Kristrún skilgreinir spillingu

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar skilgreindi spillingu í þingræðu 30. mars 2022, rúmri viku eftir að sala á hlutabréfum ríkisins í Íslandsbanka fór fram. Gefum Kristrúnu orðið:

Einn aðili keypti fyrir 55 millj. kr., annar 27, sá þriðji fyrir 11. Þetta er bara það sem við vitum út af tilviljanakenndum upplýsingum. Eru þetta langtímafjárfestar? Eru þeir að taka á sig umtalsverða markaðsáhættu fyrir almenning til að koma þessum banka á markað? Ég frábið mér þann málflutning að þetta sé einhvers konar eðlilegt fyrirkomulag. Það er það ekki. Tilgangurinn með tilboðsfyrirkomulaginu var ekki að leyfa nokkrum fagfjárfestum sem eru að fjárfesta fyrir sitt persónulega bókhald að fá smá afslátt. Svona upphæðir, litlar upphæðir sem vekja minni athygli, geta nefnilega oft gefið til kynna að um spillingu sé að ræða. (undirstrik. pv)

Víkur nú sögunni að persónulegu bókhaldi Kristrúnar. Hún starfaði sem aðalhagfræðingur Kviku fjárfestingabanka í þrjú ár, 2018-2021, en hætti til að verða þingmaður Samfylkingar og formaður flokksins.

Launakjör eru almennt góð hjá fjárfestingabönkum. Auk hárra launa fékk Kristrún kauprétt í hlutabréfum Kviku undir markaðsverði, líkt og tíðkaðist við sölu á ríkishlutnum í Íslandsbanka.

Kristrún keypti hlutafé í Kviku fyrir þrjár milljónir á þriggja ára starfstíma, eina milljón á ári. Kaupauki formanns Samfylkingar er á kostnað hluthafa og viðskiptavina Kviku fjárfestingabanka, segir Vilhjálmur Bjarnason fjárfestir og fyrrverandi þingmaður. Löglegt en siðlaust, eins og frægur íslenskur jafnaðarmaður orðaði það á síðustu öld.

Þriggja milljón króna kaupauki Kristrúnar varð að 101 milljón króna hagnaði þar sem hlutabréf Kviku hækkuðu skarpt. Mál manna var að Kvika fjárfestingabanki myndi eignast Íslandsbanka með samruna. Sem þingmaður og formaður Samfylkingar var Kristrún hlynnt yfirtöku Kviku á Íslandsbanka.

Hlutabréf Kviku fjárfestingabanka hækkuðu m.a. vegna væntinga um að Kvika myndi eignast Íslandsbanka, sem er viðskiptabanki. Við þekkjum ferlið úr aðdraganda hrunsins. Viðskiptabankar geta búið til miklu meiri peninga en fjárfestingabankar. Hluthafar fá ofsagróða i skamman tíma en þjóðin tapar stórkostlega til lengri tíma. Formaður Samfylkingar er með í leiknum og fær sinn hlut refjalaust. Vill þó ekki borga skattinn sinn, líkt og launaþrælarnir Jón og Gunna.

Þegar Kristrún taldi fram til skatts 101 milljón króna hagnað sinn af kaupaukanum hjá Kviku borgaði hún 22 prósent skatt, eins og um fjármagnstekjur væri að ræða. En hagnaðurinn var hluti af launakjörum Kristrúnar hjá Kviku fjárfestingabanka og átti að bera 46,25 prósent skatt.

Formaður Samfylkingar sparaði sér persónulega 25 milljónir króna með röngu skattframtali. Kristrún er með sín persónulegu fjármál á gráu svæði sem kallast skattasniðganga.

Gefum formanni Samfylkingar aftur orðið á alþingi Íslendinga. Svona talar Kristrún 16. nóvember 2022:

Áframhaldandi skortur á trausti almennings gagnvart stjórnmálunum er á ábyrgð hæstv. ríkisstjórnar. Hæstv. ríkisstjórn hefur alið á uppgjöf og ég er hrædd um að fólk sé orðið ansi dofið fyrir þessu prinsippleysi. Í skjóli þessa doða stjórnar ríkisstjórn hæstv. Katrínar Jakobsdóttur. Væntingarnar til þeirra eru engar þegar kemur að málum sem þessum. Ég spyr því hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra: Eru engin prinsipp? Snýst þetta allt um persónur, ráðherrastóla og pólitíska leiki fremur en traust til embætta og stofnana sem hér eru undir?

Jæja, Kristrún. Nú fær formaður Samfylkingar tækifæri til að sýna að hann stendur fast á prinsippum og axlar ábyrgð á spillingunni þegar upp um hana kemst.


Birna, Kristrún og sala Íslandsbanka

Fjárfestingabankinn Kvika ætlaði að eignast ráðandi hlut ríkisins í Íslandsbanka. Til að viðskiptin mættu ganga eftir varð að tryggja stuðning tveggja hagaðila. Í fyrsta lagi urðu æðstu stjórnendur Íslandsbanka að vera hlynntir yfirtöku Kviku.

Birna bankastjóri og Finnur Árnason stjórnarformaður eru oddvitar yfirstjórnar bankans. Þau samþykktu formlega yfirtöku Kviku í febrúar síðastliðnum, undir formerkjum samruna.

Ráðandi stjórnmálaöfl eru hinn hagaðilinn sem varð að blessa yfirtöku á Íslandsbanka. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, og þar með ríkisstjórnin, voru tilbúin að láta samruna Kviku og Íslandsbanka ganga fram. Frjálshyggjusjónarmið frá fyrir hrun, um að ríkið ætti ekki að stunda fjármálastarfsemi, réðu mestu. Sjónarhornið tekur ekki mark á þeirri lexíu að á meðan allir bankar á Íslandi voru ríkisreknir stóðum við aldrei frammi fyrir þjóðargjaldþroti. Eftir að einkaaðilar eignuðust bankakerfið um aldamótin voru aðeins átta ár í hrun. Einkaaðilar á Fróni ráða ekki við freistnivandann sem fylgir rekstri viðskiptabanka.

Eina pólitíska aflið sem er í færum að setja fram valkost við yfirtöku Kviku á Íslandsbanka er Samfylkingin. En þar er formaður Kristrún Frostadóttir fyrrum aðalhagfræðingur Kviku og handhafi 100 milljón króna hagnaðar af hlutabréfaviðskiptum með Kviku-bréf. Hún er enn í liðinu sem gerði hana sterkefnaða á aðeins þremur árum. 

Eftir að samrunaferli Kviku og Íslandsbanka var kynnt í febrúar þagði Kristrún þunnu hljóði. Með þögninni samþykkti formaður Samfylkingar að fyrrum atvinnuveitandi eignaðist Íslandsbanka. Auðvelt hefði verið að gera pólitík úr málinu og bjóða upp á þann valkost að ríkið eigi áfram hlut í bankakerfinu á meðan fjármálamenn ná þroska til að ráða við umsýslu viðskiptabanka. En Kristrún var Kvikubundin og þagði.

Þar með var allt klappað og klárt.

Allt breyttist á mánudag síðast liðinn. Skýrsla er birt um forsölu ríkishluta í Íslandsbanka. Lög voru brotin og farið illa með eigur almennings. Útvaldir fengu sérmeðferð við hlutafjárkaup, alþýðan horfði á sjónarspilið úr fjarlægð. Aðfaranótt miðvikudags varð Birna bankastjóri að segja af sér vegna óróa í samfélagsumræðunni.

Enn var þó pólitísk samstaða um að Kvika eignaðist Íslandsbanka. En svo gerðist það á fimmtudagsmorgun að Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar játaði skattasniðgöngu með 100 milljón króna hagnað sinn af Kviku-bréfum. Um leið opinberast að Kristrún er pólitískt fyrirbrigði sem grunnt er á í Samfylkingunni en kemur alltaf fram í dulargervi smælingjasamúðar. Frjálshyggjujafnaðarmaður sem græðir á daginn og skattasniðgengur á kvöldin. Heiðarlegir frjálshyggjumenn grilla á kvöldin eftir dagsverk á markaði, eins og Hannes Hólmsteinn minnti á fyrir margt löngu.

Síðdegis á fimmtudag varð Kvika banki að játa sig sigraðan. Baklandið brast, bæði í Íslandsbanka, með afsögn Birnu, og í pólitíkinni með afhjúpun á skattasniðgöngu formanns Samfylkingar. Engin pólitísk sátt, engin yfirtaka Kviku-manna á Íslandsbanka. Tilkynningin um slit á samrunaferli er loðin og teygjanleg. Talað er um ,,umræðuna" sem er annað orð yfir pólitískar aðstæður og látin í ljós von um að seinna meir mætti taka upp þráðinn að nýju.

Á bakvið tjöldin er allt á fleygiferð þótt fæst sé gert opinbert. Það sást til stjórnarmanns Íslandsbanka stika stórum fyrir framan heimili sitt og tala í farsíma, líklega til að trufla ekki heimilisfriðinn. Maðurinn sem var að nóttu til gerður að bankastjóra Íslandsbanka fór að kvöldlagi á fimmtudag á fund forstjóra Fossa fjárfestingabanka, sem er ráðgjafi um sölu á eignahlut ríkisins í Íslandsbanka. Er spurðist út að allsherjarklúðrið ylli ekki enn meiri óskunda en orðið var tók hlutabréfamarkaðurinn kipp í gær og sýndi grænt eftir erfiða viku. Enn er opin spurning hvort sakamálarannsókn verði opnuð vegna lögbrota stjórnenda Íslandsbanka. Markaðurinn þolir það.

Viðskiptalífið kyngdi og lætur gott heita í bili. Stjórnmálaheimurinn er annars eðlis. Þar tekur lengri tíma að skilaboð samfélagsins sökkvi niður á það dýpi, að ekki sé sagt fen, þar sem póltíkin ræður ríkjum.

Á vinstri væng stjórnmálanna eru menn með böggum hildar. Vonarstjarnan Kristrún Frostadóttir er afhjúpuð sem skattasniðgangari. Leiðin liggur niður á við fyrir fylkinguna með bestu mælinguna í skoðanakönnunum síðustu misseri. Grein Vilhjálms Bjarnasonar fyrrverandi þingmanns er aðeins byrjunin.  Fjölmiðlakonan Snærós Sindradóttir missti það út úr sér á Rás 2 í gærmorgun (1:12:30) að líklega væri ekki heppilegt að jafnaðarmenn hefðu á sínum snærum ,,auðkonu í stjórnmálum." Snærós er dóttir Helgu Völu þingmanns Samfylkingar.  

Vikan var aftur hagfelld íhaldsmönnum sem vilja stíga ofurvarlega til jarðar við sölu á hlut ríkisins í fjármálakerfinu. Íhaldsmenn muna hrunið betur en frjálshyggjujafnaðarmenn og búa að siðferðislegri kjölfestu sem ekki er mæld í krónum og aurum. 


mbl.is Kvika slítur samrunaviðræðum við Íslandsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband