Þriðjudagur, 20. júlí 2010
Mútur virka á Samfylkinguna, en Björk afþakkar
Auðmenn, innlendir sem erlendir, vita að málafylgju Samfylkingarinnar er hægt að kaupa. Baugur keypti þingflokk Samfylkingarinnar í heilu lagi og Björgólfur Thor sömuleiðis fyrir gagnaverið sitt. Ross Beaty hefur ekki gefið upp hvar hann hefur borið niður í fjárstuðningi til íslenskra stjórnmálaflokka en það væri stílbrot ef Samfylkingin væri ekki á lista hans.
Þegar ríkisstjórnarflokkur er með siðferði Samfylkingar er nærtækt fyrir ókunnugu að halda Íslendinga almennt ginnkeypta fyrir mútufé.
Ross Beaty er nokkur vorkunn að reyna bera fé á Björk Guðmundsdóttir. Kannski hefur einhver logið því að honum að hún samfylki spillingunni.
![]() |
Býður Björk hlut í Magma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 20. júlí 2010
Samfylkingin hótar með útlendingum
Magma-kaupin á HS-Orku eru málamyndagjörningur þar sem auðmönnum er afhent íslensk orka á silfurfati. Samfylkingin ber ábyrgð á gjörningnum, ráðlagði meðal annars stofnun skúffufyrirtækis í Svíþjóð. Þegar Samfylkingin er komin út í horn í málflutningi sínum grípur flokkurinn til þeirra vopna sem forystunni eru töm.
Þingmaður Samfylkingarinnar hótar að erlendirkröfuhafar íslensku bankanna muni eignast HS-Orku ef kaupum Magma verði rift. Því er til að svara að endurreistu bankarnir starfa samkvæmt íslenskum lögum og hundakúnstum af þeirra hálfu yrði mætt með lagasetningu.
Eðlilega gerir Samfylkingin ráð fyrir að bankarnir hafi ekkert lært af hruninu og hagi sér áfram eins og bandíttar. Ekkert lærði Samfylkingin.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 20. júlí 2010
Jón Ásgeir: Fjármálastjórinn gjaldþrota og systa neitar að makka
Dagurinn í dag er sennilega ekki sá happadrýgsti fyrir Jón Ásgeir Jóhannesson kenndan við Baug. Fjármálastjóri og samverkamaður til margra ára úrskurðaður gjaldþrota. Eins og það sé ekki nóg heldur fréttist að systir Jóns Ágeirs neitar að makka með honum og játa að hún hafi falsað undirskrift hans.
Eftir því sem hringurinn þrengist um Jón Ásgeir verða viðbrögð hans furðulegri. Einn daginn kann hann ekki ensku; þann næsta ætlar hann að stefna formanni slitastjórnar Glitnis og þar á eftir ásakar hann systur sína að falsa undirskriftina.
Ef fram heldur sem horfir með Jón Ásgeir er þess ekki langt að bíða að hann mun sverja þess dýran eið að nánasti viðskiptafélagi hans öll útrásarárin hafi verið Davíð Oddsson.
![]() |
Fjármálastjóri 365 úrskurðaður gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Mánudagur, 19. júlí 2010
Útrásarafgangar í boði Samfylkingar
Björk Guðmundsdóttir söngkona fær áheyrn hjá Financial Times vegna andófs gegn kaupum Magma á orkuauðlindum. Björk er kurteis þegar hún segir ríkisstjórnina standa á bakvið söluna. Það er samfylkingararmur ríkisstjórnarinnar sem ber ábyrgð á verknaðinum.
Samfylkingin var ákafasti talsmaður útrásarinnar þegar flestum öðrum var ljóst að auðrónarnir og meðhlauparar þeirra væru skaðræðisgripir.
Samfylkingin spólar í sömu útrásarhjólförum og mun gera á meðan flokkurinn hefur tögl og haldir í ríkisstjórninni.
![]() |
Björk: Afgangar af spillingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 19. júlí 2010
Óstöðugleikinn er tækifæri
Eftir hrun lagðist þjóðfélagið ekki í dróma. Þjóðin dreif sig í að aðlagast breyttum aðstæðum og hafði nægt þrek til að leiðrétta ranga stefnu stjórnvalda t.d. í Icesave-málinu. Fólk taldi marga möguleika í stöðunni þótt ýmsir gerðu ekki annað en að mála skrattann á vegginn. Það var einmitt vegna óstöðugleikans sem almenningur lagði ekki árar í bát.
Eftir dóm Hæstaréttar í gengislánum skapaðist ný óvissa. Fjármálastofnanir og erlenda kröfuhafa sáu kröfur sínar komast í uppnám en skuldarar möguleika á að komast úr feninu.
Annað heiti á óstöðugleika er tækifæri.
![]() |
Dómar Hæstaréttar ógna stöðugleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 19. júlí 2010
Léttsveitin gegn verðhjöðnunarbola
Álagspróf evrópsku bankanna verður birt í lok viku. Eftirvæntingin er nokkur þar sem fastlega er gert ráð fyrir að töluverður fjöldi banka standist ekki prófið. Evrópski Seðlabankinn í samráði við aðildarríki ESB verður með viðbragðsáætlun til að endurfjármagna banka sem ekki standast prófið.
Efasemdir eru um að álagsprófið mæli raunverulega stöðu einstakra banka og evrukerfisins í heild. Í grunninn eru tvær nálganir uppi. Annars vegar að summa bankakerfisins sé heildarfjöldi banka og standist þeir prófið er óhætt að vera bjartsýnn með framhaldið. Hins vegar að kerfislægur vandi í evruhagkerfinu sé þess eðlis að álagspróf á banka eina og sér mæli ekki viðamikla veikleika fjölþjóðasamstarfsins sem standur að baki evrunni.
Ambrose Evans Pritchard fjármálablaðamaður Telegraph ber saman álagspróf bandarískra banka og evrópskra og bendir á að enginn hafi efast um að alríkisstjórnin í Washington komi ekki bandarísku fylki til bjargar þegar í nauðir rekur. Aftur er alls ekki víst að einstök evruríki fái sambærilegan stuðning. Raunar er það harla ólíklegt samanber að Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn var kallaður til Grikklands.
Efnahagspólitík evrusvæðisins er líkt við sögufræga hernaðaraðgerð í Krímstríðinu á 19. öld, Charge of the Light Brigade, Árás léttsveitarinnar, sem var stráfelld í orrustunni um Balaclava.
Eftir hitabylgju síðustu vikna í Evrópu sest hrollur að síðsumars.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Sunnudagur, 18. júlí 2010
Magma-riftun fyrst, kaup á HS-Orku síðar
Þegar búið er að rifta kaupum kanadísk/sænska skúffufyrirtækinu á HS-Orku verður sagt að ríkið og sveitarfélög hafi ekki efni á að kaupa HS-Orku. Þrennt þarf að athuga í þessu samhengi. Í fyrsta lagi eru útrásarverðbólgutölur enn á sveimi um verðmætið. Hannes Smára, Jón Ásgeir, Björn Ingi og fleiri smurðu þykkt á samninga sem þeir gerðu og voru forsmekkurinn að Magma-málinu. Það tekur tíma að vinda ofan af vitleysunni.
Í öðru lagi mun HS-Orka ekki fara neitt þótt óvissa sé í 3-5 ár hvernig eignarhaldi verið háttað. Endurreistu bankarnir eiga skuldirnar og ríkisvaldið hefur í fullu tré við þá. Kúlulánakjánar eins og bæjarstjórinn í Reykjanesbæ munu væla um að ekki sé hægt að leggja í ný stórverkefni á meðan eignarhald er óljóst. Stórverkefni Árna Þórs Sigfússonar og hans nóta eru best geymd í skúffunni.
Í þriðja lagi koma ekki margir kaupendur til greina þegar löggjöf hefur verið endurbætt þannig að ekki verði hægt að braska með orkuauðlindir landsins eða nýtingu þeirra. Á endanum fá ríki og sveitarfélög HS-Orku fyrir sanngjarnt verð.
Laugardagur, 17. júlí 2010
Umsóknin og stærsta undanþágan
Algengustu rök aðildarsinna eru um meintar undanþágur frá regluverki Evrópusambandsins sem möguleiki er að Ísland fái í aðildarviðræðum. Undanþágurnar eiga að gera aðild æskilega. Síbyljan um að ljúka aðlögunarferlinu til að fá niðurstöðu um undanþágurnar er meginröksemd aðildarsinna gegn því að við drögum umsóknina tilbaka.
En hvers vegna ættum við að sækjast eftir aðild að félagsskap til að fá veigamiklar undanþágur frá reglunum?
Stærsta undanþágan er að standa utan Evrópusambandsins. Og þá undanþágu höfum við nú þegar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Laugardagur, 17. júlí 2010
Auðrónastjórnmál eftir hrun
Stórir atburðir skilgreina þjóðir. Hrunið á Íslandi í október 2008 breytti hugarfari okkar, ekki síst stjórnmálahugsun þjóðarinnar. Í aðdraganda hrunsins voru stakir stjórnmálamenn og heilir stjórnmálaflokkar í vasa auðmanna. Ein afleiðing auðvæðingar stjórnmálanna var gagnrýnislaus fylgisspekt við skammtímahagsmuni þar sem lygamilljarðar réðu sannfæringu þingmanna.
Þorsteinn Pálsson var ritstjóri hjá málgagni auðrónanna og skrifar enn í Baugsútgáfuna. Í pistli dagsins ræðir Þorsteinn stjórnmálin eins og ekkert hrun hafi orðið. Samkvæmt Þorsteini er Sjálfstæðisflokkurinn í einangrunarhættu vegna þess að hann lokar á samstarf við Samfylkinguna með því að hafna aðild að Evrópusambandinu og verja ekki söluferlið á orkuauðlindum sem kennt er við Magma.
Auðrónadeild sjálfstæðismanna fékk því framgengt árið 2007 að Sjálfstæðisflokkur bauð Samfylkingu í ríkisstjórn. Úr varð liðleskjustjórn sem spilaði á fiðlu þegar efnahagslífið sökk í fenið. Sjálfstæðisflokkurinn fór sérstaklega illa út úr samstarfinu. Ástæðan fyrir því að Sjálfstæðisflokknum var sparkað út úr ríkisstjórn var að flokkurinn hafði gefið frá sér allt frumkvæði, var ekki með neina stefnu.
Sjálfstæðisflokkurinn er að ná vopnum sínum með harðri afstöðu í Evrópumálum þar sem krafan er að feigðarförin til Brussel verði stöðvuð, eins og Unnur Brá Konráðsdóttir þingmaður er einarður talsmaður fyrir. Óli Björn Kárason þingmaður hvetur til þess að flokkurinn skeri upp herör gegn sukkstemningu fyrir ára þar sem eignarhaldsfélög og stórrekstur með tilheyrandi fákeppni var leiddur til vegs. Óli Björn bendir réttilega á að millistéttin er hryggstykkið í Sjálfstæðisflokknum.
Millistéttin hér á landi er skaðbrennd vegna auðrónanna. Engar líkur eru á því að millistéttin muni ljá máls á nýrri orkuútrás Samfylkingar og hún er þegar búin að hafna Evrópuleiðangri sama flokks.
Auðrónastjórnmál eftir hrun eru aðeins möguleg vegna þess að menn eins og Jón Ásgeir Jóhannesson ganga lausir og eru í stakk búnir að fjármagna Þorstein Pálsson og Baugsútgáfuna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 17. júlí 2010
Skattar á banka skila auðæfum
Skattur sem breski fjármálaráðherrann lagði á bónusgreiðslur banka og átti að skila 550 milljónum punda mun skila fimmfalt hærri skatttekjum. Rúsínan í pylsuendanum er að megnið af skattfénu kemur frá bandarískum bönkum með útibú í Bretlandi.
Samkvæmt Telegraph var skattur lagður á í tvíþættum tilgangi, að hemja ofurbónusa og skila tekjum til ríkiskassans sem hafði verið notaður til að bjarga mörgum bankanum frá gjaldþroti.
Lærdómurinn af þessum skatti er að skattur hefur engin áhrif á inngróna græðgishegðun banka. Við eigum auðvitað að temja okkur þessa reynslu og hefja skattlagningu á endurreistu bönkunum hér á landi sem eru offjármagnaðir og ofmannaðir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)