Opinbert fé í útrásarföndur einkaaðila

Sameining dótturfélags OR, Reykjavik Energy Invest, við Geysir Green Energy er risarækjueldi klætt í samkvæmisföt. Undir formerkjum útrásar telja peningamenn, stjórnmálamenn og embættismenn að hægt sé að selja almenningi nýju fötin keisarans.

Samkrull af því tagi sem hér er á ferðinni endar alltaf með því að opinberi aðilinn er mjólkaður af einkaaðilanum. Ástæðan er sú að stjórnmálamennirnir sem fara með opinbera hlutinn eru einmitt það sem þeir eru, stjórnmálamenn, en ekki kaupsýslumenn. Í augum annarra eigenda er hlutverk stjórnmálamannanna að tryggja viðskiptavild og aðgengi að opinberum sjóðum.

Það er ekki spurning hvort heldur hvenær litli græni keisari OR og Fl group verður afhjúpaður nakinn. Eina spurningin er hve reikningurinn verður hár sem almenningur þarf að borga.


mbl.is Bjarni verður stjórnarformaður sameinaðs félags
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta kosningabarátta er hafin

Útspil Samfylkingarinnar á heimasíðu sinni í tilefni ræðu Geirs H. Haarde í Valhöll endurspeglar afstöðu flokksins til stjórnarsamstarfsins við Sjálfstæðisflokkinn. Samfylkingin ann sér ekki hvíldar fyrr en hún nær því markmiði að verða stærri en Sjálfstæðisflokkurinn og leiða ríkisstjórn. Og af því Samfylkingin er ekki heilstæður flokkur,hefur hvorki sögulega né hugmyndafræðilega kjölfestu, fær metnaðurinn útrás með hrakyrðum í garð samstarfsflokksins.

Önnur taktík Samfylkingarinnar verður að taka stök mál til að búa til sérstöðu gagnvart Sjálfstæðisflokknum. Og af því að Samfylkingin á engin kjarnamál sem skilgreina flokkinn munu sérstöðumálin verða sérlega truflandi fyrir stjórnarsamstarfið. Sjálfstæðismenn munu fljótlega fá á tilfinninguna að þeir viti ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Það kemur þreyta í stjórnarsamstarfið fyrr en varir.

Til að auka á fyrirséðan vanda stjórnarheimilisins verða ráðherrar Samfylkingarinnar í bullandi samkeppni sín á milli um forystuhlutverk. Ólíkt hjá ráðsettari flokkum er ekki komin hefð á goggunarröð Samfylkingarinnar sem hvetur til pólitískra einleikja.

Ég veðja viskýflösku að ríkisstjórnin verði ekki deginum eldri en tveggja og hálfs árs.

(Ég tek fyrsta veðmáli í athugasemdakerfinu, en aðeins því fyrsta. Ef ég opnaði á fleiri veðmál gæti ég setið uppi með meiri birgðir af áfengi en mér er hollt.)


Red Sox toppuðu Yankees

Í fyrsta sinn í rúman áratug tóku Red Sox efsta sætið í austurdeild Ameríkudeildarinnar, New York Yankees komu næstir. Á miðvikudag taka Sox á móti Los Angels Angels á Fenway og sigurvegarinn þarf að vinna þrjá leiki af fimm til að komast áfram.

Josh Beckett tekur hólinn fyrir Sox í fyrsta leik og fyrir Englana kastar John Lackey, ásinn þeirra sem vann sér það til frægðar árið 2002 að vera fyrsti nýliðinn í 93 ár til að sigra sjöunda og síðasta leikinn í Heimsseríunni. Beckett er fínn og fimlegur, svona eins og enskur aðalsmaður, við hliðina á Lackey sem er lurkur frá Texas. Fyrsti leikurinn gefur tóninn fyrir það sem koma skal.

Í hinum undanúrslitaleiknum í Ameríkudeildinni fara New York Yankees til Cleveland og hitta þar fyrir Indjánana. 

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband