Faglegt hrun RÚV-Kastljóss í Markúsarmáli

Kastljós gærkvöldsins gerði atlögu að forseta hæstaréttar og sakaði hann um að brjóta lög með því að tilkynna ekki nefnd um dómarastörf um arf í hlutabréfum sem honum tæmdist í byrjun aldar. RÚV viðurkennir í kvöldfréttum að Markús Sigurbjörnsson tilkynnti um hlutbréfin.

Í stað þess að viðurkenna mistök reynir RÚV að tortryggja sparnaðarreikning Markúsar í Glitni. RÚV kallar til prófessor í lögum, Sigurð Tómas Magnússon, og spyr hvort hlutabréfasjóður sé ekki það sama og hlutafélag í atvinnurekstri!

RÚV-Kastljós stundar ekki fréttamennsku heldur ber á borð blekkingar þar sem ósannindi, hálfkveðnar vísur og dómgreindarlaust rugl eru aðalréttirnir.

RÚV ranglar um á fjölmiðlamarkaði ábyrgðarlaust og eftirlitslaust og efnir til uppþota á kostnað skattgreiðenda. Á Efstaleiti axlar enginn ábyrgð. En faglega ónýtu liðsmenn fréttastofu eru nógu fljótir að krefja aðra um ábyrgð þegar þannig stendur á. Það á ekki að líða svona ósvinnu.


Kastljós fer með ósannindi - kemur afsökunarbeiðni?

Kastljós sagði ósatt þegar Markús Sigurbjörnsson forseti hæstaréttar var sakaður um að hafa ekki tilkynnt um hlutabréf í Glitni sem hann fékk í arf árið 2002.

Kastljós beit höfuðið af skömminni með því að halda fram að peningaeign í hlutabréfasjóði, sem er sparnaðarform tugþúsunda Íslendinga, jafngildi eign í hlutafélagi í atvinnurekstri.

Kemur afsökunarbeiðni frá Efstaleiti? Frýs í helvíti?


mbl.is Markús svarar fyrir verðbréfin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausnin á lágkúrunni

Smáflokkaríkisstjórn fimm flokka er lágkúra enda þar innanborðs stjórnmálaflokkar sem þjóðin hafnaði, til dæmis Samfylkingin. Smáflokkabandalagið sameinast um það eitt að halda stjórnmálaaflinu, sem sigraði kosningarnar, Sjálfstæðisflokknum, frá landsstjórninni.

Smáflokkabandalagið er ekki með neinn valkost við núverandi stjórnarstefnu sem reynst hefur þjóðinni farsæl í þrjú ár. Vinstriflokkarnir tala um ,,verkferla" og ,,lausnamiðun" en það eru aðeins orðaleppar um umboðslaus pólitísk hrossakaup.

Lausnin á lágkúrunni er að horfast í augu við niðurstöðu lýðræðislegra kosninga og viðurkenna að ekki er hægt að sniðganga vilja tæplega þriðjungs þjóðarinnar, sem kaus Sjálfstæðisflokkinn til forystu í landsmálum.

 


mbl.is „Fer bara inn í þetta lausnamiðuð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kastljós leitar að skúrki, finnur rassvasabókhald

Kastljós kann ekki að lesa lög og ruglar saman peningaeign í hlutabréfasjóði og eign í hlutafélagi. Opinberir starfsmenn RÚV eyddu almannafé í rannsókn sem leiddi það eitt í ljós að nefnd um dómarastörf er ekki með neinn starfsmann til halda utan um skráningu hlutabréfaeignar dómara í atvinnufyrirtækjum.

Leikmynd Kastljóss gerði ráð fyrir að Hjördís Hákonardóttir væri stjörnuvitnið gegn Markúsi Sigurbjörnssyni, sem átti að vera skúrkurinn. En þegar Hjördís varð að viðurkenna að skráningar á hlutabréfaeign dómara í atvinnufyrirtækjum væri aukaverk án skipulags sat hún uppi með Svarta-Pétur.

Kastljós notaði sömu brellur og oft áður. Gerði stórmál úr aukaatriðum og misskildi viljandi aðalatriði, sem er að peningaeign í hlutabréfasjóði er ekki eign í hlutafélagi.

Helsti fréttapunktur Kastljóss er að nefnd um dómarastörf fær ekki fjármuni til að halda starfsmenn sem gæti skipulagt rassvasabókhaldið um eign dómara í hlutafélögum. Kostnað við afæturnar á Efstaleiti, sem nota almannafé í blekkingar undir yfirskini frétta, mætti lækka - þó ekki nema til að fjármagna starfsmann nefndar um dómarastörf. Hálft starf væri meira en kappnóg.


mbl.is Telur sig ekki hafa verið vanhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Atlaga RÚV að hæstarétti - dómstóll götunnar

Kastljós RÚV boðar atlögu að hæstarétti vegna meints vanhæfis dómara. Lög um vanhæfi dómara er að finna í 5. gr. laga um meðferð einkamála og eru í sjö liðum.

5. gr. Dómari, þar á meðal meðdómsmaður, er vanhæfur til að fara með mál ef:
    a. hann er aðili að málinu eða fyrirsvarsmaður aðila,
    b. hann hefur gætt réttar aðila varðandi sakarefnið eða veitt aðila ólögskyldar leiðbeiningar um það,
    c. hann hefur borið eða verið kvaddur til að bera vitni um atvik málsins af réttmætu tilefni eða verið mats- eða skoðunarmaður um sakarefnið,
    d. hann er eða hefur verið maki aðila, skyldur eða mægður aðila í beinan legg eða að öðrum lið til hliðar eða tengdur aðila með sama hætti vegna ættleiðingar,
    e. hann tengist eða hefur tengst fyrirsvarsmanni eða málflytjanda aðila með þeim hætti sem segir í d-lið,
    f. hann tengist eða hefur tengst vitni í málinu með sama hætti og segir í d-lið, mats- eða skoðunarmanni eða manni sem neitar að láta af hendi sönnunargagn,
    g. fyrir hendi eru önnur atvik eða aðstæður sem eru fallnar til þess að draga óhlutdrægni hans með réttu í efa.

Kastljós mun gera síðasta liðinn að skotfærum gegn Markúsi Sigurbjörnssyni. Hann átti, samkvæmt frétt RÚV, peninga í sjóðum bankanna fyrir hrun, líkt og þúsundir annarra Íslendinga. Samkvæmt fréttinni var hann búinn að losa sig við eignir sínar fyrir hrun og málið ætti þar með að vera dautt. En ekki í meðförum Kastljóss.

Frétt RÚV, sem ritstjórar Kastljóss eru skrifaðir fyrir, boðar að það sé saknæmt að eiga peninga. Í Kastljósi í kvöld verður dómstóll götunnar ræstur út. RÚV mun kynda undir með hverskyns fréttum af smáatriðum, sem bæði eru léttvæg og ómálefnaleg. En heildaráhrifin verða þau að ,,bloggheimar loga" um allsherjarspillingu á Íslandi. Og það er meginþema Kastljóss síðustu misseri.  


mbl.is Segja Markús ekki hafa farið að reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formleg RÚV-gáta og óformleg

Í hádegisfréttum RÚV var ein aðalfréttin að næstu fjárlög, sem eru Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, verði mesta styrking ríkisreksturs í seinni tíma sögu.

Inn í miðja fréttina um fjárlög var skellt inn viðtali við bestu vinkonu RÚV, Birgittu Jónsdóttur pírata. Fréttamanni og Birgittu kom saman um að hörkugangur væri í óformlegum viðræðum um smáflokkastjórn undir forystu Pírata, sem þó hefjast ekki fyrr en eftir hádegi.

Til að undirstrika hve góður gangur væri í viðræðum, sem enn eru ekki hafnar, voru fréttamaður og vinkona RÚV á því að jafnvel strax síðdegis yrðu óformlegu viðræðurnar formlegar.

Í fréttaflutningi er fyrsta boðorðið að upplýsa en ekki tala í gátum. En RÚV vill teygja lopann fyrir Pírata og veitir verðlaun fyrir besta svarið við spurningunni: hver er munurinn á formlegum og óformlegum stjórnarmyndunarviðræðum.

Fyrstu verðlaun eru viðtal á Austurvelli í fyrstu mótmælunum sem Píratar boða til á nýju ári. Allt í beinni á RÚV. 


mbl.is Vill ræða við Viðreisn og Bjarta framtíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Píratar: Katrín er fúskari

Píratar fengu umboð forseta eftir lokun markaða á föstudag. Helgina notuðu þeir til að ræða hvers vegna ekki tókst að mynda fimm flokka stjórn undir forystu Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna. Niðurstaða er að vinnubrögð Katrínar hafi verið fúsk og flumbrugangur.

Píratar þykjast kunna betri vinnubrögð og tala um ,,verkferla". Innan raða Pírata eru ,,hámenntaðir" einstaklingar sem eflaust kunna margt fyrir sér um ,,verkferla."

Þeir sem ætla að mynda verkferlaríkisstjórn þurfa ekki að kunna að telja. En það kann varaformaður Vinstri grænna. Hann komst að því að kerfisbreytingaflokkar eins og Píratar eru í minnihluta á alþingi. Skapandi stærðfræði Smára McCarthy getur ábyggilega breytt minnihluta í meirihluta. Með ,,verkferlum."


mbl.is „Ekkert fúsk og engan flumbrugang“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pútín og vestræn gildi: hugmyndabarátta

Í Bandaríkjunum og Evrópu stendur yfir hugmyndabarátta þar sem Pútín Rússlandsforseti og vestræn gildi eru í kastljósinu. Þeir sem kalla sig frjálslynda, demókratar í Bandaríkjunum og vinstrimenn í Evrópu, útmála Pútín sem ógn við vestræn gildi.

Hægrimenn á vesturlöndum líta á hinn bóginn á Pútín sem bandamann vestrænnar siðmenningar. Vinstrimenn af gamla skólanum, þeir sem höfnuðu allsherjarfordæmingu á kommúnisma á dögum kalda stríðsins, eru hlynntir samstöðu vesturlanda og Rússlands, samanber Nation-útgáfuna í Bandaríkjunum.

Öflugir fjölmiðlar frjálslyndra, t.d. New York Times og Washington Post, kynda undir andstyggð á Pútín og gera þá tortryggilega sem vilja vinsamleg samskipti við Pútín og Rússland.

Áhrif Pútín á alþjóðastjórnmál eru þegar orðin veruleg. Allar líkur eru á að þau muni vaxa á næstu misserum og árum, samhliða því sem vestræn gildi verða endurskoðuð.


mbl.is Segir að Trump sé gáfaður maður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Engir pólitískir valkostir við núverandi stjórnarstefnu

Ef til væri pólitískur valkostur við núverandi stjórnarstefnu, sem mótuð er af Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, væri fyrir löngu búið að mynda ríkisstjórn.

Stjórnarandstaðan er klofin í fimm smáflokka og spannar allt litrófið, frá vinstra stjórnleysi Pírata til Saga class útgáfu Sjálfstæðisflokksins í Viðreisn. Ef þessir flokkar mynduðu stjórn yrði um að ræða stórfelldustu kosningasvik Íslandssögunnar, einfaldlega vegna þess að flokkarnir fimm kynntu fimm ólíkar stefnuskrár fyrir kjósendum.

Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki vantar aðeins þrjú atkvæði á alþingi til að halda áfram stjórnarstefnu sem er farsæl í þrjú ár og engin ástæða er til að bregða út af. Enginn smáflokkanna fimm er enn tilbúinn að horfast í augu við pólitískan veruleika. Og þess vegna er stjórnarkreppa.


mbl.is Viðreisn og Björt framtíð með lykilinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkið móðgast og lögsækir rangar hugmyndir

Ríkissaksóknari er handhafi ríkisvaldsins og ákærir borgarana fyrir brot á landslögum að undangenginni rannsókn. Ríkissaksóknari ákvað að þeir sem eru með rangar hugmyndir um samkynhneigð skuli lögsóttir, láti þeir hugmyndirnar í ljós á opinberum vettvangi.

Kynhneigð er tjáning á því hver við erum. Við tjáum eðli okkar og hneigðir með margvíslegum hætti. Sum okkar safna frímerkjum og erum þá frímerkjasafnarar; aðrir eru kristnir og stunda líferni til samræmis; einhverjir elska fótboltafélag og haga lífi sínu í takt við leiktímabilið. Og svo framvegis.

Við verðum að gera ráð fyrir að vera gagnrýnd fyrir það sem við erum. Frímerkjasöfnun er fánýt iðja, kristni er bábilja og fótbolti forheimskandi. Við ákveðum sjálf hvernig við tökum gagnrýninni. Hvort við ræðum við gagnrýnendur okkar eða látum aðfinnslurnar sem vind um eyrum þjóta. Hvort við móðgumst eða hlægjum að andskotum okkar.

Þegar ríkið ákveður fyrir okkar hönd að móðgast og gefa út ákærur á hendur þeim sem eru ósammála um eðli okkar og hneigðir erum við ekki lengur frjáls að tjá okkur, segja hver við erum. Ríkisvaldið ákveður að sumar hugmyndir okkar um lífið og tilveruna eru rangar - ólöglegar.

Einu sinni voru menn í skápnum vegna kynhneigðar sinnar. Núna skulu menn lokaðir inni ef þeir ala með sér rangar hugmyndir. Það er ekki framför.


mbl.is Ákærði verjandi í hliðarmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband