Föstudagur, 14. nóvember 2014
Leki hjá umboðsmanni alþingis
Einhver lak upplýsingum frá umboðsmanni alþingis um yfirstandandi rannsókn á samskiptum innanríkisráðherra og lögreglustjóra. Stöð 2 greindi frá lekanum í fréttum.
Umboðsmaður alþingis, Tryggvi Gunnarsson, þrætir fyrri lekann, bæði í viðtali við mbl.is og með sérstakri yfirlýsingu. Þótt Tryggvi sjálfur sé ekki lekamaðurinn þá er augljóst að einhver innan embættisins lak upplýsingum um rannsóknina.
Stóralvarlegt mál er þegar opinber embætti leka upplýsingum um starfsemi sína til fjölmiðla. Nýleg dómafordæmi sýna að opinberir starfsmenn eru dæmdir til fangelsis leki þeir upplýsingum.
Innanhússrannsókn hlýtur að standa yfir hjá umboðsmanni alþingis um hver lak trúnaðarupplýsingum til fjölmiðla. Ef sá seki er ekki fundinn hlýtur að koma til opinber rannsókn á lekanum og er nærtækast að ríkissaksóknari hlutist til um það mál.
Ekki verður við það unað að starfsmenn útvalinna stofnana samfélagsins komist upp með að leka upplýsingum til fjölmiðla á meðan aðrir starfsmenn annarra stofnana eru hundeltir og stefnt fyrir dóm ef upp kemst.
Lekann hjá umboðsmanni alþingis þarf að upplýsa og láta þann seka sæta viðeigandi viðurlögum.
![]() |
Hefur ekki enn komist að niðurstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 13. nóvember 2014
Góða fólkið og leiðréttingin
Helstu talsmenn góða fólksins, t.d. borgarfulltrúinn Björk Vilhelmsdóttir, Árni Páll formaður Samfylkingar, Helgi Hjörvar þingmaður sama flokks og Róbert Marshall í Bjartri framtíð, sem öll sóttu um og fengu leiðréttingu, en hafa opinberalega lýst yfir að þeim fjármunum sem varið er til leiðréttingarinnar sé betur komið í heilbrigðisþjónustunni.
Núna fær góða fólkið tækifæri til að afþakka leiðréttinguna og láta fjármunina renna til samfélagsins. Góða fólkið og talsmenn þess á þingi og í borginni, hljóta að láta nú í sér heyra og fara fram á að peningarnir renni til heilbrigðisþjónustunnar.
Ætlar góða fólkið ekki að blása til meðmælastöðu á Austurvelli til að lýsa samstöðu með áskorun Marinós og Hörpu?
Eða er það svo að góða fólkið er í raun síngjarnt og sannfæringasnautt - en alltaf til í að mótmæla?
![]() |
Láti leiðréttinguna renna í sjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 13. nóvember 2014
RÚV slúðrar um Hönnu Birnu
Í hádegisfréttum í dag skáldar RÚV upp ummæli þingmanna, sem ekki eru nafngreindir, um stöðu innanríkisráðherra.
Í ljósi stöðutöku RÚV í lekamálinu, þar sem ekki er sögð nema hálf sagan, þá er einboðið að RÚV stundar spuna en ekki fréttamennsku.
Skáldfréttir RÚV eru ósamboðnar þjóðarútvarpi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 13. nóvember 2014
Byggjum nýjan spítala með leiðréttingunni
Stjórnmálamenn, sem margir hverjir sóttum og fengu leiðréttingu, eiga þann leik að afþakka leiðréttinguna og taka áskorun hjónanna Hörpu Karlsdóttur og Marinós G. Njálssonar um að láta féð renna til nýs spítala.
Vilji er allt sem þarf; stjórnvöld eiga þess kost að búa svo um hnútana að fé sem fólk fær með leiðréttingunni, en sækir ekki, renni til uppbyggingar heilbrigðiskerfisins.
Stjórnmálamenn, einkum í stjórnarandstöðunni, sem tala hátt um ranga forgangsröðun fá þannig tækifæri til að sýna vilja sinn í verki.
![]() |
Greiða þarf af lánunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2014
Ég sótti ekki um - tek undir með Marinó og Hörpu
Hjónin Harpa Karlsdóttir og Marinó G. Njálsson koma með aldeilis frábæra tillögu til þeirra sem sóttu um og fengu leiðréttingu lána sinna en telja sig ekki þurfa leiðréttingarinnar við.
Tillaga hjónanna er að þeir fjármunir sem fólk þarf ekki á að halda renni til heilbrigðiskerfisins. Þau skora á stjórnvöld að búa svo um hnútana að lánaleiðrétting sem fólk þiggur ekki renni til heilbrigðiskerfisins.
Sjálfur sótti ég ekki um leiðréttingu minna lána, svo það sé á hreinu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2014
RÚV lýgur með þögninni
Í hvorugum aðalfréttatímum í kvöld sagði RÚV frá þeirri dómsniðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur að Hanna Birna Kristjánsdóttir væri sýkn saka í lekamálinu. Eins og kom fram í frétt mbl.is í dag segir þetta í dómsorðum
Í minnisblaðinu, sem ákærði kom á framfæri við fjölmiðla, var að finna viðkvæmar persónuupplýsingar eins og í ákærunni greinir. Hins vegar er ekki fallist á að sýnt hafi verið fram á að ákærði hafi komið minnisblaðinu á framfæri í því skyni að afla sér eða öðrum óréttmæts ávinnings, hvorki fjárhagslegs né annars.
Orðalagið að Gísli Freyr hafi hvorki ,,aflað sér eða öðrum óréttmæts ávinnings" er yfirlýsing um að Hanna Birna hafi enga hagsmuni haft af broti Gísla Freys.
Og hvers vegna ætli RÚV segi ekkert frá þessu atriði í dómsorðum héraðsdóms? Jú, vegna þess að það kippir stoðunum undan þeim málflutningi RÚV að Hanna Birna eigi að segja af sér.
![]() |
Hanna Birna á vissan hátt fórnarlamb |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 12. nóvember 2014
Héraðsdómur: lekinn afbrot einstaklings, ráðherra sýknaður
Gísli Freyr Valdórsson braut lög þegar hann afhenti fjölmiðlum trúnaðarupplýsingar sem hann bjó yfir. Niðurstaða héraðsdómara er skýr:
Hins vegar er ekki fallist á að sýnt hafi verið fram á að ákærði hafi komið minnisblaðinu á framfæri í því skyni að afla sér eða öðrum óréttmæts ávinnings, hvorki fjárhagslegs né annars.
Af þessu leiðir er brotið bundið við Gísla Frey einan og beinlínis tekið fram að engum ávinningi hafi verið til að dreifa, hvorki fjárhagslegum né pólitískum.
Ráðuneytið í heild og innanríkisráðherra sérstaklega fær sýknu í dómsorðum héraðsdóms.
![]() |
Skilorðsbundið fangelsi vegna lekans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2014
Björk, pólitíkin og einkahagurinn
Ef Björk samfylkingarkona afþakkar leiðréttinguna sem hún sótti um fer andvirðið í félagslega kerfið á Íslandi, sem hún þykist bera fyrir brjósti. En Björk ætlar ekki að afþakka leiðréttinguna heldur hirða hana og nota eftir sínu höfði.
Björk eins og margir aðrir í Samfylkingunni er tækifærissinni sem getur ekki á sér setið að bæta eigin hag þótt hagsbótin stríði gegn pólitískum yfirlýsingum.
Það er einfaldlega ekkert að marka pólitík Bjarkar.
![]() |
Allir verða að vera jafnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 12. nóvember 2014
Forseti ASÍ gengur í barndóm
Aðeins fávitar trúa því að launaskrið á Íslandi byrji á gólfinu og haldi þar áfram upp í topp. Allir sem minnsta skynbragð hafa á launaþróun vita að forstjórarnir ryðja brautina í launakröfum, millistjórnendur koma þar á eftir og svo koll af kolli þangað til kemur að skúringarfólkinu - en þá er oft fjarska lítið eftir.
Forstjórarnir semja um sín laun við stjórnir fyrirtækja sem skipaðar eru eigendum eða fulltrúum þeirra. Verkalýðshreyfingin á í gegnum lífeyrissjóðina tæplega helminginn i stærstu fyrirtækjum landsins.
Verkalýðshreyfingin hefur í hendi sér að móta launastefnu gagnvart forstjórum sem gæfi tóninn í launamálum almennt.
En forseti ASÍ gengur í barndóm þegar kemur að því að skilja hvernig kaupin gerast á eyrinni í launamálum fyrirtækja. Hann segir lífeyrissjóðina ,,bara Íslendinga" og hljómar eins og það sé sérstakt viðfangsefni verkalýðshreyfingarinnar að velja fávita í stjórnir fyrirtækja sem skilja ekki einföldustu atriði í fyrirtækjarekstri.
Verkalýðshreyfingin getur ekki afsalað sér ábyrgð á eignarhaldi sínu á lífeyrissjóðum. Og verkalýðshreyfingin getur heldur ekki þvegið hendur sínar af ábyrgðinni sem fylgir því að eiga helminginn af stærstu fyrirtækjum landsins.
Ef enginn tekur snuðið úr munni forseta ASÍ er eins gott að leggja af Alþýðusamband Íslands, þar starfa jú ,,bara Íslendingar."
![]() |
Nýr sparnaður fari úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 11. nóvember 2014
Vinstrimenn sækja peninginn en mótmæla samt
Valinkunnir vinstrimenn, Björk Vilhelmsdóttir er aðeins eitt dæmi, sem mótmæla þeirri efnahagsgerð ríkisstjórnarinnar að leiðrétta skuldir heimilanna eru fullkomlega ótrúverðugir ef þeir sækja sjálfir um leiðréttingu.
Það er einfaldlega engin sannfæring á bak við mótmælin ef fólk sækir sér peninga í ríkissjóð um leið og það segir að peningunum sé betur varið í önnur samfélagsleg verkefni.
Vinstrimenn sem sækja sér peninga í ríkiskassann en mótmæla í leiðinni hástöfum eru ómerkilegir loddarar.
![]() |
Hvetur Björk til að hafna leiðréttingunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)