Benedikt og árásirnar á Bjarna Ben.

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar er í góðum tengslum við slúðurveitu Eiríks Jónssonar, sem mærði Benedikt líkt og launaður almannatengill með færslu 18. október. Degi síðar birtist á slúðurveitunni færsla um fjölskyldutengsl Bjarna Ben við starfsmann Seðlabankans sem er sekur um trúnaðarbrot.

Benedikt er hugleikið að eyðileggja trúverðugleika Bjarna Ben. Í málgagni Viðreisnar, Hringbraut, má lesa í beinu framhaldi af færslum Eiríks nafnlaus skrif sem bendla Bjarna Ben. við viðskiptapólitískt baktjaldamakk.

Nafnlaus höfundur pistilsins á Hringbraut er vel kunnugur viðskiptum og kann til verka að smíða samsæriskenningar.

Með frænda eins og Benedikt þarf Bjarni Ben. enga óvini.


mbl.is Plantað fyrir kosningarnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar kaupa Evu Joly í Kastljós

Eva Joly kom í boði Pírata til landsins vegna kosningabaráttunnar. Markmiðið var að auka umræðu um spillingu í samfélaginu. Þótt Eva kunni ekki stakt orð í íslensku er hún ábyggilega ,,upplýst" af píratískum félögum sínum.

Kastljós RÚV tók að sér að magna upp spillingarumræðuna fyrir Pírata og veitti Joly drottningarviðtal.

Lára Hanna Einarsdóttir setti Kastljósviðtalið óðara á jútúb. Lára Hanna kallaði formann Viðreisnar ,,mellu" þegar hann afþakkaði að mynda ríkisstjórn með Pírötum fyrir kosningar. Þegar fjölmiðlar eru annars vegar eiga Píratar og Lára Hanna sína mellu.  


Kastljós í kosningabaráttu ársins 2009

Það ætti ekki að þurfa sérfræðing til að vita að seðlabankar eru til að bjarga bankakerfi sem riðar til falls. Þetta gildir um alla seðlabanka. Haustið 2008 stóðu allir íslensku bankarnir á bjargbrúninni.

Eftir að tveir féllu, Glitnir og Landsbanki, var reynt að bjarga þeim þriðja, Kaupþingi, með neyðarláni úr Seðlabanka Íslands. Það mistókst og Kaupþing fór í gjaldþrot.

Pólitískt uppgjör við bankahrunið fór fram í kosningunum 2009 og að nokkru marki fjórum árum síðar, í kosningunum 2013.

Kastljós RÚV vill að kosningarnar 2016 snúist líka um bankahrunið fyrir átta árum. RÚV stendur vaktina fyrir vinstriflokkana sem fyrr.


mbl.is Segir valdið hafa verið hjá Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oddný falbýður sig sem ráðherra

Formaður Samfylkingar, Oddný Harðardóttir, kemst ekki á þing í Suðurkjördæmi samkvæmt skoðanakönnunum. Flokkurinn hennar mælist með um sex prósent fylgi. Samt segir Oddný í viðtali að möguleiki Suðurnesjamanna að fá ráðherra felist í að kjósa hana.

Þetta er nokkuð djörf yfirlýsing af formanni flokks sem er við að þurrkast út af þingi. Að ekki sé talað um nýmælið sem í tilboðinu felst.

Eða hefur einhver heyrt um ráðherra Suðurnesjamanna í ríkisstjórn Íslands?


Vinstri grænir og Viðreisn: jöfnuður gegn elítunni

Viðreisn er elítuframboð þeirra sem fleyta rjómann í samfélaginu. Viðreisn gengur svo illa í kosningabaráttunni að frambjóðendur flokksins vilja snúa pólitík upp í tveggja manna tal. Vinstri grænir eru komnir með 20 prósent fylgi í könnunum og stefna í stórsigur.

Vinstri grænir standa á gömlum sósíalískum merg, eru arftaki Alþýðubandalagsins, þótt fyrrum félögum þeirra í Alþýðufylkingunni finnist sósíalisminn útþynntur.

Án þess að það fari hátt i umræðunni breytir vaxandi styrkur Vinstri grænna og veikleiki Viðreisnar áherslum Sjálfstæðisflokksins. Sterk velferðarstefna og jafnaðarsjónarmið eru meira ráðandi í málflutningi sjálfstæðismanna en oft áður.


mbl.is Viðreisn vill frjálslynda miðjustjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ónýtir flokkar kjósa ónýtan gjaldmiðil

Otmar Issing var aðalhagfræðingur Evrópska seðlabankans. Hann telur evruhagkerfið að hruni komið. Annar þekktur þýskur hagfræðingur, Hans Werner Sinn, segir evruna mistök og ráðleggur ríkjum með traust efnahagskerfi, Austurríki og Finnland, að yfirgefa gjaldmiðilinn.

Hér heima er það að frétta að ESB-smáflokkar eins og Samfylking og Viðreisn gera evru-aðild að bjargræði fyrir Ísland.

Evran var pólitísk tilraun til að sameina Evrópu í eitt hagkerfi. Tilraunin mistókst en það mun taka mörg ár, ef ekki áratugi, að vinda ofan af þeim mistökum. Á meðan dettur engum í hug að leggja lag sitt við evruna. Nema ónýtum smáflokkum á Íslandi.


mbl.is „Einn daginn mun spilaborgin hrynja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylking er svarti dauði Pírata

Samfylking læsti klónum í Pírata um leið færi gafst. Tilboð Pírata á sunnudag um viðræður vinstriflokka var bjarghringur fyrir Samfylkinguna.

Um leið og Píratar draga Samfylkinguna upp á dekk smitast þeir af pestinni sem gerir Samfylkinguna að dauðvona flokki. Í könnun Fréttablaðsins lækkar fylgi Pírata og staðfestir ferli sem hófst fyrir nokkru.

Með Samfylkinguna í fanginu eru Pírötum allar bjargir bannaðar. Hvorki vilja aðrir stjórnarandstöðuflokkar leggja lag sitt við tvíeykið né er líklegt að bandalagið trekki að kjósendur.


mbl.is Aukið fylgi Vinstri grænna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkur fólksins verður sigurvegari kosninganna

Brosmilda baráttukonan Inga Sæland ætlar að leiða Flokk fólksins inn á alþingi. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins er rífandi gangur hjá Flokki fólksins og allar líkur að flokkurinn fari yfir 5 prósent þröskuldinn á næstu dögum.

Vinstri grænir styrkja sig sem leiðandi flokk vinstrimanna og ætla að ná tilbaka fylginu frá kosningunum 2009 þegar þeir fóru yfir 20 prósent. ESB-smáflokkarnir Samfylking, Björt framtíð og Viðreisn eru hver með 6-7 prósent fylgi og líklegt að einhver þeirra detti niður fyrir 5 prósentin.

Sjálfstæðisflokkurinn er með tæp 24 prósent og Píratar rúm 20 prósent. Framsókn mælist með 8,5 prósent.


mbl.is Níu framboð í öllum kjördæmum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV: fýla, tölva og Sigmundur Davíð (auðvitað)

Stóra fréttin hjá RÚV í kvöld er ekki um misheppnaðar stjórnarmyndun Pírata fyrir kosningar, enda RÚV ekki fyrir að segja fréttir sem koma stjórnarandstöðunni illa. Nei, aðalfréttin úr kosningabaráttunni var um Sigmund Davíð, foringja Framsóknarflokksins og samskipti hans við formanninn.

Sigmundar Davíðs-fréttin er aðalfréttin á netsvæði RÚV í kvöld. Í sexfréttum Útvarps-RÚV kom fréttamaður að stóra tölvumálinu en því atriði var sleppt í sjöfréttum Sjónvarps-RÚV. Á móti tölvupælingunni í útvarpsfréttinni fann fréttamaður stórkostlega mikilvægt atriði: eru foringinn og formaðurinn í fýlu?

RÚV er sem fyrr með forgangsröðina og fagmennskuna á hreinu.


Benedikt situr á girðingu Pírata og Samfylkingar

Formaður Viðreisnar vill ekki samstarf við Sjálfstæðisflokk og Framsóknarflokk en mun tæplega mæta á ekki-mellufund Pírata og Samfylkingar á morgun.

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar kýs þess í stað að sitja á girðingunni og horfa á faðmlag tapara síðustu vikna í skoðanakönnunum, Samfylkingar og Pírata. Samvkæmt mælingum á Benedikt heima í bandalagi þeirra sem kjósendur yfirgefa síðustu vikurnar fyrir kosningar.

Vinstri grænir eru á siglingu í könnunum og Björt framtíð sömuleiðis. Þessir flokkar afþakka bandalag hnignandi fylgis. En Benedikt situr rasssár á girðingunni og þorir hvorki að hrökkva né stökkva. 

 


mbl.is Allt á blússandi siglingu hjá okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband