Föstudagur, 30. júní 2023
Skattasniðganga Kristrúnar, herferð RSK-miðla
Formaður Samfylkingar, Kristrún Frostadóttir, er sek um skattasniðgöngu, ef ekki alvarlegri brot. Kristrún notaði RSK-miðla til að koma játningu sinni á framfæri klukkan tíu í gærmorgun. Tilgangurinn er að gera lítið úr skattamisferlinu, halda Kristrúnu á floti sem stjórnmálamanni.
Tilfallandi blogg vakti athygli á því fyrr um morguninn að Kristrún ein formanna allra starfandi stjórnmálaflokka hafði ekki sagt aukatekið orð um Íslandsbankamálið. Grunsamlegt enda þekkt að formaður Samfylkingar tekur til máls af lítilfjörlegustu tilefnum, t.d. viðveru ráðherra á alþingi. Hlédrægni Kristrúnar stafaði af skattasniðgöngunni. Hún þorði ekki að blanda sér í Íslandsbankaumræðuna af ótta við að upp kæmist um strákinn Kviku-Tuma með krumlurnar á kafi í skattabrellum til að borga ekki í sameiginlega sjóði landsmanna. Kristrún er upptekin af hugrekki. Hún sakaði Bjarna Benediktsson um hugleysi í fjölmiðlasviðsetningu RSK-miðla í vetur.
Kristrún og ráðgjafar hennar voru tilbúnir með játningu í samstarfi við RSK-miðla. Heimildin reið á vaðið, RÚV kom í kjölfarið. Blaðamaðurinn sem skrifaði fyrstu fréttina er Arnar Þór Ingólfsson, sakborningur í byrlunar- og símastuldsmálinu. Fréttin var ekki skrifuð í gærmorgun til birtingar klukkan tíu. Fréttin var tilbúin en beið eftir réttri tímasetningu. RSK-miðlar sérhæfa sig í verklaginu. Þegja sumar fréttir, möndla með aðrar og gera þess á milli fimm hænur úr einni fjöður.
Eitt einkenni siðlausra fjölmiðla er að þeir starfa eins og almannatenglar. Birta fréttir samkvæmt hagsmunum verkkaupa. Í tilfelli Kristrúnar er RSK-miðlum umhugað að koma sér upp talsmanni sem er formaður stærsta stjórnmálaflokksins, samkvæmt fylgiskönnunum, og líklegur til ríkisstjórnarsetu. Spillingin í opinberri umræðu hér á landi er fyrirsjáanleg. RSK-miðlar vilja halda stjórnmálamanni á floti sem gæti orðið næsti dómsmálaráðherra, yfirmaður lögreglunnar.
RÚV notaði sömu fyrirsögn og Heimildin. Kristrún er sögð hafa fengið ,,tilmæli" frá Skattinum um að hún væri í skuld með opinber gjöld. Tilfellið er að Kristrún taldi rangt fram, kom sér undan að borga skatt.
Þegar aðrir fjölmiðlar tóku við fréttahönnun RSK-miðla var Kristrún komin með sterka stöðu í umræðunni, þökk sé fréttahönnun RSK-miðla. ,,Málinu er lokið fyrir mína parta," segir hún með þjósti við Morgunblaðið. Kristrún ætlast til að eftir fréttahönnun RSK-miðla sé málinu lokið. Nú á að þegja.
Skattasniðganga Kristrúnar felst í að hún greiddi fjármagnstekjuskatt en átti að greiða tekjuskatt, sem er meira en helmingi hærri. Formaðurinn vildi spara sér um 25 milljónir króna á kostnað almennings.
Kristrún er staðin að ósannindum um hlut sinn í Kviku með játningu sinni í Heimildinni í gær. Fyrir síðustu kosningar sagði formaðurinn:
Því eftir að ég flutti heim úr námi og hóf störf í Kviku setti ég stóran hluta af persónulegum sparnaði mínum og mannsins míns í réttindi fyrir hlut í bankanum. Upphæð sem okkur munaði mjög mikið um. Þarna erum við hjónin nýkomin úr námi og vinnu, með lítið á milli handanna, en tókum þá ákvörðun um að leggja í þessa fjárfestingu.
Ef Kristrún hefði í raun og sann keypt hlutafé í Kviku fyrir sparnað sem hún átti fyrir hefði hún ekki þurft að greiða tekjuskatt. Það vita allir sem hafa keypt hlutbréf. Maður greiðir fjármagnstekjuskatt af hagnaði af hlutabréfum. Venjulegir launaþrælar hafa áður greitt tekjuskatt af launatekjunum sem mynduðu sparnaðinn. Forréttindafólkið hefur aftur aðra möguleika en alþýðan að maka krókinn.
Það sem gerðist í raun er að Kristrún fékk dulda launahækkun í formi réttinda til að kaupa hlut í Kviku á ákveðnu gengi, oftast lægra en markaðsgengi. Hún var innherji og bjó að upplýsingum sem aðrir fjárfestar hafa ekki. Vissi að hverju hún gekk og það hafði ekkert með heppni að gera.
Í stað þess að játa að hún sé hluti af fjármálaelítunni vill Kristrún fá almenning til að trúa að hún hafi tekið af brauðpeningum fjölskyldunnar og sett í áhættufjárfestingu. ,,Svo datt ég í lukkupottinn," segir formaðurinn til að útskýra 100 milljón króna hagnað sem hún í ofanálag vildi ekki greiða af rétta skattprósentu.
Kaupin í Kviku voru bæði með belti og axlaböndum, ekki áhættufjárfesting heldur öruggur hagnaður, aðeins spurning hve mikill. Lukkupottur formanns Samfylkingar er fjölmiðlaherferð RSK-miðla sem vilja eiga greiða inni hjá væntanlegum ráðherra.
Fjárfestingin var ,,upphæð sem okkur [hjónunum] munaði mjög mikið um" segir Kristrún í tilvitnun hér að ofan. Til að komast undan ámælum vegna skattasniðgöngu segist formaður Samfylkingar vera áhættufíkill er leggur heimilið undir með hlutabréfabraski. Síðan hvenær var heppilegt að áhættufíklar færu með landsstjórnina? RSK-miðlar vilja aftur sjá áhættufíkla sem ráðherra, einkum þá sem þeir eiga hönk upp í bakið á.
Misgjörð Kristrúnar gæti verið alvarlegri en skattasniðganga. Kristrún og Heimildin birta engin gögn máli formanns Samfylkingar til staðfestingar, aðeins munnlegan framburð geranda.
Birna á miðvikudag. Hvenær Kristrún?
![]() |
Málinu er lokið fyrir mína parta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 29. júní 2023
Kvika og þögn Kristrúnar um Íslandsbanka
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar segir fátt um Íslandsbankamálið, ólíkt formönnum allra annarra stjórnmálaflokka. Ástæðan er Kvika, fjárfestingabanki, sem hyggst ná eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka með samruna.
Kristrún var þar til fyrir skemmstu aðalhagfræðingur Kviku. Hún hagnaðist um 100 milljónir króna á kaupréttarsamningum.,,Ég datt í lukkupottinn," sagði Kristrún.
Íslandsbankamálið, sem nú er til umræðu, er aðeins undanfari að yfirtöku Kviku á Íslandsbanka. Til að samrunaferli Kviku og Íslandsbanka þarf að þegja um hvað sé á ferðinni - ríkiseigum komið yfir á einkaaðila á útsöluprís.
Samfylkingin hefur frá stofnun verið fimmta herdeild auðmanna. Með formennsku Kristrúnar er innvígð og smurð auðkona í kjörstöðu að hjálpa baklandi sínu að ,,detta í lukkupottinn."
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Miðvikudagur, 28. júní 2023
Finnur fórnar Birnu, verður Íslandsbanka stolið?
Finnur Árnason stjórnarformaður Íslandsbanka knúði Birnu bankastjóra til að segja upp störfum klukkan fjögur í nótt. Þjófnaður Kviku á Íslandsbanka, kallaður samruni, er í húfi. Með því að fórna Birnu vonast Finnur til að fá frið til að koma Íslandsbanka í hendur Kviku.
Samrunaferli milli Kviku og Íslandsbanka hófst í vetur leið. Viðskiptablaðið birt frétt um málið:
Forstjóri Kviku telur samruna bankans við Íslandsbanka vera tækifæri til að auka samkeppni á markaðinum.
Kvika er froðufélag líkt og mörg fyrir hrun. Kvika stendur ekki fyrir rekstur heldur stækkun, eins og tifallandi rakti í vetur. Bankamenn trúa eigin blekkingum, það gefur svo vel í aðra hönd. Fákeppni er samkeppni.
Lögbrot Íslandsbanka við sölu á hlut ríkisins er smápeningur miðað við fyrirhugaðan þjófnaðarsamruna.
Tökum forstjóra Kviku á orðinu og látum Landsbankann yfirtaka Íslandsbanka. Öflugur ríkisbanki myndi stórauka samkeppni á fjármálamarkaði. Spyrjið bara Marinó Örn Tryggvason forstjóra Kviku.
![]() |
Birna segir upp störfum og Jón Guðni tekur við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 27. júní 2023
Fernur, banki og byrlun
Maður gekk plankann er fernur fengu ekki rétta förgun. ,,Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, sagði við Heimildina á föstudag að það ekki hafa komið til tals að hún myndi taka pokann sinn og hætta, skrifar Þórður Snær ritstjóri og sakborningur.
Byrlun aftrar mönnum ekki að hefla planka annarra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mánudagur, 26. júní 2023
Pútín-ímyndin er vestræn sjálfsblekking
Vestræna elítan telur sjálfri sér trú um að stríðið í Úkraínu sé einkaframtak Pútín forseta Rússlands. Ef Pútín væri ekki með breiðfylkingu valdahópa í Moskvu að baki sér væri löngu búið að ryðja honum úr vegi.
Stríðið í Úkraínu snýst um öryggishagsmuni rússneska ríkisins. Úkraína sem Nató-ríki ógnar tilvist Rússlands. Tilfallandi blogg útskýrir:
Á leiðtogafundi Nató-ríkjanna í Búkarest í Rúmeníu 3. apríl 2008 var gefin út sameiginleg yfirlýsing. Í 23. lið yfirlýsingarinnar segir:
Nató fagnar vilja Úkraínu og Georgíu til samstarfs þvert á Atlantshafið og aðildar að Nató. Við samþykkjum í dag að þessi ríki verði til framtíðar aðilar að Nató.
Rússar sögðu ítrekað að Nató-aðild Úkraínu og Georgíu ógnaði öryggishagsmunum Rússlands. Á landakorti er Úkraína eins og skammbyssa beint að Moskvu. Í beinu framhaldi af Búkarestfundinum, gera Rússar innrás í Georgíu, í ágúst 2008, sem er lítið land og auðunnið rússneskum herjum.
Úkraína er landmesta land Evrópu, utan Rússlands, og enginn hægðarleikur að sigra það, eins og raun hefur orðið á. Úkraína er t.d. 70% stærra en Þýskaland að landflæmi.
Meint valdaránstilraun Jevgení Prigósjín stjóra Wagner-málaliða lauk með samningum um að hann hypjaði sig til Lúkasjenkó í Hvíta-Rússlandi. Almennt er litið á Lúkasjenkó sem vikapilt Pútín og Hvíta-Rússland sem sambandsríki Rússlands.
Tilfallandi blogg gerði því skóna í gærmorgun að meiri líkur en minni væru á að valdaránstilraunin hafi verið sviðsett, með vitund og vilja ráðamanna í Kreml. Þýskur ofursti, Roland Kather, hlynntur málstað Úkraínu, sagði í gærkvöld og það væri vel mögulegt. Bandarískur álitsgjafi segir dæmið ekki ganga upp sem alvöru tilraun til valdaráns.
Ef Jevgení Prigósjín stóð í raun og sann fyrir tilraun til valdaráns verður honum komið fyrir kattarnef í Hvíta-Rússlandi. Ekki vegna þess að Pútín er hefnigjarn maður heldur vegna öryggishagsmuna rússneska ríkisins. Það verður ekki látið viðgangast að maður með jafn mikið undir sér og Prigósjín fremji landráð fyrir opnum tjöldum og lifi í vellystingum praktuglega í bandalagsríki.
Sé aftur um að ræða hannaða atburðarás, n.k. brunaæfingu, verða dregnir lærdómar af. Katrín forsætis vekur athygli á einum . ,,Hún segir för Wagner-málaliðahópsins í átt að Moskvu hafa komið á óvart og þá sérstaklega hraðinn sem sveitirnar voru á í gegnum landið." Ef viðbúnaður við hættuástandi er slakur verður hert á. Einhverjir hausar gætu fokið, ekki endilega í bókstaflegum skilningi.
Rússnesk stjórnmálamenning býr að lifandi minningu um hrun tveggja heimsvelda, keisaradæmisins 1917 og Sovétríkjanna 1991. Ekki eru líkur á rússneska þjóðin óski eftir endurtekningu á þeim atburðum. Í hvorugu tilfellinu urðu afleiðingarnar þekkilegar.
Vestræna sjálfsblekkingin að Úkraínustríðið sé einkaframtak Pútín byrgir sýn á þá sannfæringu helstu valdahópa í Moskvu að yrði Úkraína Nató-ríki væri Rússland orðin vestræn hjálenda. Eftir 1917 og 1991 var það reynt. Í bæði skiptin sögðu Rússar njet.
![]() |
Ára Pútíns hlýtur að vera beygluð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sunnudagur, 25. júní 2023
Sviðsett tilraun til valdaráns
Sviðsett tilraun til valdaráns í Rússlandi var annað tveggja enn ein roka Jevgení Prigósjín stjóra Wagner-málaliða eða dýpra plott sem æðstu ráðamenn Kremlar, Pútín meðtalinn, stóðu að baki.
Prigósjín er ekki tvöfaldur í roðinu heldur margfaldur. Nánast frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu hefur hann leikið andstæðing varnarmálaráðuneytisins samtímis sem Wagner-liðar skila hvað bestum árangi á vígvellinum af öllum rússneskum hersveitum.
Sjálfur er Prigósjín ekki hermaður, þótt hann klæði sig upp sem slíkur. Aðrir sjá um hermennskuna en sá kjaftfori. Ekki heldur fjármagnar hann úr eigin vasa málaliðana. Til að fá hermenn fór Prigósjín í fangelsi Rússlands og bauð afbrotamönnum mála gegn sakaruppgjöf. Án náins samráðs við yfirvöld hefði það ekki verið hægt.
Fyrir Úkraínustríðið gerðu Wagner-liðar sig gildandi í Afríku og Sýrlandi sem verkfæri Kremlarherra. Stórveldum er þénugt að hafa á sínum snærum málaliða til aðgerða sem illa þola dagsljósið. Wagner er sem sagt hálfopinber hluti rússneska valdakerfisins.
Einn möguleiki er að valdaklíka að baki Prigósjín standi að baki sviðsetningunni. Tilraun til að ræna völdum er stendur yfir í hálfan annan sólarhring er hálfvelgja. Á stríðstíma er landráð dauðasök. Menn leggja eigið líf undir. 36-klukkustunda kúrekaleikur er með einhverja dagskrá aðra en að steypa af stóli ríkisstjórn Pútín.
Líklegast er að sviðsetningin hafi verið unnin í samráði við Pútín og félaga. Tilgangurinn væri að sýna rússnesku þjóðinni fram á að stríð sé dauðans alvara sem krefjist samstöðu og fórna. Til þessa er stríðið fjarlægur veruleiki þorra rússnesks almennings.
Frá 4. júní stendur yfir sókn Úkraínuhers í Saparosíja-héraði í suðurhluta landsins. Markmiðið er að sækja suður á Krímskaga og kljúfa rússneska herinn í tvennt. Rússar hafa síðustu mánuðum byggt þrjá víglínur til varnar. Eftir þrjár vikur er Úkraínuher ekki komin yfir fyrstu og veikustu rússnesku víglínuna. Selenskí forseti viðurkennir í víkunni að sóknin gangi heldur hægt.
Á þessum þrem vikum tæpum er mannfall Úkraínuhers líklega um 12 til 15 þúsund og ógrynni hergagna fer forgörðum. Til samanburðar er mannfall Rússa frá upphafi stríðsátaka, fyrir hálfu öðru ári, um 25 þúsund. Úkraínu er að blæða út.
Þegar sókn Úkraínu rennur sitt skeið í júlí að líkindum er tækifæri fyrir Rússa að sækja fram og ná afgerandi sigrum á vígvellinum. Það mun kosta meiri mannfórnir en hingað til.
Sviðsetta valdaránstilraunin er líklegast undirbúningur Kremlarbænda á stökkbreyttu stríði.
![]() |
Enn mikill viðbúnaður í Moskvu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 24. júní 2023
Aðalsteinn og eiginkona skipstjórans
Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar og varaformaður Blaðamannafélags Íslands stefnir bloggara fyrir 8 ummæli, eins og kom fram í færslu gærdagsins. Ein ummælin eru eftirfarandi
Nýverið tilkynntu Blaðamannafélag Íslands og Aðalsteinn nýjar siðareglur. Þriðja grein eldri siðareglna var felld niður í heild sinni. Nú er komið skotleyfi blaðamanna á fólk ,,sem á um sárt að binda". Eins og Aðalsteinn orðar það í leiðaranum: siðareglur ,,eru nú til endurskoðunar og mikilvægt er að þær endurspegli raunveruleikann sem blaðamenn starfa við í dag."
RSK-miðlar nýttu sér skotleyfið áður en það var gefið út. Þeir misnotuðu andlega veika konu til að byrla og stela. Sakborningur setur siðareglur sem réttlæta framinn glæp.
Í stefnu lögmanns Aðalsteins er þvertekið fyrir að blaðamaðurinn hafi átt aðild að misnotkun á andlega veikri eiginkonu skipstjórans, ,,sem hann hefur aldrei hitt," segir í stefnunni.
Það er hægt að misnota fólk án þess að hitta það. Í málsgögnum lögreglu, sem þegar eru komin í umferð, er tölvupóstur veiku konunnar frá 3. október 2021.
Viðtakendur eru Lára V. Júlíusdóttir lögfræðingur, Þóra Arnórsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson og Ingi Freyr Vilhjálmsson, þá blaðamenn Stundarinnar en nú Heimildarinnar. Tölvupósturinn í heild:
Sæl Lára.
Ég gef hér með Þóru Arnórsdóttur og Aðalsteini Kjartanssyni umboð til að ná í símkortin mín til þín ef þau óska eftir því að fá þau í hendur ásamt öðru efni sem þú kannt að hafa frá mér.
Lára var lögfræðingur veiku konunnar. Hún virðist hafa verið milligöngumaður byrlara og blaðamanna.
Varla tekur þáverandi eiginkona Páls skipstjóra upp á því að gefa Aðalsteini heimild til að taka símkort sín á lögfræðistofu Láru án þess að hafa átt einhver samskipti við hann áður.
Dagsetning tölupóstsins, 3. október 2021, er mikilvæg. Eiginkona skipstjórans hafði verið boðuð í sína fyrstu yfirheyrslu, sem fór fram tveim dögum síðar.
Allir sem nota farsíma vita að maður gefur ekki frá sér símkort nema í algjörum undantekningartilfellum. Símtæki er ónothæft án símkorts. Veika konan notaði tvo síma og hún er tilbúinn að láta símkort beggja símanna til blaðamanna, samkvæmt tölvupósti. Augljóst er að blaðamenn í samvinnu við Láru lögfræðing höfðu tök á konunni og fengu hana til að gera hluti sem fólk almennt ekki gerir. Enda um að ræða andlega veikan einstakling.
Hvers vegna vildu blaðamenn símkort konunnar? Jú, í símkortum eru geymdar upplýsingar um símasamskipti. Eigum að halda að ásetningur blaðamanna hafi verið að auðvelda lögreglu rannsókn málsins? Koma jólasveinar til byggða í júní?
Almenningur og enn frekar lögregla, sem rannsakar sakamál, eiga ríkan rétt að fá upplýsingar um samskipti Aðalsteins og félaga við andlega veika konu grunaða um byrlun og stuld í þágu RSK-miðla (RÚV, Stundin og Kjarninn).
Heimildinni er haldið á floti með ríkisframlagi og blaðamenn segjast starfa í þágu almennings og réttarríkisins. En Aðalsteinn og félagar skella í lás og fá til þess stuðning annarra fjölmiðla sem stunda meðvirka þögn. Er tilfallandi bloggari skrifar fréttir um byrlunar- og símastuldsmálið fær hann á sig málsókn. Kafka heitinn hefði gert sér mat úr fáránleika íslenskra fjölmiðla.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. júní 2023
Aðalsteinn stefnir bloggara, krefst 2 m. kr. og ritskoðunar
Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður á Heimildinni og varaformaður Blaðamannafélags Íslands stefnir tilfallandi bloggara fyrir átta ummæli í tengslum við byrlunar- og símastuldsmálið þar sem brotaþoli er Páll skipstjóri Steingrímsson.
Stefnan kemur í kjölfar fjárkröfu Aðalsteins, ein milljón króna, að viðlagðri hótun um málssókn.
Aðalsteinn vill tvær milljónir í miskabætur og málskostnað. Auk kröfu um ómerkingu átta ummæla gerir Aðalsteinn kröfu að tilfallandi bloggari fjarlægi af bloggsíðu sinni ummælin, að viðlagðri dagsekt upp á 50 þús. kr. Starfandi blaðamaður, varaformaður Blaðamannafélagsins í ofanálag, vill fá stuðning dómstóla til ritskoðunar. Ásamt bloggara er Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, stefnt til réttargæslu en án dómskröfu.
Í stefnu lögfræðings Aðalsteins, Gunnars Inga Jóhannessonar, segir að blaðamaðurinn sé margverðlaunaður, fékk m.a. ,,Pulitzer-verðlaun fyrir umfjöllun um hið svonefnda Panama-mál."
Fjölmiðlastórstjarna, hlaðin alþjóðlegum viðurkenningum, hefur ekki útskýrt fyrir almenningi, og heldur ekki fyrir lögreglu, vitneskju sína um byrlun Páls skipstjóra og stuld á síma hans. En lögmaður Aðalsteins viðurkennir í stefnunni að blaðamaðurinn var með stolin gögn, sem voru fengin með byrlun.
Aðalsteinn skrifaði fyrstu fréttina upp úr síma Páls þann 21. maí 2021 og birti á Stundinni. Sama dag og nánast á sömu klukkustund birti Kjarninn hliðstæða frétt. ,,Óumdeilt er að um var að ræða gögn sem komu frá starfsmanni Samherja og einum liðsmanni skæruliðadeildarinnar, Páli Steingrímssyni, sem starfað hafði sem skipstjóri á einu fiskiskipa Samherja," segir í stefnunni.
Játning lögmannsins er á skjön við fyrri yfirlýsingar Aðalsteins. Í viðtali í Kastljósi 20. september 2022 segir Aðalsteinn orðrétt: ,,Fyrir það fyrsta að þá liggur
ekki fyrir að gögnin sem að ég notaði til grundvallar fréttarskrifa um skæruliðadeild Samherja hafi komið úr farsíma." Í sama viðtali sagðist Aðalsteinn ætla að kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu að hann væri sakborningur. En hann kærði aldrei til Mannréttindadómstólsins.
Ef Aðalsteinn hefði upplýst alþjóð um hvernig hann komst yfir gögnin og hvað hann veit um málið hefði tilfallandi bloggari ekki þurft að fjalla um tengslin. Nú segir lögfræðingur Aðalsteins að óumdeilt sé að hann fékk stolin gögn. Hvers vegna upplýsir Aðalsteinn ekki aðkomu sína að málinu? Hann hætti skyndilega störfum á RÚV morguninn 30. apríl 2021, þrem dögum áður en skipstjóranum var byrlað. Eftir hádegi var Aðalsteinn kominn í vinnu hjá Stundinni og sagði ,,Ég er ekki hættur í rannsóknablaðamennsku."
Er rannsóknablaðamennska að skrifa fréttir upp úr stolnum gögnum sem fengin eru með byrlun? Jú, á Íslandi er málum þannig háttað, samkvæmt varaformanni Blaðamannafélagi Íslands. Varaformaðurinn verðlaunaði sjálfan sig 1. apríl 2022 (fyndin dagsetning). Tilfallandi bloggari vann sér það til óhelgi að vekja athygli á málinu daginn eftir og skrifaði:
Þrír blaðamenn Stundarinnar og Kjarnans sem fengu verðlaun Blaðamannafélags Íslands eru sakborningar í lögreglurannsókn. Verðlaunin fengu þeir fyrir fréttir sem aflað var með glæpum, byrlun og gagnastuldi.
Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson, blaðamenn á Kjarnanum, og Aðalsteinn Kjartansson á Stundinni eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans. Málsgögn, þau sem hafa verið gerð opinber, hníga öll í þá átt að skipulag glæpsins og miðstöð framkvæmdar hafi verið á RÚV.
Tilvitnunin er fullkomlega eðlilegur fréttatexti. En það má ekki skrifa fréttir hér á landi þegar blaðamenn eru sakborningar. Annars fá menn á sig málssókn. Arnar Þór og Þórður Snær stefndu bloggara fyrir ofangreind orð og nú kemur Aðalsteinn í kjölfarið.
Tilgangur Aðalsteins og félaga er að koma í veg fyrir umfjöllun um refsimál þar sem þeir eru sakborningar. Fyrsta grein siðareglna Blaðamannafélags Íslands hljómar svona:
1. grein
Blaðamaður hefur sannleikann að leiðarljósi, stendur vörð um tjáningarfrelsið og frjálsa fjölmiðlun og rétt almennings til upplýsinga, svo veita megi nauðsynlegt aðhald í lýðræðisþjóðfélagi.
Tilfallandi bloggari veitir blaðamönnum aðhald með umfjöllun um sakamál. Tjáningarfrelsið er varaformanni Blaðamannafélagsins svo dýrmætt að hann stefnir bloggara og krefst ritskoðunar. Almenningur á aðeins rétt á upplýsingum frá blaðamönnum. Aðrir eiga að þegja.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 22. júní 2023
Öfgar, ekki í veðri heldur mönnum
RÚV slær upp veðuröfgum, talar við hópstjóra Veðurstofu sem segir hnattræna hlýnun ástæðu öfganna. Í beinu framhaldi ber RÚV fram þá kröfu að lýst verði yfir neyðarástandi í loftslagsmálum.
John Christy, virtur loftslagsvísindamaður, hefur fylgst með veðri í hálfa öld. Hann segir hæga hlýnun standa yfir, um 1,5 gráða Celcisus á öld. Það eru ekki hamfarir heldur hæg þróun. Richard Lindzen, annar virtur á sviðinu, segir engar manngerðar loftslagshamfarir í augsýn. Annar fræðimaður í sama flokki, Lennart Bengtsson, segir i nýlegri bók að loftslagsvá sé hindurvitni. Hópstjóri Veðurstofu og formaður loftslagsráðs tka meira mark á Al Gore og Grétu Thunberg en vísindamönnum eins og Christy, Bengtsson og Lindzen.
Vísindaleg staðreynd er að 95 prósent, jafnvel 97 prósent, koltvísýrings, CO2, í andrúmslofti er náttúrulegur. Uppsprettan er m.a. uppgufun úthafanna, rotnun lífmassa - koltvísýringur hækkar á norðurhveli jarðar á haustin þegar lauf falla - og útgufun eldvirkra svæða. Maðurinn ber aðeins ábyrgð á 3-5 prósent koltvísýrings.
Öfgafólkið vill telja okkur trú um að maðurinn með sín 3-5 prósent stjórni ferðinni í loftslagsmálum en ekki náttúran sem býr til 95-97 prósent af koltvísýringi andrúmsloftsins. Efnasamband CO2, koltvísýrings, er nákvæmlega sama hvort heldur loftegundin verður til í náttúrunni eða við bruna eldsneytis í bifreið eða verksmiðju. Öfgafólkið fullyrðir að manngert CO2 breytir loftslaginu en náttúrulegt CO2 hafi engin áhrif. Fullyrðingin er trúarkredda, ekki vísindi. (Innan sviga er þess að geta að líkur eru á að hækkun koltvísýrings í andrúmslofti sé afleiðing af hlýnun. Orsakasamhengið sé að hlýnun valdi hækkun CO2, en ekki að CO2 valdi hlýnun).
Koltvísýringur í andrúmslofti mælist núna um 400 ppm (einingin ppm stendur fyrir milljónustu hluta, yfirfært í prósentur er hlutfallið 0,04%). Í jarðsögunni eru mörg dæmi um margfalt hærra magn koltvísýrings í andrúmsloftinu. Kjörvöxtur plantna er t.d. við 1200-1500 ppm CO2. Koltvísýringi er dælt inn í gróðurhús til að fá betri uppskeru. Náttúran vill meira CO2, ekki minna.
Öfgafólkið fer með vísindalegt fleipur. Reynt er að blekkja almenning til fylgis við trúarkreddu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 21. júní 2023
Ég er köttur, sagði barnið
Kennari í breskum skóla skammaði nemanda fyrir að samþykkja ekki að samnemandi gæti verið köttur. Atvikið náðist á upptöku þar sem 13 ára stúlka er ásökuð af kennara um fyrirlitlega framkomu. Stúlkan vann sér það til sakar að fullyrða að manneskja gæti ekki verið köttur.
Manneskja getur verið hvað hún vill, sagði kennarinn, stelpa getur verið strákur, strákur stelpa eða köttur. Telegraph segði fréttina á sunnudag.
Á mánudag vatt málið upp á sig. Kemur í ljós að transhugmyndfræðin í breskum skólum gerir ráð fyrir að nemendur geti verið af ólíkum dýrategunum, t.d. hestar eða risaeðlur. Einnig dauðir hlutir, eins og fylgihnöttur jarðar. Kennarar, forritaðir af sértrúarhópum, telja þetta góða latínu.
Í gær gekk talsmaður breska forsætisráðherrans fram fyrir skjöldu vegna málsins. Það gengur ekki að kenna sig við framandi dýrategundir, hvort heldur hesta eða útdauðar risaeðlur. Enn síður að nemendur séu tungl eða annað á sveimi i sólkerfinu.
Réttlætiskennd barna er misboðið. Ef stelpa getur verið strákur hvers vegna má hún ekki allt eins vera köttur, hestur eða bókahilla?
Talsmaður forsætisráðherra Bretlands þarf að stíga fram og útskýra að börn geti ekki verið hlutir eða útdauðar dýrategundir. Sú var tíð að kyn og tegund mannsins þvældist ekki fyrir einum eða neinum. En þegar dómgreindinni er varpað fyrir róða og hlutlægur veruleiki víkur fyrir ímyndun er ekkert stopp á rússíbanareiðinni inn í fáránleikann.