Trans-stofnun lokað í Bretlandi

Eina stofnunin í Bretlandi sem kynbreytti ungmennum, Tavistock transgender clinic, var lokað með þeim rökum að stofnunin væri ,,ekki örugg fyrir börn."

18 ár eru síðan að vakin var athygli á að ungmenni voru sett í kynbreytingarferli í nafni hugmyndafræði. Þúsundir ungmenna fóru í meðferð er fólu í sér óafturkræfar breytingar á líkama þeirra. Dæmi eru um að 16 ára börn voru sett á lyf til að breyta kyni eftir eitt viðtal. Lyf sem bæla kynþroska eru heilsuspillandi.

,,Við munum horfa tilbaka með hryllingi til þess tíma þegar börnum var misþyrmt með læknisfræði er þjónaði hugmyndafræði," segir Suzanne Moore dálkahöfundur Telegraph.

Á einum áratug fjölgaði börnum sem vildu kynskipti um 4000 prósent, já fjögur þúsund, fór úr 250 árið 2011 og á sjötta þúsund tíu árum síðar. 

Ástæðan er að ungmennum var talin trú um að hægt væri að fæðast í röngum líkama. Það er ekki hægt: meðvitundin fæðist með líkamanum, kemur ekki sérpöntuð.

Stonewall-hreyfingin, sem gat sér gott orð á sínum tíma í baráttunni fyrir réttindum samkynhneigðra, tók transmenninguna upp á sína arma og bjó til hugmyndafræðina um að meðvitundin passaði ekki við líkamann. ,,Dagar Stonewall eru taldir," segir Miriam Cates.

Á upplýstum tímum á ekki að vera hægt að misþyrma börnum með læknisfræði. En við lifum tíma and-skynsemi þar sem hugmyndafræði leggur línurnar fyrir vísindin. Hryllingur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það eru áhöld um hvort bólusetning barna gegn Cov-19 sé hugmyndafræði eða peningagræðgi. Kannski sitt lítið af hvoru. 

Ragnhildur Kolka, 30.7.2022 kl. 10:40

2 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

5000 börn á biðlista þegar deildin lokaði.

Guðmundur Böðvarsson, 30.7.2022 kl. 13:18

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Þetta, Páll, er farið að minna óþægilega á tilraunarstarfsemi Þriðja ríkisins á varnarlausu fólki - og - kynbótastefnuna (e. eugenics) sem var undanfari nasismans í Evrópu á síðari hluta 19. aldar.

Kveðjur

Gunnar Rögnvaldsson, 30.7.2022 kl. 15:02

4 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Tek undir með Gunnari.

Sigurður Kristján Hjaltested, 30.7.2022 kl. 19:54

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Hvert einasta álit hér auk pitilsins,mun ég ávalt taka undir.-Þar sem þessi andstyggð hefur viðgengist í Bretlandi erum við í hættu ef þeir sem umgangast börn okkar telji þeim trú um að þau hafi fæðst í röngum líkama.-Þekki dæmi um barn sem er blóðskylt mér og fæddist drengur en er nú stúlka.

Helga Kristjánsdóttir, 31.7.2022 kl. 04:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband