Kuldaleg hamfarahlýnun

Í hitabylgjum er talað um hamfarahlýnun af mannavöldum. Í kuldakasti er veðrið allt í einu orðið náttúrulegt, maðurinn kemur hvergi nærri.

Á jörðinni er ekki eitt veðurkerfi heldur mörg, skrifar loftslagsvísindamaðurinn Richard Lindzen í nýrri skýrslu. Þess vegna sé markleysa að tala um meðalhita á jörðinni, sem er viðmið hamfarasinna.

Í viðtengdri frétt er talað um kuldakastið í Reykjavík en ekki á Íslandi. Almennt er aldrei talað um meðalhita á Íslandi heldur í einstökum landshlutun. Hitafar breytist sáralítið frá ári til árs og því minna sem stærra svæði er undir. Litlar breytingar staðbundnar hafa aftur merkingu. Kalt vor á Suðurlandi skiptir máli fyrir sunnlenska bændur en hefur enga merkingu fyrir vestfirska sjómenn.

Á hinn bóginn eru litlar breytingar yfir langan tíma merkingarbærar. Tíminn sem er undir hleypur þá á hundruðum og þúsundum ára. Það er kaldara núna en það var á miðaldahlýskeiðinu fyrir þúsund árum. Fyrir 6000 árum voru jöklar á norðurslóðum ekki svipur hjá sjón og hlýrra eftir því.

Hamfarasinnar rugla vísvitandi þessu tvennu saman, óverulegum breytingum á staðbundnu veðurfari annars vegar og hins vegar langtímaþróun. Til að bíta höfuðið af skömminni fullyrða hamfarasinnar að ein breyta, manngerður koltvísýringur (CO2) í andrúmslofti, ráði hitastigi jarðar. Það er fullkominn bábilja.

Fyrir það fyrsta hefur koltvísýringur risið og hnigið frá ómunatíð, löngu áður en maðurinn kom til sögunnar. Koltvísýringur er nú um stundir 400 ppm eða 0,04% af andrúmsloftinu. Þetta hlutfall hefur farið upp í 7000 ppm áður en maðurinn varð til sem tegund. Náttúruferlar ráða ferðinni, ekki mannlegar athafnir.

Í öðru lagi er koltvísýringur aðalfæða plantna. Sveltimörk plantna eru við 200 ppm. Þegar magn koltvísýrings eykst örvast vöxtur plantna, jörðin verður grænni. Kjörvöxtur plantna er við 1200 til 1600 ppm.  

Í þriðja lagi fylgja breytingar á koltvísýringi í andrúmsloftinu breyttum lofthita, sem aftur fylgir yfirborðshita sjávar," skrifar loftslagsvísindamaðurinn Ole Humlum. Það er ekki aukið magn koltvísýrings í andrúmsloftinu sem veldur hækkandi hita heldur er hærra magn koltvísýrings afleiðing hækkandi lofthita. 

Í fjórða lagi myndu verulegar breytingar á koltvísýringi, t.d. tvöföldun úr 400 í 800 ppm, aðeins valda óverulegri hækkun hitastigs eða 0,75 gráður á C. 

Samspil sólarvirkni og skýjafars eru til muna öflugri breyta en CO2 hvað varðar lofthita.

Vatnsgufa H2O er þrisvar sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en CO2. Vatnsgufa myndar ský. Blaðamaður Die Zeit, með doktorsgráðu í eðlisfræði, ræddi við einn fremsta loftslagsvísindamann Þjóðverja og forstöðumann veðurfræðistofnunar Max Planck, Bjorn Stevens, og spurði hvort jörðin yrði brátt óbyggileg vegna áhrifa gróðurhúsalofttegunda.

Það er bull sem hefur ekkert með vísindalegan veruleika að gera, svaraði Björn Stevens. (Sjá hér enska útgáfu).

,,Næstu 30 árin verður hnattræn hlýnun ekki lengur í umræðunni," segir Valentína Zharkova sem veit sitthvað um áhrif sólar á veðurfar jarðar og spáir köldu.

Kuldakastið í henni Reykjavík í desember 2022 skyldi þó aldrei vera vísbending um það sem koma skal?

 


mbl.is Verður 71 árs kuldamet slegið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Þór Emilsson

Hamfarahlýnun er eins og pestin, ekkert grín að losna við þetta þegar það hefur heltekið heilu ríkisstjórnirnar.

Ég vona bara að fólk fari að vakna og spá í hlutum sem hægt er að breyta sem skipta máli.

Emil Þór Emilsson, 30.12.2022 kl. 10:49

2 Smámynd: Ómar Geirsson

Blessaður Páll.

Og gleðilegt nýtt ár. 

Á nýju ári, erfiðu ári, þá rýnir maður yfir spár og skrif þess liðna.

Og ég gat ekki að því gert, því þú lagðir mikið á þig að vitna beint í ýmsa bullukolla og gervivísindamenn, ertu virkilega farinn að örvænta svo að á nýju ári finnist ekki einn bjáni sem leggur út af skrifum þínum eða tekur undir þau???

Eða af hverju hlóðstu svona mjög í fallbyssurnar þegar svona almenn friðsæld tekur yfir skrif manna??

Samt vona ég innilega að þetta "kast" þitt hafi aðeins verið tímabundin frostendurkast þeirrar athafnar að vilja komast inní bíl sinn í heimskautaveðri sem varla barnæska okkar man eftir.

Að þetta úrslitakast þitt, líkt og sókn skriðdrekasveita Þjóðverja yfir fjallaskörð Ardennafjalla ´44 hafi aðeins verið taugaviðbrögð gagnvart hæfni náttúrunnar að frjósa okkur í hel.

Að vitsmunir þínir segi að það sé alltaf von að þó sé hægt að blekkja og ljúga að trúgjörnum að heimurinn sé ekki að hlýna.

Burrrr---rrr, djöfull er kalt úti núna.

Áramótakveðja að austan.

Ómar Geirsson, 1.1.2023 kl. 02:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband