Selenskí játar veikleika

Í tísti segir forseti Úkraínu ađ óvissa sé veikleiki og vill fá tryggingu fyrir inngöngu landsins í Nató. Tryggđ innganga jafngildir ađild sem nánast sjálfkrafa fćli í sér stríđ Nató gegn Rússlandi. Ekki er vilji til ţess hjá Nató-ríkjum.

Fyrir nokkrum vikum átti leiđtogafundur Nató í Vilníus ađ setja Rússum afarkosti. Hugmyndin var ađ sókn Úkraínu í Saparosía vćri um ţađ bil ađ kljúfa i tvennt hernámssvćđi Rússa og ógnađi Krímskaga er Rússar hernumdu 2014. 

Sumarsókn Úkraínuhers hófst 4. júlí en skilar ekki árangri. Síđustu fréttir af vígvellinu í Saparosíja og Donbass sýna rússneskan ávinning en ekki úkraínskan. Annar mćlikvarđi á framgang Úkraínu er fáar fréttir. Ţeir eru margar ţegar Úkraína sćkir fram.

Tíst Selenskí, sjá hlekk í fyrstu málsgrein hér ađ ofan, nefnir samningaviđrćđur viđ Rússa. Samningar og afarkostir eru ólíkir hlutir.

Tal Selenskí forseta um samninga viđ núverandi kringumstćđur er meiri veikleiki en óvissan um inngöngu Úkraínu í Nató. Ekki fyrir löngu sögđust ráđamenn í Kćnugarđi fyrst semja viđ Pútín er úkraínskar hersveitir stćđu viđ borgarhliđ Moskvu. Í dag er talađ um samninga á međan Rússar stjórna ţriđjungi Úkraínu.

Úkraínustríđinu lýkur međ samningum, vonandi fyrr en seinna. Líkur standa til ađ ţeir samningar verđi á rússneskum forsendum fremur en úkraínskum.

 

 


mbl.is Liđka fyrir ađild Úkraínu ađ NATO
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Mesta eldgos frá upphafi mćlinga

Nýhafiđ eldgos viđ Litla-Hrút er ţađ mesta á Reykjanesi frá upphafi mćlinga.

Og?

Er ţađ merkilegt?

Nei, svona álíka og viđtengd frétt um ađ ,,fyrsta vikan í júlí var sú heitasta síđan mćlingar hófust."

Náttúruferlar, hvort heldur jarđhrćringar eđa veđurfar, eru ađeins eldri en mćlitćki manna. Ţađ munar sirka 4,5 milljörđum ára.

Ef eitthvađ er mest í náttúrunni hlýtur ađ vera til minnst. Á milli mest og minnst ćtti ađ vera kjörstađa.

Hver er ţá kjörhiti jarđar?

Kjörhiti jarđar er ekki til. Ekki frekar en kjörfjöldi eldgosa.

Fréttin um ,,heitustu viku frá upphafi mćlinga" er merkingarlaus. Alveg eins og fyrirsögnin á ţessu bloggi.

 


mbl.is Heitasta vikan frá upphafi mćlinga
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Kvika í vandrćđum, lánshćfi lćkkađ

Moody‘s lćkkar lánshćfismat Kviku, ólíkt stađhćfingu í fyrirsögn viđtengdrar fréttar. Í meginmáli kemur fram ađ Moody‘s hafi í ţann veginn veriđ ađ hćkka lánshćfismat Kviku fjárfestingabanka, í tilefni af samrunaferli viđ Íslandsbanka, en afturkallađ hćkkun á lánshćfismati er ekkert varđ úr samruna.

Íslandsbankamáliđ, misheppnuđ sala á hlut ríkisins, stöđvađi samrunaferliđ sem var langt komiđ. Komiđ var ađ ţví ađ ákveđa skiptihlutföll í nýju hlutafélagi.

Kvika fjárfestingabanki er yfirtöku- og samrunafélag. Frá stofnun áriđ 2015 sameinast eđa yfirtekur Kvika eitt félag á ári og rúmlega ţađ. Samruninn viđ Íslandsbanka átti ađ verđa tíunda stćkkunin. Stćkkun, ekki rekstur, er sérgrein Kviku.

Stöđug stćkkun fćrir hluthöfum Kviku ríkulegan ábata, eins og Kristrún Frostadóttir formađur Samfylkingar getur vitnađ um. Á síđustu fimm árum hafa hlutabréf Kviku hćkkađ um tćp 130 prósent. Međaltalshćkkun tíu stćrstu fyrirtćkjanna á íslenskum hlutabréfamarkađi er 46 prósent á sama tímabili.

Fjárfestingabanki sem jafn hrađan vöxt og Kvika tileinka sér vćntingar um meira af svo góđu. Ţćr vćntingar taka ekki miđ af raunhagkerfinu heldur Excel-skjölum međ skáldskap um framtíđina. 

Pólitískar forsendur eru ekki lengur fyrir samruna Kviku og Íslandsbanka. Dýr sátt vegna sölu á ríkishlutafé í Íslandsbanka sá til ţess. 

Til er einföld leiđ ađ ná breiđri pólitískri samstöđu um ađ losa hlut ríkisins í Íslandsbanka. Hún er ađ selja árlega eitt prósentustig af eignarhlut ríkisins í bankanum. Ríkiđ myndi ţynna út eignarhlut sinn niđur i núll á rúmum 40 árum.

Kristrún Frostadóttir og ađrir slíkir áhćttufjárfestar dyttu ekki í lukkupottinn ef ţessi ađferđ vćri notuđ. Sumir halda ađ hlutverk ríkisins sé ađ skapa áhćttufjárfestum skyndigróđa. Svo er ekki.

 

 

 

 


mbl.is Moody's stađfestir lánshćfi Kviku
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Jóhann kemur viđ Kviku Kristrúnar

Jóhann Páll Jóhannsson ţingmađur Samfylkingarinnar situr í fjárlaganefnd alţingis. Hann vill ađ nefndin fundi um Íslandsbankamáliđ. Kristrún formađur flokksins er aftur ekki spennt fyrir hávćrri Íslandsbankaumrćđu. 

Tilfallandi nefndi ţögn Kristrúnar Samfylkingarformanns fimmtudagsmorguninn 29. júní, fyrir rúmri viku. Tveim klukkutímum síđar kom skýring á fámćli Kristrúnar. Hún játađi skattasniđgöngu á 100 milljóna króna hagnađi af nýlegum hlutabréfaviđskiptum.

Hagnađur Kristrúnar af hlutabréfum í Kviku fjárfestingabanka er viđkvćmt mál. Kvika var í samrunaferli međ Íslandsbanka međ samţykki og velvilja Kristrúnar en hún var ađalhagfrćđingur Kviku, hćtti ţar gagngert til ađ verđa ţingmađur Samfylkingar. 

Kristrún er innvígđur og munstrađur talsmađur stórkapítalista sem sćkja stíft í ríkiseigur. Eftir ađ hún náđi kjöri sem formađur Samfylkingar haustiđ 2022 óx vegur flokksins í skođanakönnunum. Áfram gakk í átt ađ hćgristjórn til ađ liđka fyrir stórvesírum fjármálageirans. Ţeir eru svo snjallir ađ búa til ímynduđ verđmćti, sem eru frođa ţegar ađ er gáđ. Kristrún kallar frođućfinguna ađ detta í lukkupottinn

Formađur sem skaffar fylgi, ţótt ekki sé nema kannanafylgi, getur skipađ málum ađ vild innan flokks. Kristrún jađarsetti Jóhann Pál og Helgu Völu, sem fannst fátt til nýstirnisins koma og hugnađist ekki hćgrislagsíđan. Sumum ţingmönnum, ekki síst á vinstri vćngnum, líđur betur međ mikil völd í litlum flokki en lítil í stórum. Neitunarvald er vanmetinn ţáttur í pólitík, er oftar en ekki virkjađ á bakviđ tjöldin.

Skattasniđganga Kristrúnar gefur Jóhanni Páli og Helgu Völu tćkifćri til ađ veikja pólitík formannsins án ţess ađ mikiđ beri á. Ţađ gera ţingmennirnir međ hávađa um Íslandsbankamáliđ sem kemur viđ Kvikuna á Kristrúnu.

Formađurinn getur illa beitt sér, kysi helst rólegt pólitískt sumar til ađ vera ekki krafin um nánari skýringar á skattauppgjöri vegna 100 milljón króna hagnađar af hlutabréfaviđskiptum. Samtímis getur formađur Samfylkingar ekki lagst gegn atlögu ađ Sjálfstćđisflokknum og fjármálaráđherra ţegar skotmörkin eru í dauđafćri.

Í orđi kveđnu er Samfylkingin jafnađarmannaflokkur en ekki ţriđja hjóliđ undir vagni fjármálaelítunnar. Kristrúnarleiktjöldin eru hönnuđ til ađ viđhalda ímynd um ađ jöfnuđur fáist međ ójöfnuđi. Kristrún er í pólitík ţađ sem fyrrum yfirmađur hennar, Marinó Örn Tryggvason, er í fjármálum. Samkeppni, sagđi forstjóri Kviku, eykst međ fákeppni. Kristrúnarpólitík er ađ jöfnuđur aukist međ ójöfnuđi. Hvítt er svart og svart hvítt. 

Pólitíkin í Íslandsbankamálinu er í grunninn hvort ţađ sé áfram gakk í átt ađ nýrri hrunstjórn eđa ekki. Neitunarvaldiđ er í höndum liđsfélaga Kristrúnar Frostadóttur formanns Samfylkingar. Sjálf er Kristrún löngu skattasniđgengin í 100 milljóna króna björg.


RÚV finnur vafasamar 20 milljónir, en ekki hjá Sigríđi Dögg

Fréttastofa RÚV fann í Lindarhvolsskýrslu eitt dćmi um ađ ríkissjóđur gćti hafa orđiđ af 20 milljónum króna er ríkiseign var seld fyrir sex árum. Ţetta eina dćmi er nefnt í tveim fréttum RÚV um skýrsluna.

Fyrri fréttin

Sigurđur gerir einnig athugasemd viđ ţađ ađ söluverđ á hlutabréfum í Vörukaupum hafi veriđ lćkkađ úr 151 milljón í 131 milljón

Seinni fréttin

Vafasöm 20 milljóna króna lćkkun kaupverđs á grundvelli óundirritađs minnisblađs frá Deloitte

Ef fréttastofa RÚV ber hag ríkissjóđs fyrir brjósti og telur 20 m.kr. stórfé ćtti Sigríđur Dögg Auđunsdóttir formađur Blađamannafélags Íslands ađ vera nćrtćkt viđfangsefni. Samkvćmt Fréttinni er Sigríđur Dögg ţekkti blađamađurinn sem viđurkenndi skattalagabrot upp á tugi milljóna króna fyrir tveim árum en fékk ađ fela brotiđ sjónum almennings.

Formađur Blađamannafélags Íslands taldi ekki fram tekjur af íbúđum sem hann leigđi ferđamönnum í skammtímaleiga í gegnum Airbnb. Sigríđur Dögg endurgreiddi vangoldinn skatt međ 25 prósent álagi í gegnum einkahlutafélag sitt. Fyrir tveim árum skilađi einkahlutafélagiđ sjö milljón króna hagnađi, samkvćmt Fyrirtćkjaskrá. Árin ţar á undan var engum ársreikningum skilađ.

Formađur stéttafélags blađamanna fékk sérmeđferđ hjá skattayfirvöldum. Ađrir í sömu sporum fengu á sig opinbera málssókn frá saksóknara. Sigríđi Dögg var leyft ađ gera upp vantaldar leigutekjur í gegnum einkahlutafélag, gagngert til ađ blettur félli ekki á starfsheiđur formanns Blađamannafélags Íslands.

Ţađ ćttu ađ vera hćg heimatökin á fréttastofu RÚV ađ grennslast fyrir um undanskot formanns Blađamannafélags Íslands og torkennileg samskipti viđ skattayfirvöld. Ásamt formennskunni er Sigríđur Dögg í fullu starfi á RÚV - sem fréttamađur. 


Lindarhvoll: hver er glćpurinn?

Skýrslan um Lindarhvol er samantekt um sölu ríkiseigna árin 2016-2018. Eigurnar fékk ríkiđ úr slitabúum föllnu bankanna. Einn mađur, lögmađurinn Steinar Ţór Guđgeirsson, var í raun Lindarhvoll. Hann tók ađ sér í verktöku ađ selja ríkiseigurnar og gerđi ţađ frá lögmannsstofu sinni á Túngötu. Félagiđ Lindarhvoll ehf. var stofnađ af ríkinu en hafđi engan starfsmann, ađeins ţriggja manna stjórn.

Steinar Ţór var valinn ţar sem hann ţótti hafa stađiđ sig vel í fyrri uppgjörum hrunmála. Traustir menn óflekkađir af subbuskap útrásar og hruns voru ekki á hverju strái.

Skýrslan gerir ýmsar athugasemdir um hvernig stađiđ var ađ skipulagi og umsýslu Lindarhvols og viđ fyrirkomulag sölu á einstökum ríkiseigum. Fjöldi eigna var 51, í flestum tilfellum hlutafé í starfandi fyrirtćkjum. Andvirđi eignanna var tćpir 400 milljarđar króna. Ekki smápeningar. 

Í skýrslunni kemur fram ađ upplýsingagjöf til höfundar, Sigurđar Ţórđarsonar setts ríkisendurskođanda, hafi ekki veriđ sem skyldi - sem gefur til kynna einhvern feluleik.

Lindarhvoli var faliđ ađ selja ríkiseigur hratt án ţess ađ setja ţćr á brunaútsölu. Ekki er hćgt ađ ráđa í af lestri skýrslunnar hvers vegna áhersla var á ađ hrađa sölunni. En međ ţví ađ stjórnvöld, alţingi međtaliđ, vildu losna greiđlega viđ eigurnar er hćtt viđ ađ sumir hafi gert hagkvćm kaup á kostnađ almannahags, sé til lengri tíma litiđ.

Árin sem salan fór fram, 2016-2018, einkenndust af tvennu. Í fyrsta lagi pólitískri upplausn, falli ríkisstjórnar Sigmundar Davíđs og skammlífri ríkisstjórn Bjarna Ben. Í öđru lagi kröftugri uppsveiflu í efnahagslífinu. Ţađ segir sig sjálft ađ viđ ţessar kringumstćđur er ekki auđvelt ađ gćta hags ríkissjóđs, sem á öngvan vin en hrćgammar, allt frá iđjulausum pírötum upp í stórkapítalista, sitja um nótt sem nýtan dag.

Af fyrsta yfirlestri skýrslunnar er ekki hćgt ađ ráđa ađ skipulögđ brotastarfsemi hafi veriđ höfđ í frammi viđ ađ koma ríkiseigum til valinkunnra á undirverđi. Sigurđur hefur vísađ málinu til saksóknara sem líklega ţýđir ađ hann telji ađ lögbrot hafi veriđ framin. Skýrslan sjálf tekur ekki af tvímćli. 

Tilfallandi niđurstađa, eftir einn lestur, vel ađ merkja, er ađ mistök hafi veriđ gerđ en trauđla alvarleg afbrot.

 

 


mbl.is Gagnrýnir verklag viđ umsýslu Lindarhvols
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Beinagrindur í skápum fjölmiđla

Blađamennirnir líta á ţađ sem persónulega árás á sig ef mađur skrifar um ţetta mál. Tilfallandi bloggari fékk ţetta svar frá gamalreyndum blađamanni snemma í vor er byrlunar- og símastuldsmáliđ var rćtt á tveggja manna tali.

Í byrlunar- og símastuldsmálinu eru fimm blađamenn sakborningar í yfirstandandi lögreglurannsókn. Páli skipstjóra Steingrímssyni var byrlađ og síma hans stoliđ. Alvarleg afbrot en fátt ađ frétta.

Í fyrradag sagđi tilfallandi frá ţekktum blađamanni sem stakk undan skatti. Í gćr var sett meira kjöt á beinin. Blađamađurinn fékk sérmeđferđ hjá skattinum ţrátt fyrir undanskot upp á tugi milljóna króna.

Allar ritstjórnir landsins vita hver blađamađurinn er en enginn ţýfgar hann um vantöldu leigutekjurnar frá Airbnb og hvers vegna hann slapp svona billega, fékk ađ endurgreiđa í gegnum einkahlutafélag međ 25 prósent álagi. Ađrir i sömu sporum fengu á sig opinbera ákćru. Réttvísi sem hyglar fréttamanni á kostnađ almannahags vekur spurningar um jafnrćđi fyrir lögum. En ţađ er ekkert ađ frétta. 

Blađamenn vilja ekki styggja vini og kunningja í stéttinni, síst af öllu ţá sem eiga eitthvađ undir sér og hafa bein og óbein völd yfir starfsframa einstaklinga í fámennri starfsstétt. Blađamađurinn leikur lausum hala og fer međ hlut af dagskrárvaldi fjölmiđla eins og fínn pappír. Sem hann er ekki.

Illa er komiđ fyrir starfsstétt ţar sem forrćđi mála er í höndum óvandađra. Í ţokkabót er ţrotaforystan drekkhlađin verđlaunum fyrir ill verk og samviskulaus.

Réttmćt spurning frá tilfallandi lesendum er hvers vegna bloggari gengur ekki fram fyrir skjöldu, birtir nafn blađamannsins og upplýsingarnar til grundvallar umfjölluninni?

Ástćđan er eftirfarandi.

Tilfallandi fékk upplýsingar um afbrot ţekkta blađamannsins frá heimildamanni. Ef tilfallandi útskýrir hvernig hann fékk upplýsingarnar, eđa varpar frekari ljósi á eđli ţeirra, brýtur hann trúnađ.

En má ekki afhjúpa nafn ţekkta blađamannsins?

Ţví er til ađ svara ađ fréttamenn RSK-miđla hafa í ţrígang stefnt tilfallandi bloggara. Líkur eru töluverđar ađ bloggara yrđi stefnt ef hann upplýsir nafn loddarans er útdeilir sekt og sýknu daginn út og inn en er sjálfur brotamađur á bakviđ tjöldin. Fyrir rétti stćđi tilfallandi frammi fyrir tveim slćmum kostum. Ađ brjóta trúnađ gagnvart heimildamanni eđa leggja ekki fram ţau gögn sem stađfesta frásögnina og fá dóm fyrir meiđyrđi.

Hvorugur kosturinn er góđur. Nafn ţekkta blađamannsins verđur ađ sinni ekki opinberađ í tilfallandi athugasemd.

Á hinn bóginn er ţess ađ geta ađ í haust eru líkur á ađ mál blađamannsins verđi upplýst. Ţangađ til hringlar í ţekktu beinagrindinni í skáp fjölmiđlanna, - ásamt beinagrindunum fimm í byrlunar- og símastuldsmálinu. 


Ţekktur blađamađur á flótta

Blađamađur í fullu starfi og međ trúnađarstörf á sínum herđum ađ auki skilađi ársskýrslu til Fyrirtćkjaskrár áriđ 2021 međ sjö milljón króna hagnađi á einkahlutafélagi sínu. Árin á undan var engri skýrslu skilađ.

Blađamađurinn varđ uppvís ađ víđtćkum skattsvikum í tengslum viđ útleigu á íbúđum í gegnum Airbnb. Um árabil leigđi blađamađur ferđamönnum húsnćđi en gaf tekjurnar ekki upp til skatts. Tilfallandi athugasemd greindi frá í gćr ađ blađamanni var gert ađ greiđa vangoldinn skatt međ 25% álagi.

Skattrannsóknastjóri fékk upplýsingar um útleigu fasteigna Íslendinga árin 2015-2018 í gegnum vef og greiđslukerfi Airbnb. Alls var um ađ rćđa leigutekjur upp á 25 milljarđa króna.

Fréttastofa RÚV birti frétt um máliđ á sínum tíma. Fréttin hefur veriđ tekin niđur, án skýringa.

Skattrannsóknastjóri vísađi stćrri undanskotsmálum til hérađssaksóknara en afgreiddi minni háttar mál međ endurálagninu og 25% álagi. Ţau mál sem fóru til hérađssaksóknara urđu sjálfkrafa opinber.  

Skattaundanskot blađamannsins er ekki minni háttar, nema tugum milljóna króna. Blađamađurinn fékk sérmeđferđ hjá skattayfirvöldum. Hann fékk leyfi til ađ setja útleiguna í einkahlutafélag sitt sem skilađi sjö milljón króna hagnađi áriđ 2021. Skattaundanskotin árin á undan stundađi blađamađurinn á eigin kennitölu.

Af ţekkta blađamanninum er ekkert ađ frétta. Hann er á flótta. Svarar hvorki síma né tölvupóstum. Er hann ţó í krafti trúnađarstarfa ţekktur fyrir ađ koma fram í fjölmiđlum og krefur ađra um svör án undanbragđa.

 


Ţekktur blađamađur sveik undan skatti

Ţekktur blađamađur sveik tugi milljóna króna undan skatti međ ţví ađ gefa ekki upp leigutekjur af húsnćđi er auglýst var til leigu á Airbnb. Blađamađurinn er áberandi í faglegri umrćđu um fjölmiđla og gegnir trúnađarstöđu.

Skatturinn, áđur skattrannsóknastjóri, fékk fyrir ţremur árum upplýsingar frá höfuđstöđvum Airbnb um leigutekjur íslenskra leigusala. Blađamađurinn hafđi í áravís leigt út húsnćđi til ferđamanna í gegnum Airbnb án ţess ađ telja leigutekjurnar fram til skatts. Eftir ađ upp komst fćrđi blađamađurinn útleiguna í hlutafélag.

Fjárhćđin sem stungiđ var undan skatti nemur tugum milljóna króna. 

Blađamanninum var gert ađ endurgreiđa vangoldinn skatt međ 25 prósent álagi.

Eins og tilfallandi lesendur vita segja fjölmiđlar ekki fréttir af afbrotum blađamanna, allra síst er í hlut eiga ritstjórnir RSK-miđla.


Laupur og lyga í stađ afa og ömmu

Samtökin 78 óska eftir nýyrđum yfir föđur- og móđurforeldra sem fyrrum nefndust amma og afi. Ein tillaga er ađ amma verđi lyga og afi laupur. 

Mađur segđi si svona ´ég ćtla ađ skreppa í kleinur og kaffi hjá lygu´. Og ´laupur, lestu fyrir mig sögu´.

Hinsegin hugmyndafrćđin bođar kynjaflćđi. Mađur getur veriđ karl ađ morgni en kerla ađ kveldi. Um miđjan daginn eitthvađ ţess á milli. Gera má ráđ fyrir ađ ömmur/lygur vilji stundum vera afar/laupar og öfugt. Nýyrđin tvö gera ráđ fyrir ţessum möguleika. Ţeim er einfaldlega slegiđ saman í eitt samsett orđ.

Lygalaupur.


mbl.is Leita ađ kynhlutlausu „amma og afi“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband