ekki eru í krafti sannfæringar og kennivalds. Hrafnhildur Sigmarsdóttir útskýrir gaslýsingu í pistli.

Tilfallandi athugasemd er að öll ástarsambönd geta orðið gaslýst. Ást felur í sér að tveir einstaklingar gefast hvor öðrum á vald, eða einhverju eða öllu leyti. Tæplega er hægt að tala um ástarsamband ef það er ekki gert.

Tilfallandi ráðlegging til þeirra sem íhuga ástarsamband er að velja sér ekki ástarviðfang sem býr yfir meiri sannfæringu og kennivaldi en það sjálft. Sérstaka varúð ættu aumingjagóðir að sýna. Aumingjar búa einatt yfir sannfæringarkrafti enda yfirleitt búnir að sannfæra sjálfa sig að þeir séu fórnarlamb vondra manna. 

Tilfallandi skemmtisaga um hvernig reynt er að færa hugmyndina um gaslýsingu úr nánum samböndum, þar sem hún á heima, yfir á pólitískan vettvang er fjögurra ára gömul grein ritstjóra Kjarnans.

Þórður Snær Júlíusson skrifaði

Tæknin sem beitt er kallast á ensku gaslighting, eða gaslýsing, og er þekkt pólitískt bragð. Í henni felst að neita stanslaust allri sök, afvegaleiða, setja fram mótsagnir, ljúga upp á fólk afstöðu, hengja sig í öll aukaatriði og hanna nýja atburðarás eftir á sem hentar málstað þess sem er að verja sig.

Tilgangur Þórðar Snæs var að sannfæra lesendur að Sjálfstæðisflokkurinn væri flokkur barnaníðinga.

Fjórar vikur eru til alþingiskosninga. Þórður Snær mun leggja sitt af mörkum til að útskýra hverjir eru góðir og hverjir vondir. Dómgreind ritstjórans er ekki upp á marga fiska. Eins og dæmin sanna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband