Laugardagur, 3. nóvember 2007
Baugur og birgjar
Baugur hefur um árabil kúgað íslenska birgja um betri kjör og framlengt greiðslutímabil þannig að þeir borga talsvert seinna en gengur og gerist enda þarf að nota sjóðstreymið til að borga lán og aðra fjármögnun sem Baugur notar til að komast yfir öll þessi fyrirtæki - heima sem erlendis.
Um daginn kom fram í Bretlandi að Baugur er að ráðast í tug milljarða endurbætur á verslanakeðjunni House of Fraser.
Baugur ætlast til þess að birgjar komi að verulegum hluta að þessari aðgerð sem kostar um 230 milljónir punda. Þeir birgjar sem EKKI samþykkja að vera með fá óheppileg" verslunarkjör, ef ekki uppsögn á samstarfi. Alveg eins og á Íslandi.
Þegar þú er orðinn stór, þá gerir þú það sem þú vilt... birgjar sem vilja hafa gott sambandi við Baug eiga ENGA aðra kosti en að samþykkja þessi kjör sem þarna koma fram og borga þúsundir milljóna til að fjármagna endurbæturnar. Þeir birgjar sem samþykkja eru vildarvinir" Baugs. Það er auðvitað stórkostlegt að birgjar sem skaffa vörur þurfi að punga út þúsundum milljóna til að fjármagna innréttingar og endurbætur á verslunum Baugs.
Takið eftir því að í fréttinni kemur fram að Baugur hefur þegar breytt greiðslum til birgja og lengt greiðslutímabilið. Þannig virkar Baugur í raun, notar sjóðsstreymið á þessu langa tímabili og rúllar í næstu verkefni og afborganir. Þeir sem neita geta bara gleymt að eiga viðskipti við Baug.
Alveg eins og á Íslandi. Nú er spurning hvort birgjar á Íslandi séu ekki tilbúnir að koma fram og segja frá kúgunaraðferðum Baugs hér heima. Af nógu er að taka.
Baugsmiðlar birta aldrei svona fréttir.
http://www.telegraph.co.uk/money/main.jhtml?xml=/money/2007/09/11/cnhof111.xml
Föstudagur, 2. nóvember 2007
FL group auglýsir örvæntingu sína
En nei, það á að þvinga opinbert fyrirtæki að taka þátt í ævintýrinu með góðu eða illu, samkvæmt fréttatilkynningu stjórnar Geysigrænna. Það er stórundarlegt að Hannes lesi ekki skriftina á veggnum: REI-málið er dautt. Það hefur kostað hallarbyltingu í Ráðhúsinu, pólitísk framtíð ungra stjórnmálamanna veltur á því að sameiningin gangi ekki fram og trúverðugleiki vinstriflokkanna er í húfi.
Með því að berja hausnum við steininn er Hannes að auglýsa örvæntingu FL group. Snjall sölumaður lætur það ekki henda sig, ef allt er með felldu.
Fimmtudagur, 1. nóvember 2007
Nálgunarbann á samráðsstarfsmenn Bónus og Krónu
Fréttir Útvarps í gær afhjúpuðu blekkinguna og varla mun verðlagseftirlit ASÍ láta sér til hugar koma að hafa framvegis samráð við verslunina um verðlagskannanir.
Í umfjöllun Útvarps komu einnig fram upplýsingar sem benda til samráðs verslanakeðja um verð en sú háttsemi varðar við lög.
Verslanakeðjurnar bera af sér sakir og segjast vera í samkeppni, væntanlega samskonar og olíufélögin stunduðu öll lýðveldisárin.
Það er erfitt að sanna samráð en þegar könnun eftir könnun leiðir í ljós að einnar krónu munur er á fjölda vörutegunda á milli verslana er nærtækt að álykta að ef ekki sé um beint samráð að ræða þá sé að minnsta kosti samráðsskilningur í gildi sem báðar keðjurnar virða.
Bónus og Krónan gera út mannskap til að fylgjast með verðlagi í verslun samkeppnisaðilans. Upplýsingarnar sem þannig er aflað eru grundvöllurinn fyrir samræmdu verði.
Löggjafinn getur skrifað í lög bann við því að verslanir með tiltekna markaðshlutdeild reki verðlagseftirlit sem beinist að samkeppnisaðila. Til að hnykkja á almannahagsmunum mætti setja almennt nálgunarbann á þá starfsmenn verslana sem starfa við verðlagningu þannig að þeim er ekki heimilt að fara í samkeppnisverslunina.
Samkeppni er í hávegum hjá báðum ríkisstjórnarflokkunum og núna er tækifæri fyrir Bjögga ráðherra að sýna lit.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)