Þorgerður Katrín og Þorsteinn stofna flokk

Klárum ferlið, er vinnuheiti á nýjum stjórnmálaflokki aðildarsinna sem Þorsteinn Pálsson fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fyrrum varaformaður í sama flokki ætla að stofna. Þorgerður Katrín skrifaði grein í Morgunblaðið í dag þar sem hún krefst þess að aðlögunarferli Íslands inn í Evrópusambandið þótt það taki ,,nokkur ár."

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins samþykkti fyrr á árinu kröfu um að aðildarumsókn Íslands yrði dregin tilbaka enda enginn vilji í samfélaginu til að framselja fullveldi og forræði okkar mála til Brussel. Skötuhjúin eru samfylkingarmegin í hinni pólitísku tilveru og hafa gefist upp á hugsjónum sjálfstæðismanna. 

Þorsteinn Pálsson fékk inni í Valhöll, höfuðstöðvum Sjálfstæðisflokksins, fyrir skemmstu til að syngja aðildarsönginn. Inngöngurökin sem eru hvað minnisstæðust úr munni Þorsteins eru að tollafgreiðslukerfi Evrópusambandsins gerir aðild eftirsóknarverða.

Þorgerður Katrín og Þorsteinn voru á útrásartímum bæði handgengin helstu auðmönnum landsins. Ekki er að efa að þau fá bæði siðferðilegan og fjárhagslegan styrk frá því öfluga baklandi sem íslenskir auðmenn eru.


Björgvin G. fær samkeppni frá Árna Páli

Björgvin G. Sigurðsson ósakhæfur fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar lýsti sjálfan sig fávita síðast liðinn sunnudag. Arftaki Björgvins G. í ráðherrastól viðskipta, Árni Páll, skoraði dimmrödduðu bernskuna á hólm í kvöldfréttum Sjónvarpsins þegar hann sagði kjördæmaskipun landsins rót spillingar.

Gerum landið að einu kjördæmi, segir Árni Páll, og þá hverfur spillingin. Hann sagði líka að kreppan hyrfi, krónan styrktist og sól skini í heiði um leið og við sæktum um aðild að Evrópusambandinu.

Samfylkingin laðar til sín bestu syni landsins.


Búrkur og ásjóna alþingis

Níu af hverjum tíu Íslendingum hafa skömm á alþingi. Sitjandi þingmönnum er nokkur vorkunn þar sem líklegar ástæður fyrir megnri andúð á þingheimi eru margar hverjar horfnar úr þingsal. Engu að síður sitja þeir 63 sem  síðast hlutu kjör uppi með óbeit almennings.

Fyrrum varaformaður Sjálfstæðisflokksins spyr dómsmálaráðherra hvort banna eigi búrkur sem múslímskar konur nota til að hylja smettið. Mörður Árnason þingmaður Samfylkingar hvetur ónefnda þingmenn til andlitsþvotta.

Spurning hvort að alþingismenn ættu ekki að setja upp búrkur.


mbl.is Þingmenn þvoi sér í framan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstristjórnin frestar efnahagsbata

Skortur á samstöðu innan ríkisstjórnarinnar frestar efnahagsbatanum. Atvinnustefna stjórnvalda er á reiki, endalaus frestun á aðgerðum til að mæta skuldakreppu húseigenda, herförin gegn útgerðinni og misvísandi skilaboð um endurreisn fjármálakerfisins veldur töfum á endurreisn efnahagslífsins.

Til viðbótar er ríkisstjórnin ósamstíga í almennu uppgjöri við hrunmenningu síðustu ára. Samfylkingin gaf út aflátsbréf til sinna ráðherra en Vinstri grænir vildu ákæra persónur og leikendur án tillits til flokksskírteinis. Ekki þarf að hafa mörg orð um andstæðar skoðanir um Evrópumál.

Vinstristjórnin hangir í stjórnarráðinu vegna þess að stjórnmálaelítan sameinast um að Jóhönnustjórnin sé skásti kosturinn í núverandi stöðu. Allir flokkar, utan Hreyfingin, eru hræddir við fólkið í landinu og vilja ekki kosningar í bráð.


mbl.is Spá um hagvöxt ákveðin vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjófnaður klæddur í lán

Útrásin var öðrum þræði blekking uppskrúfaðs hlutabréfaverðs en hinum þræðinum þjófnaður undir yfirskini viðskiptagjörninga. Nokkrir yfirmenn Baugs gerðu samninga við félagið um að fá lán með þeim skilmálum að þurfa ekki að borga tilbaka fari allt á versta veg. Í frétt RÚV um málið segir eftirfarandi

Starfsmennirnir halda því fram að samningarnir sem þeir gerðu á sínum tíma við Kaupþing, Baug og BGE haldi en þar segir að ekki verði gengið á persónulegar eigur þeirra fari allt á versta veg.

Allir sem einhvern tíma hafa tekið lán vita hvað ,,fari allt á versta veg" þýðir - að maður geti ekki borgað lánið. Þetta gildir fyrir venjulegt fólk en ekki útrásarliðið. Yfirmenn Baugs tóku lán hjá fyrirtækinu sem þeir ætluðu aldrei að borga. ,,Greiðsluvilji" baugsmanna stóð til annars en að borga skuldir sínar.


ESB-RÚV í samfóplotti

Varaþingmaður Samfylkingarinnar, Baldur Þórhallsson, fær sérstakan vettvang í Spegli RÚV í kvöld til að kynda undir ófriðarbáli í Vinstri grænum. Baldur á ekki orð til að lýsa hneysklun sinni á Ögmundi í frjálslegu viðtali Speglisins er ígildi þess að láta yfirlýstan vinstri grænan fjalla um innanbúðarmál sjálfstæðismanna.

Baldur klappar Nató-steininn sem þau Jóhanna og Össur gáfu skilaboð um að ætti að nota gegn Vinstri grænum.

Plott Samfylkingarinnar er að auka óeiningu innan Vinstri grænna en jafnframt að viðra sig upp við Sjálfstæðisflokkinn.

Sókn Samfylkingar gegn Vinstri grænum er skipulögð og margra þátta.  Steingrímur J. fékk á sig högg í morgun þegar upplýsingum um óeðlilegar stjórnvaldsráðstafanir hans var lekið í Fréttablaðið.

 


Einkamál Marinó er opinbert

Kvótaeigandi sem kæmi fram fyrir hönd eigenda kvóta á opinberum vettvangi gæti ekki gert kröfu um að fjölmiðlar segðu ekki frá kvótanum - jafnvel þó eiginkonan væri meðeigandi. Marinó G. Njálsson er talsmaður hagsmunafélags þeirra sem skulda húsnæðislán. Hann getur ekki beðist undan því að fjölmiðlar greini frá húsnæðislánum sem hann skuldar.

Almenningur á rétt á upplýsingum um persónulega hagsmuni þeirra sem standa í opinberri baráttu um tiltekin málefni að því gefnu að um skörun sé að ræða. Í tilfelli Marinó er skörun. Kröfur sem hann setur fram eru beintengdar persónulegum hagsmunum Marinó.

Marinó getur gert kröfu um að rétt sé farið með hans mál í fjölmiðlum en ekki að fjölmiðlar þegi.


Vg verður pólitísk hornkerling

Vinstri grænir eru á hraðleið út í horn íslenskra stjórnmála eftir að hafa setið við háborðið í tvö ár. Dómgreindarleysi forystunnar í Evrópumálum ásamt kaldastríðshélu og aulataktík stefna flokknum út í einskinsmannsland málefnafátækar og áhrifaleysis.

Aðeins blindir menn sjá ekki að umsóknin um aðild Íslands að Evrópusambandinu er steindauð. Hvorki þjóðin né grunnatvinnuvegirnir vilja sjá inngöngu. Evran er við að liðast í sundur og allar fréttir næstu ára frá ESB verða aðildarsinnum mótdrægar. Um helgina gátu Vinstri grænir gefið umsókninni náðarhöggið og endurheimt tapaða æru frá 16. júlí 2009 þegar stór hluti þingflokksins sveik kjósendur flokksins. 

Ein ástæðan fyrir því að flokksráð Vg heyktist á því um helgina að endurnýja tiltrú kjósenda var að kaldastríðsfornaldarfólk hafði þau sjónarmið í frammi að andstaðan við Evrópusambandsaðild væri komin frá sjálfstæðismönnum. Kaldastríðshatrið lifir sjálfstæðu lífi hjá sumum innanbúðar í Vg þótt kringumstæður séu allar aðrar en á dögum tvíveldis kanadindla og sovétstrúboða.

Hernaðarbrölt er enn í heimi hér þrátt fyrir lok kalda stríðsins og Nató er til sem samtök þótt Varsjárbandalagið sé liðið undir lok. Samfylkingin veit að andóf gegn hernaðarhyggju er samofið genamengi Vg. Nató og eldflaugavarnir eru samfykingarfleygur sem klýfur Vg.

Tangarsókn Samfylkingar gegn Vg snýst annars vegar um að taka upp mál óþægileg Vinstri grænum og hins vegar að ná talsambandi við Sjálfstæðisflokkinn.

Aulaskapur forystu Vg er að leyfa Samfylkingunni að taka frumkvæðið og stjórna umræðunni. Vg er í vörn og hrekst fyrir veðrum og vindum. Spillingarmál sem koma upp hjá Steingrími J. veikja hann og spyrja má hvort spunalið Samfylkingar standi þar á bakvið.

Vg er orðinn laskaður stjórnmálaflokkur og efasemdir vaknaðar um það hvort flokkurinn sé til nokkurs nýtur með núverandi forystu.


Samfylking tekur Nató á Vg

Bæði Jóhanna og Össur gera sér far um að blása upp eldflaugaskjöld Nató gagngert í þeim tilgangi að trufla heimilisfriðinn hjá Vinstri grænum. Kratísku skötuhjúin vonast í leiðinni að þau mýki sjálfstæðismenn sem yrðu tilbúnir að hlaupa í skarð Vinstri grænna.

Endatafl ríkisstjórnar Jóhönnu Sig. er hafið.


mbl.is VG var á móti eldflaugaskildi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Steingrímur J. mjatlar milljónum í sitt fólk

Það er gott að eiga fjármálaráðherra úr sínu kjördæmi, eins og sést á forsíðu Fréttablaðsins í dag. Eigendur meðferðarheimilis fengu sérmeðferð hjá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra og 30 milljónir króna. Tölvupóstur sem Steingrímur J. sendi félaga í spillingunni, Árna Páli þáverandi félagsmálaráðherra, er lýsandi fyrir hugarfar nýju valdhafanna.

Sæll félagi! Það er mjög að hitna í kolunum fyrir norðan út af samskiptum Braga/Barnaverndarstofu og Árbótarheimilisins.

Orðalagið ,,fyrir norðan" er lykillinn. Steingrímur J. reddar sínu fólki. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson forstjóri Sögu banka er skjólstæðingur Steingríms J. úr kjördæminu. Saga fékk sérmeðferð hjá fjármálaráðuneytinu og var bjargað frá gjaldþroti. Þorvaldur Lúðvík er grunaður maður í sakamáli er tengist Glitnis-svindli en situr áfram í stól forstjóra enda kominn i skjól fjármálaráðherra.

Valdaelítan sem er að koma sér fyrir í stjórnarráðinu er löðrandi í spillingu.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband